Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1983, Qupperneq 5
DV. FÖSTUDAGÍJR 7. OKTÖb'ÉR 1983
5
Salaá
hljómplötum:
Sala á hljómplötum hér á landi
hefur sjaldan eöa aldrei veriö jafii-
dræm og á þessu ári. Miöaö við met-
söluáriö 1977 er samdrátturinn um 70
af hundraði. Og frá því í fyrra hefur
salan dregist saman um 30—35 af
hundraöi. Tii enn frekari saman-
burðar má geta þess að áriö 1977
seldust fimm plötur i yfir tiu þúsund
eintökum en í ár er taiiö að metsölu-
platan seljist í um þrjú þúsund ein-
tökum.
Það sem helst hefur valdiö þessum
samdrætti í sölu á hljómplötum er sí-
hækkandi plötuverð. Þar á stærstan
Er nú 30 prásent
af sölunni 1977
þáttinn vörugjaldiö illræmda sem
sett var á til bráðabirgða 1977 og
hefur hækkað æ síöan.
Gjaldiö var sett á síöari hluta árs
1977 og nam þá fimm af hundraði.
Síðan hækkaði þaö nærri árlega uns
þaö nam 40 af hundraöi eftir setningu
bráöabirgðalaganna í ágústmánuöi i
fyrra. Þegar þau lög féllu úr gildi síö-
astliðið vor lækkaði vörugjaldiö
niöur í 30 af hundraði og er þar enn.
I ofanálag er lúxustollur á hljóm-
plötum sem nemur 75 af hundraöi og
þegar allt er reiknaö saman kemur í
ljós að rikið hirðir rúmlega helming-
inn af því verði sem ein hljómplata
erseldáútúrbúð.
Þetta háa verö sem er á hljómplöt-
um hérlendis hefur haft þaö í för
með sér að um einn þriðji hluti af
ölium hljómplötukaupum Islendinga
er nú talinn eiga sér stað erlendis þar
sem plötuverð er mun lægra. Algengt
er aö venjulegur ferðamaður komi
með þetta milli fimm og tíu plötur
með sér heim að utan.
önnur afleiðing af þessu háa plötu-
verði er aö sala á óáteknum kass-
ettuspólumhefurstaöið og stendur í
miklum blóma. Sæinileg spóla kostar
um 125 krónur og á hana má koma
efni af tveimur stórum hljómplötum.
Þannig má eignast tvær plötur á 125
krónur í stað þess að borga um eitt-
þúsund krónur fy rir þær í búð.
Á þessu ári hafa tvær hljómplötu-
verslanir i Reykjavík og ein á Akur-
eyri hætt rekstri í beinu framhaldi af
samdrættinum í sölunni. Auð auki
hefur eitt fyrirtæki í Reykjavík lokaö
hljómplötudeild sinni af sömu
ástæðum.
Margar verslanir bíða nú og vona
að jólasalan muni bjarga þeim úr
kröggunum og fleyta þeim yf ir þessa
mestu erfiðleikatíma sem hljóm-
.plötuverslun hefur upplifað hér á
landi.
Ennfremur vonast menn til að
stjórnvöld muni sjá sóma sinn í þvi
að fella niður hið iliræmda vörugjald
á hljómplötum. Flestir aðiiar í
hljómplötuverslun, sem DV talaöi
við, voru sammála um að ríkið
myndi alls ekki tapa á þvi, heldur
þvert á móti myndi söluaúkningin
vega til fulls upp á móti töpuðu vöru-
gjaldioggottbetur.
-SþS.
Ökuleikni BFÖ— DV og Umferðarráðs:
Urslitakeppni
i vélhjólakeppni
haldin um helgina
— þáttur í umferðarviku Reykjavíkur
Nú er komið að úrslitum ökuleikni
’83 á vélhjólum. Vélhjólakeppni í sum-
ar var haldin á vegum ungmennadeild-
ar Bindindisfélags ökumanna, Um-
ferðarráðs og DV.
Vélhjólakeppni var háð á 6 stööum
víðs vegar um landiö og var svo upp-
byggð að keppendur svöruðu fyrst
nokkrum umferðarspumingum og því
næst óku þeir sérstaka torfærubraut'
meö ýmsum þrautum og var keppt á
tíma. Þrír efstu keppendur frá
hverjum stað ööluðust rétt til að halda
áfram í úrslitakeppni sem haldin
verður um helgina, þann 8. okt.
Orslitakeppnin verður með nokkuð
öðru snii en undankeppnin. Umferðar-
verkefnin verða viðameiri og þyngri.
