Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Page 4
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983.
1
Ragnar heldur fyrirlestur sinn i Fólagsstofnun sl. fimmtudag: — Ekki einvörðungu áhugl i kynilfi fatiaöra heldur einnig og ekkisfður á kynlffi
almennt. DV-mynd E.Ó.
Guðmundur Einarsson:
„Hverfermeð
löggjafar-
valdið?”
„Eg vil vekja athygli á furöulegum
vinnubrögöum í tengslum við umræöur
um þingræði og stöðu þingsins gagn-
vart ríkisstjóm og embættismönnum,”
sagði Guðmundur Einarsson þingmað-
ur Bandalags jafnaðarmanna er hann
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í neðri
deild Alþingis í gær.
Þingmaöurinn gerði aö umtalsefni
auglýsingu frá Veödeild Búnaðar-
bankans þess efnis að ríkisstjómin
áformaði að leggja fram frumvarp til
laga um breytingar á lausaskuldum
bænda í föst lán og skyldu ménn senda
umsóknir til Veödeildar yrði frum-
varpiðsamþykkt.
„Telur landbúnaðarráðherra
eðlilegt að auglýst sé eftir umsóknum
um lán sem eiga að byggjast á frum-
varpi sem ekki hefur verið samið, lagt
fram eða rætt á hinu háa Alþingi?”
sagði Guðmundur. Benti hann á að
brýnt væri fyrir ungum þingmönnum
aö virða reglur þingsins um klæðaburö
og fleira og sagði: ,dín um leið óska ég
þess jakkaklæddur og bindisskrýddur
að ríkisstjóm og bankar umgangist Al-
þingi meö þaö í huga aö samkvæmt
hefð, sem er eldri en Kórónaföt, fer Al-
þingi með löggjaf arvaldið. ’'
H.Þ.
Mörg hundruð manns
hlýddu á kynlífsræðu
— fullt út úr dyrum þegar Ragnar Gunnarsson flutti
fynrlestur sinn um kynlíf f atlaðra
Eins og áskrifendum DV og
fleirum mun kunnugt birtist fyrir
skömmu afar opinskátt viötal í blaö-
inu við Ragnar Gunnarsson sálfræð-
ing i tilefni af ráðstefnu og siðar
fýrirlestri Ragnars í Félagsstofnun
stúdenta um kynlíf fatlaöra. Sjálfur
er Ragnar handalaus.
„Eg hafði fengið til ráöstöfunar lít-
ið fundarherbergi í Félagsstofnun-
inni til fyrirlestrahaldsins en eftir aö
viðtalið við mig hafði birst i DV var
ljóst að áhugi fólks á efninu var
meiri en svo að smáskonsa dygði,”
sagði Ragnar eftir fyrirlesturinn.
„Því varö úr að ég flutti mig niður í
aðalsalinn og þar var svo fullt út úr
dyrum að margir urðu að standa og
telst mér til að á mig hafi hlýtt á
þriðja hundraö manns.”
Ekki nóg með þaö. Strax daginn
eftir var Ragnar beöinn um að halda
sams konar fyrirlestur í Kópavogi og
reyndar komu óskir um slíkt víðs
vegar að af landinu. „Siminn hjá
mér stoppaði varla eftir að DV var
komið á götuna og var þar í meiri-
hluta fólk sem vildi þakka mér fyrir
að hafa tæpt á jafnviökvæmu máli á
þann hátt sem gert var.” Ragnar
hefði getað ferðast um landiö þvert
og endilangt með fyrirlestur sinn,
slík var eftirspumin en skyldan
kallaöi, störf erlendis biðu og hélt
hann utan sl. sunnudag.
„Eg þarf að fara að kenna á Fjóni í
Danmörku og halda fyrirlestra um
fólk á stofnunum sem flyst aftur út í
almennt umhverfi,” sagði Ragnar,
„svo bíða mín einnig ýmis ráðgjafar-
störf.”
Ragnar sagði augljóst, miðað við
undirtektir, að það væri ekki ein-
vörðungu áhugi manna á kynlifi fatl-
aðra sem hér væri um að ræða heldur
— segirRagiurGurm-
arsson, sem er
handalaus og hefur
lokið sitfrmðinimi
fri dönskum og
ftöiskum hiskólum
GOÐU KYNUFl”
Heldurfyrirlestur
um kynbf fatlaðra
ÍFélagsstofnun
stúdenta 6 .
fimmtudag:
— Síminn hjá Ragnari stoppaði varia eftir að DV var komið 6 götuna.
einnig og ekki síður áhugi fólks á
kynlífi almennt. Þau mál væru ber-
sýnilega allt of lítið rædd. Vonaðist
Ragnar til að geta skroppiö heim
næsta sumar og tekið upp þráðinn að
nýju.
