Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Blaðsíða 2
2 DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NÖVEMBER1983. „BÁTURINN TÓK MIKLA VELTU OG NÁÐIEKKI AÐ RÉnA SIG UPP” — sagði Gunnar Jenssen, skipst jórínn á Haferni SH122 Guirnar Jenssen: „t kjölíarið kom brot og það gerði útslagið, ekki var h«gt að. keyra bátinn upp.” DV-mynd GVA. „Þetta gerðist ótrúlega snöggt. Báturinn tók skyndilega mikla veltu og mikinn sjó inn á sig. Fullir skelja- kassar voru út við lunninguna og því nóði báturinn ekki að rétta sig upp aftur. I kjölfarið kom brot og það gerði útslagiö, ekki var hægt að keyra bátinn upp.” Þetta sagði Gunnar Jenssen, skips- stjórinn á Hafemi SH 122, í samtali við DV á s júkrahúsinu í Stykkishólmi um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Hann er 29 ára að aldri. „Eg var í brúnni ásamt Reyni þegar báturinn lagðist á hliðina,” sagöi Gunnar. „Við komumst báöir út og upp á hUö stýrishússins og náðum að koma öðrum gúmbátnum út Hinn var í kafi hinum megin. Við misstum gúmbátinn frá okkur og lentum í sjónum um leið og bátur- inn hvarf í hafið. Okkur tókst ásamt Pétri að synda aö gúmbátnum og komast í hann. Við skutum síðan upp blysum en Þórsnesið, sem var skammt frá okkur, gat ekkert að gert, við vorum komnir svo nálægt landi. Eg og Pétur komumst síöan á land í Lónsskeri, en Ragnar hélt áfram með gúmbátnum og komst á land á Lóni, eyjuskammtfrá.” Gunnar sagði að þeir hefðu verið búnir aö fá 6 tonn af skel og hefðu verið á leið í land þegar báturinn sökk. -JGH Pétur Sigurðsson vélstjórl: „Þaut upp gangtnn eins fljótt og ég komst.” DV-mynd: GVA „Var í vélar- rúminu að kíkja á olíuna” — sagði Pétur Sigurðsson vélstjóri „Eg var niðri í vélarrúmi að fylgj- ast með olíunni, þegar báturinn fór á hliðina,” sagði Pétur Sigurðsson, 21 árs vélstjóri á Haferninum. „Eg þaut strax upp ganginn eins fljótt og ég komst, en það var þeim megin sem báturinn var ekki í kafi. Nokkúr sjór var þá kominn í brúna en ég komst út og upp á brúarhliðina til þeirra Ragnars og Gunnars. ” „Okkur tókst síðan að synda út í gúmbátinn, sem var farinn að reka fró.ogkomastíhann.” -jgh Skipverjarnlr þrír á Haferai SH122 í sjúkrahúsinu i Stykkishólmi í gær- kvöldi. Talið fró vinstri: Gunnar Jenssen skipstjóri, Ragnar Gíslason stýrimaður og Pétur Sigurðsson vél- stjóri. DV-mynd: GVA Flugst jóri TF-Ránar: „Þyrian sannaði enn ágæti sitt” „Þetta gekk eins vel og hægt var að búast við og þyrlan sannaði enn einu sinni ágæti sitt í erfiðum: veðrum,” sagði Páll Halldórsson, flugstjóri Landhelgisgæsluþyrl- unnar TF-RAN, er hún kom til Reykjavíkur í gærkvöldi að loknu björgunarstarfinu. „Það tók okkur um klukkustund að komast á slysstaðinn en við þurftum að fara út fyrir jökul. Við vorum komnir í loftið um kl. 15.10,” sagði Páll. Með Páli í þyrlunni var Benóný Ásgrímsson flugmaöur og stýri- mennimir Friðgeir Olgeirsson og Krístján Þ. Jónsson. „Þaö var búið að segja okkur að þaö sæjust menn í eyjum og skerjum Haförn SH122 frá Stykkishólmi. Báturinn var 88 lesta stálskip, smíð- aður í Austur-Þýskalandi árið 1955. Skipið var í eigu Rækjuness hf. í Stykkishólml og var gert út á skel. DV-mynd Gylfi Ægisson. en það var allt mjög óljóst. Við höfð- um samband við bát á leitarsvæöinu og hann gat sagt okkur að tveir menn væru á skeri, Lónsskeri, rétt vestan við Bjameyjar. Okkur var jafnframt sagt að það flæddi yfir skerið. Við fundum mennina strax og notuðum körfu til þess að bjarga þeim um borð í þyrluna. Þeir voru það hressir að þeir komust s jálf ir í körfuna. Við höfðum rekið augun í gúmbát uppi í fjöru og fórum beint þangað. Það var ekki hægt að lenda alveg við hann svo við lentum í móa rétt hjá. Stýrimennimir fóru út og þar var einn maður. Hann var einna þrekað- astur en samt ekki svo að við töldum allt í lagi aö fára beint í leit, enda timinn dýrmætur. Við héldum leit- inni áfram meðan eldsneyti dugði. Þá var vamarliðsþyrla komin á staö- inn. Það sást ekkert af bátnum annað en brak sem var að komá upp.” S/JH Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar komin úr björgunarfluginu. Frá vinstri era Friðgeir Olgeirsson stýrimaður, Krístján Þ. Jónsson stýrimaður, Benóný Ásgrimsson flugmaður og Páll Halldórsson flugstjóri. DV-mynd S.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.