Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1983, Blaðsíða 33
33
Hartn notoð' —^
Sern ^aðtnÚna^^lZkhi,Utfa,ls
hann f6kkgóÁ á Br°aoXnk' Sinu
9°ðo ^ónto fy^y sen,
var undir yfirborðinu. Ferill hans hef-
ur einkennst af breytingum.
Eftir að Space Oddity kom á mark-
aðinn gerði Bowie sér röð eínkenni-
legra manngerða og tók upp ímyndaða
lífshættiþeirra.
Ziggy Stardust
Fyrstur þessara manngerða var
Ziggy Stardust. Hann var með
appelsínugult hár út í loftið, klæddist
kynferðislega tvíræðum fötum og bar
eldingarstrik í andliti. Þetta gervi vék
síöar fyrir fígúrunni Mjóa hvíta her-
toganum.
Bowie er sannarlega margræður
persónuleiki en mennimir sem hann
þóttist vera fóm smám saman að taka
yfir hans eigin persónuleika. Ziggy
Stardust varð sérstaklega eins konar
Frankenstæn sköpunarverk. Hann
kynnti sig sem félagslegan frelsara og
í hlutverki hans reyndi Bowie að
hneyksla eins marga eins oft og hann
gat.
Hann gekk i afkáralegum fötum og
neytti margvíslegra vímugjafa. Bowie
segir um þessa tíma: „Arum saman
þoröi ég ekki einsamall út um aöal-
dymar hjá mér.” Hann fór aðeins um í
bíl með svörtum gluggum og varinn af
stormsveit, lífvörðum í svörtum leður-
búningum.
A þessum tíma ótti hann röð af
elskendum af báðum kynjum á meðan
hann hélt opnu sambandi sínu við fyrr-
verandi konu sína, Angie Bowie, sem
einnig hneigðist til beggja kynja.
A þessum dögum segist Bowie oft
hafa hneykslað sjálfan sig meira held-
ur en aðdáendur sína.
„Eg var fyrsti popplistamaðurinn
sem fann upp grímur til aö fela mig
bak við. Eg var David Jones frá Brixt-
on sem langaði til að gera eitthvað list-
rænt sem væri þess virði að staldra við
það en ég haföi ekki hugrekki til að
horfast í augu við áhorfendur mína
sjálfur. Það að gera kvikmyndir hefur
kennt mér að maöur getur verið per-
sónuleiki og hætt aö vera hann þegar
myndinni er lokið. Sem rokkstjarna
gat ég ekki hætt. Eg hélt áfram að vera
þessi úrkynjaða persóna sem ég var sí-
fellt aö búa til á sviði og utan.
Sonurínn Zowie
„Eg hataði popplífsmátann en það er
erfitt að losa sig við lifnaðarhætti sem
maður hefur haft lengi. Eg gerði mér
grein fyrir því rétt áöur en það varð
um seinan að ég var að eyðileggja
mig.”
Nú, eftir að hafa gefið hefðunum
á’ann í fimmtán ár, má merkja breyt-
ingu í háttalagi Bowies. I staðinn fyrir
eiturlyf og grímur liðinna ára hefur
hann tekið nýja og jákvæða afstöðu í
starfi og einkalífi. Hann er orðinn eins
eðlilegur og Dawie Bowie getur orðið.
Hann er hraustlegur og sólbrenndur
og skolleitt hárið er litað ljóst eftir að
hann hefur nýlega dvalist í Astralíu og
Suðurhöfum. Hann lítur ekki lengur út
eins og hvarfafyrirbrigði á milli eitur-
flugu og drakúla heldur er í klæðskera-
saumuðum fötum. 36 ára að aldri hefur
hann náð þeim þroska að hinn raun-
verulegi David Bowie er reiðubúinn að
standa upp. Þroska og vellíðan sem er
að miklu leyti komin frá 12 ára syni
hans, Zowie, sem Bowie kallar nú nafn-
inu Joe sem er mun nær veruleikanum.