A meðan verða Islendingar að
reyna að ráöa fram úr þessum mál-
um sjálfir — hjálparlaust.
-EIR.
X
í dag mælir Pagfari ____________I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari
Með kveðju frá Dagfara
Ekld má láta deigan síga þótt
Svarthöfðl hafi teklð sér frí frá því að
stríða máttarstólpunum úr skúma-
skoti sínu. Heiðarlegt og vandað blað
má ekkl undlr nelnum kringum-
stæðum leggja niður þá skemmtan
að kveðast á við húmorlstana i þjóð-
félaginu, sérstaklega ekki þá sem
kveinka sér undan háðinu þegar allir
geta hlegið nema þeir sjálfir. Blaðið
má ekki gefast upp i skæruhernaði
sinum gegn alvörunni.
Hvað haldið þlð til að mynda að
sjónvarpið hefði sýnt margar
sænskar vandamálamyndir ef ekki
hefði notið einlægrar aðdáunar
Svarthöfða á velferðinni í Svíariki?
Eða ímyndlð ykkur hvernig frétta-
stofa útvarpslns væri, ef Svarthöfði
hefði ekki þekkt sauðlna frá
höfrunum á þeim bæ!
Slgrar Svarthöfða hafa þó verið
hvað mestir i málefnum land-
búnaðarins, á svlði llsta og bók-
mennta. Yflrleitt hefur honum teklst
vel í þvi að hleypa þar öllu i bál og
brand.
Hann hefur skilgreint fyrlr okkur
furðuverkin í Framsókn og
straumana hjá íhaldlnu og klíkurnar
hjá allaballanum. Svavar hefur
verið í miklu uppáhaldl og yfirleitt
hafa pólitisk atlot Svarthöfða verið
þelm verst sem hann unnl mest.
Stíllinn hefur verið listilegur og
skepnuskapurinn dropið úr hverju
pennastrikl. Engin ástæða er tll að
draga úr meinfýsninni, en stilllnn
verður að ráðast. Það vex því miður
ekki blástör í hverjum firði.
Dagfarl mun taka ástfóstrl við
sömu húmoristana og Svarthöfði
lagði lag sitt við. Landbúnaðarfor-
kólfa, kommasprautur, ihaldið í
Sjálfstæðisflokknum og afturhaldið i
Framsókn, allt eftlr því hversu vel
þeir liggja við höggl.
Dagfari mun fylgjast með _
Ragnari Arnalds í New York,
Stelngrimi á Blazernum og nýjum
formanni í Sjálfstæðisflokknum þeg-
ar hann klæðist nýjum sparifötum
kelsarans. Dagfari mun minna á
allar góðar dyggðir, lelkflmina á
morgnana og bænirnar á kvöldln.
Hann mun fylgjast með fylliríum og
framhjáhöldum og kristilegum
hugvekjum Morgunblaðsins, og þá
sérstaklega þeim sem Styrmlr skrlf-
ar um flokklnn sinn eftir Krlst. Dag-
fari mun taka upp hanskann fyrir
lítilmagnann , skulduga útgerðar-
menn og vanmetna stjórnmála-
menn. Menningin mun fá umfjöllun á
mannamáli og er það til tllbreyting-
ar fyrir almenning. Er beðist af-
sökunar á því. Að öðru leyti verður
almenningi ekki blandað i skrif Dag-
fara, en fyrst og fremst teknar fyrir
þær bjargvættir landslns, sem eru
fyrir utan og ofan sauðsvartan al-
múgann.
Er þar helst að nefna stórhugana
hjá Sölumiðstöðinni, Seðlabankan-
um, Framleiðsluráði land-
búnaðarins og svo að sjálfsögðu rit-
stjórnarskrifstofur Alþýðublaðs og
Tíma. Þessir aðilar þurfa alllr á
blaðafulltrúa að halda, rétt elns og
Sjálfstæðisflokkurinn sem ætlar að
kjósa sér einn um næstu helgi að
sögn málgagnsins. Dagfari mun
hlaupa í skarðlð þegar á þarf að
halda.
Yfirleitt verður enginn tslands-
maður óhultur um að vera á-
varpaður vlð hátiðleg tækifærl.
Verður heldur ekki betur séð en að
öfugmæli tíðkist heist i afmælis-
greinum og tækifærlsræðum. Dag-
fari mun flytja sinar tækifærlsræður
á prenti.
Þelm mun verða haldið úti að
mlnnsta kosti til næstu áramóta og
lengur ef Dagfara tekst að losa sig
undan þeirrl niu ára gömlu kvöð að
skrifa bók sina um Sólon tslandus.
Dagfari.