Einn hluti keppninnar verður góð-
akstur um götur Reykjavíkur og þar
verður fylgst með aksturslagi kepp-
enda. Að síöustu veröur keppt í akstri á
þrautaplani með tímatöku. I þeim
hluta keppa allir á sama hjólinu og er
þaö í eigu Umferðarráðs en Samband
íslenskra tryggingafélaga gaf Umferð-
arráöi hjólið fyrir 3 árum. Keppnin
næsta laugardag, sem er hluti af um-
ferðarviku Reykjavíkur, verður erfið
og hörð enda er mikið í húfi fyrir kepp-
endur. Að sjálfsögðu eru bikar-
verðlaun fyrir 3 efstu keppendur og er
það Yamaha umboðið á Islandi, Bíla-
borg hf., sem gefur verðlaunin. En þeir
tveir keppendur er efstir verða hljóta
hvorki meira né minna en fría ferð til
Ungverjalands. Þessir tveir veröa full-
trúar Islands í alþjóölegri vélhjóla-
keppni sem haldin er á vegum alþjóöa-
sambands umferðarráða. Umferðar-
ráð mun alfarið sjá um kostnað við
ferð íslensku keppendanna sem farin
verður í maí nasstkomandi.
I sumar kepptu tæplega 60 piltar í
ökuleikninni og hafa 18 þeirra öðlast
rétt til þátttöku í úrshtunum sem
haldin verða við Laugamesskólann á
morgun, laugardag 8. október, kl.
13.30.
Afmæliskonsert
a Akureyrí
Tónlistarfélag Akureyrar varð 40
ára síðastliöið vor og verða haldnir af-
mælistónleikar í Borgarbiói á morgun,
iaugardag, kl. 14. A fyrri hluta tónleik-
anna leikur Blásarakvintett Reykja-
víkur, en hann skipa Bernard Wilkin-
son, Daði Kolbeinsson, Einar Jóhann-
esson, David Ognibene og Hafliði Guð-
mundsson. Um síðari hlutann sjá svo
þeir Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari og Jóhann Pálsson, leikari og
grasafræðingur. Frumflytja þeir verk-
ið „Oður til steinsins”, eftir Atla Heimi
Sveinsson, sem samiö er við myndir
Ágústs Jónssonar og ljóð Kristjáns frá
Djúpalæk. Jóhann les ljóðin og sýndar
verða litskyggnur af steinamyndum
Agústs.
Tónlistarfélag Akureyrar var stofn-
að 4. maí 1943 fyrir áhrif frá Tónlistar-
félagi Reykjavíkur sem þá átti langt
og blómlegt starf að baki. Aðalvið-
fangsefni félagsins var að efla tónlist-
arstarf í bænum og þó einkum að
endurvekja lúðrasveit á Akureyri,
koma á fót tónlistarskóla og fá tónlist-
armenn, innlenda og erlenda, til hljóm-
leikahalds.
Árið 1945 var stofnaður tónlistarskóli
og var Margrét Eiríksdóttir píanóleik-
ari ráðin til þess að veita honum for-
stöðu. I þeim skóla eru nú um 500 nem-
endur.
-JBH.
Vélaverkstæði J. Hinríkssonar:
Toghlerar til þriggja
heimsálfa samdægurs
Islenskt fyrirtæki sendi í lok síðast-
liðins mánaöar toghlera út til þriggja
heimsálfa á sama degi. Vélaverkstæð-
iö J. Hinriksson hf. sendi þann 30. sept-
ember toghlera til Alabama í Banda-
ríkjunum, Grimsby í Englandi og til
ýmissa fiskibæja í Ástralíu.
Vélaverkstæðið framleiðir mikið af
svokölluðum Poly-lS toghlerum og
hefur útflutningur þeirra farið vax-
andi. I frétt frá fyrirtækinu segir að
toghleramir séu þekktir fyrir hve vel
þeir haldi skverunarhæfileikum sínum
þótt mikili fiskur sé i trolli. Ennfremur
séu þeir léttir í togi og upphífingu og
því orkusparandi. -KMU.
VOLVO 244 DL '82
ekinn 15.000, beinsk. Verð kr.
370.000.
VOLVO 345 DL '82
ekinn 11.000, sjálfsk. Verð kr.
285.000.
VOLVO 245 GL'82
ekinn 26.000, sjálfsk. Verð kr.
480.000.
VOLVO 244 GL '80
ekinn 46.000, beinsk. Verð kr.
310.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 13-17.
VOIVOSALURINN
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200
VOLVO 245 GL '80
ekinn 58.000, sjálfsk. Verð kr.
340.000.
VOLVO 265 GL '78
ekinn 105.000, sjálfsk. Verð kr.
320.000.
VOLVO 244 GL '79
ekinn 54.000, beinsk. Verð kr.
260.000.
VOLVO 244 DL '78
ekinn 79.000, beinsk. Verð kr.
220.000.