Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 1
DAGBLAOIЗVÍSIR 250. TBL.—73. og9. ÁRG.— ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983. DV-mynd: GVA. Þriggja saknað eftir sjóslys á Breiðafirði Gunnar Jenssen, hinn 29 ára gamli skipstjóri é Haferninum, er hár kominn út úr þyriu landhelgisgseskmnar, TF-RÁN, um miðfan dog í gær, á iaið á sjúkrahúsið. DV-mynd: Magnús V. Jónsson. —þremur bjargað af skerjum um borð í Landhelgisgæsluþyrlu. Sjá nánari fréttir og myndir ábls. 2,3og baksíðu Þríggja skipverja er saknaö af Stykkishólmsbátnum Hafeminum SH 122, sem sökk laust eftir klukkan tvö í gær á Bráðafirði, við Bjameyjar. Sex manna áhöfn var á bátnum og b jörguð- ust hinir skipverjamir þrír um borð í þyrlu landhelgisgæslunnar TF-RAN. Þeir voru síðan fluttir á sjúkrahúsið í Stykkishólmi. Haföminn var á skelfiskveiðum. Báturinn var á leið til lands er hann skyndilega fór á hliðina i slæmri vest- anátt. Brotsjór fylgdi í kjölfaríð og reyndist ekki unnt að keyra bátinn upp úr öldunni. Skipverjamir þrír sem björguðust komust allir á hlið stýrishússins. Þeim tókst aö koma öðrum gúmbáti skipsins út en misstu hann frá skipinu og þurftu því að synda út í hann. Gúmbátinn rak upp í Bjameyjamar. Tveir þeirra komust á land á vestasta skeri eyjanna, svokölluðu Lónsskeri. Þar biðu þeir blautir og hraktir í um tvær klukkustundir og gekk brimið yfir þá. Sá þriðji komst á land i einni eyj- anna, Lóninu, sem er i nokkur hundmð metra fjarlægðfrá skerinu. Þeir sem saknað er voru allir frammi i lúkar skipsins þegar það fór á hliðina. Þeir komust upp en enginn náði að komast í gúmbátinn. Leit að þeim i gær bar ekki árangur og verður þeirra leitað áf ram i dag. Þrír aðrir Stykkishólmsbátar voru nálægt Hafeminum þegar hann sökk. Einn þeirra, Þórsnesið, var aðeins um mílu frá. Hann kom fyrstur á vett- vang en ekkert var hægt að gera vegna mikils brims við eyjamar. Skipstjórinn á Þórsnesi tilkynnti strax um slysið til hafnarvaröaríns í Stykkishólmi, og baö um að þyrla yröi send á vettvang. Haförninn var 88 tonna stálskip, smíöaö í Austur-Þýskalandi árið 1959. Það var í eigu útgerðarfyrirtækisins Rækjuness í StykkishólmL Leit aö mönnunum þremúr hófst að nýju í birtingu í morgun en hafði engan árangur borið er DV fór í prentun. -JGH. Ragnar Gíslason fer hir 1 sjúkrabif- reið, sem flutti þá skipsfóiaga á sjúkrahúsið i Stykkishólmi. DV-mynd: Magnús F. Jónsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.