Frank Sinatra
„Eg hefði aldrei talið að þetta væri
mögulegt,” segir Bowie, ,,en það sem
ég nýt mest og sem hefur gefið mér
mesta von undanfarin fimm ár er son-
ur minn. Það er ótrúlegt hvað sonur
eða dóttir gerir fyrir mann.
„Lífið nokkur síðustu ár hefur geng-
ið miklu mjúklegar heldur en þegar ég
var í poppstjömuhlutverkinu. Þegar
maður fæst við leik er maður ekki
umkringdur klikkuðu fólki eins og í
poppinu og allt er mun stillilegra. I þvi
andrúmslofti er miklu auöveidara fyr-
ir mig aö halda sterkum og samfelld-
um tengslum við son minn. ”
Þrátt fyrir stöðugri lífsmáta á Bowie
það enn til að ráðast gegn hefðum og
hneyksla. Síðasta vinsældalagi hans
China Doll var fylgt eftir með video-
mynd þar sem er mynd af honum og
kínverska módelinu Geeling Ng þar
sem þau veltast um nakin á óstralskri
strönd. Nokkrar heitarí senur varð að
klippa úr myndinni til þess að BBC
gæti sýnt hana í Top Of The Pops.
Eftir að hafa stjórnað flestum popp-
videomyndum sínum langar Bowie til
að spreyta sig á því að stjórna kvik-
mynd. Nýlega lét hann í ljós áhuga á
að takast á við að gera mynd af lífi
Frank Sinatra en að því er virðist mun
eina svar hins aldna stimis hafa verið:
„Eg vil ekki að neinn öfuguggi leiki
mig.”
Hvað sem geríst þá er víst að það er
nægur áhugi á aö fá hann til aö leika
hlutverk.
A meðan virðist tónlistarferill hans
hafa áhrif á nýja kynslóð niunda ára-
tugarins.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta i Granaskjóli 16, þingi. eign Ástu F. Reynis-
dóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans og Ásgeirs
Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 27. sept. 1983 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 48., 53. og 56. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Gaukshólum 2, þingl. eign Alexanders Ólafssonar, fer fram eftir kröfu
Guðjóns Á. Jónssonar hdl. og Skúla J. Pálmasonar hrl. á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 28. sept. 1983 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 48., 53. og 56. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Heiðna-
bergi 11, þingl. eign Stefáns Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Jóns
Sveinssonar hdl. og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 28. sept. 1983 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 70., 72. og 74. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Austurbergi 8, þingl. eign Arnars Ingólf ssonar, fer fram eftir kröfu Ás-
geirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 28. sept. 1983 kl.
16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 48., 53. og 56. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Hörðalandi 10, þingl. eign Huldu Bjaraadóttur, fer fram eftir kröfu
Skúla J. Pólmasonar hrl., Útvegsbanka íslands og Árna Einarssonar
hdl. á eigninni sálfri miðvikudaginn 28. sept. 1983 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 48., 53. og 56. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Laugarnesvegi 13, þingl. eign Valdimars Jörgensen, fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Sigríðar Thorlacíus hdl. á eign-
inni sjálfri miðvikudaginn 28. sept. 1983 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 70., 72. og 74. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Hvcrfisgötu 82 (4. hæð austurenda), þingl. eign Jóns Guðvarðarsonar,
fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hdl. á eigninni sjálfri mánu-
dag 26. september 1983 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 70., 72. og 74. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á Hjalla-
landi 1, þingl. eign Arnar Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Ara ís-
berg hdl. á eigninni sjálfri mánudag 26. september 1983 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á hluta i Bakkastíg 5, þingl. eign Árna Jóhannssonar,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri
mánudag 26. september 1983 kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Garðastræti 39, þingl. eign Ingólfs Guðnason-
ar, fer fram eftir kröfu Páls A. Pálssonar hrl., Gjaldheimtunnar i
Reykjavík og Útvegsbanka Islands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 27.
sept. 1983 kl. 14.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Eyjagötu 9, þingl. eign íslensku umboðssölunnar
hf., f er fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni s jálfri
þriðjudaginn 27. sept. 1983 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.