Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Síða 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983. Útlönd Útlönd Útlönd c Útlönd Kyrrö komin á Grenada og heimamenn hjálpa til —12 borgarar féllu í loftárás á geð- spítala vegna misskilnings. Sjónarvott- arfundnirað morðinuá Maurice Bishop Síöustu bandarísku landgöngusveit- irnar, sem þátt tóku í innrásinni á Grenada, halda þaöan brott í dag en fallhb'faherdeild leysir þær af hólmi. Hinir halda áfram til friðargæslu í Libanon, eins og þeim haföi veriö ætlaö þegar innrásin var ákveðin í skynd- ingu. Aöalverk hemámsliðsins þessa dagana er aö leita uppi leifar af þjóö- varðliöi Grenada og hópa Kúbumanna, sem veitt höfðu innrásarliöinu viönám. Nú liggur fyrir aö innrásarliöiö hafi misst 18 menn, eins er saknað og 86 særöust. Bandarísk yfirvöld hafa játaö að fyrir mistök hafi loftárás veriö gerð á geðveikraspitalala í höfuöborginni St. George en úr næsta nágrenni viö hann haföi verið haldiö uppi fallbyssuskot- hriö á bústað landstjórans breska. Talsmaöur innrásarliösins hélt að fimmtiu sjúklingar og starfsmenn spítalans, sem var ómerktur, heföu látiölífið. Blaðamenn eru komnir til Grenada og sagöi forstöðumaöur geðspítalans þeim aö tólf manns heföu látið lífið í árásinni á spítalann. Það hefur nú verið staöfest af yfir- stjórn Bandaríkjahers að Hudson Austin hershöfðingi og æðsti maður herráösins, sem tók völd eftir bylt- inguna á Grenada, hafi verið tekinn til fanga. Var þaö sagt gert til þess aö tryggja öryggi hans sjálfs vegna óvildarlanda hans. Obreyttir borgarar á Grrenada aöstoða innrásarliöiö við aö leita uppi menn úr byltingarhernum og vísa á vopnabirðir. Blaðamenn, sem komnir eru til Grenada, segja aö íbúar höfuö- Kúbumenn, teknir til fanga af innrásarliðinu á Grenada, bíða á aðalflugvellinum á meðan ákveðið er hvað af þeim skuli gera. borgarinnar virðist fagna vel innrásarliöinu. Fundist hafa sjónarvottar að því þegar Maurice Bishop, fyerum for- sætisráðherra Grenada, var drepinn fyrir nær tveim vikum. Segja þeir að stuöningsmenn hans hafi komið aö honum á nærbuxunum, bundnum á höndum viö rúm sitt í stofufangelsinu. Hafi þeir leyst hann og haldiö með hann út á götu og áleiðis til Ruperts- virkis en þaðan hafi þá komiö út þrír herbílar og hafiö skothríð á þvöguna. Byltingaryfirvöld héldu því fram aö 17 manns heföu fallið í bardaga sem •brotist heföi út vegna árásar Bishops og manna hans. Auk Bishops féllu þrír meöráöherrar úr fyrri stjóm hans, tveir verkalýðsleiðtogar og fleira fóik. Sjónarvottar halda aö miklu fleiri hafi failið. Fréttamenn segja að höfuðborgin, St. George, beri sáralitil merki innrásarinnar. Talsmenn Bandaríkjastjórnar segja aö Bandaríkin hafi engan áhuga á aö setja upp herstöö á Grenada og muni veröa þaðan á brott um leið og ný stjóm hefur komiö þar undir sig fótun- um. 599 bandarískir ríkisborgarar sem vom á Grenada og 121 útlendingur til viðbótar hafa verið fluttir burt af eyj- unni eftir innrásina. Bandaríkin: JARDSKJÁLFTIFÆRIR FJALL McKay-bæ en íbúar þar eru 300 talsins. Nærri því hvert einasta hús í bænum skemmdist í jarðsk jálftanum. Jarðskjálftinn mældist 6,9 stig á' Richters-kvaröa og fundu menn fyrir honum í sjö ríkjum Bandaríkjanna og í Kanada. Tvö skólaböm létust er vegg- ur hrundi yfir þau. Taliö er að skemmdir vegna skjálftans hafi numið andviröi 25 milljóna dollara. Kjarnorkuver reynist lekt Kanadískt kjamorkuver í Ontaríó, sem tekið var i notkun fyrir sex mán- uðum, er talið hafa lekið geislavirkum vökva og hefur því nú verið lokað. Lek- inn fannst í kælikerf i kjamorkuversins og er talið aö um 17 lítrar af þunga- vatni hafa lekið út í Ontaríóvatn. Talsmaöur orkuversins segir enga ástæðu til ótta og að lífi og heilsu manna umhverfis hafi aldrei verið stefnt í voða. Viðgerðarmenn leita nú að þeim stað þar sem lekinn varð en alls er um 2500 rörbúta að ræða sem gætu hafa lekið. Hver þeirra er á stærð við litla fingur fullorðins karlmanns. Græningjar á fundi með Erich Honecker Bandarískir hermenn úr innrásarliðinu á Grenada hvílast en mesta viðnámið hefur nú verið brotlð á bak aftur. Aðalverkefnlð þessa dagna er að lelta uppi leif- ar þjóðvarðliðsins og síðustu hópa Kúbumanna. Miklir jarðskjálftakippir sem gengu yfir Idahoríki í Bandaríkj unum urðu til þess að nýtt stööuvatn myndaðist og kunna að hafa valdið því að fjall færð- ist úr staö. Jarðfræöingar segja að Borah-fjall, sem er hæsta fjall Idaho, 3956 metrar á hæð, hafi hækkað um fimm metra. ,,Við erum ekki vissir um það enn hvort f jallið hefur hækkað eða dalurinn lækkað,” sagði einn jaröfræðinganna i blaöaviötali. Nýtt stöðuvatn hefur myndast nærri Sjö félagar í flokki „græningja” í Vestur-Þýskalandi hittu að máli Erich Honecker, leiðtoga Austur-Þýska- lands, í gær i viöleitni til þess aö fá Honecker til að undirrita skjal með heiti um að stuðla að einhliða afvopn- un. Petra Kelly, einn af talsmönnum græningja, sagði, að sjömenningamir hefðu lagt fyrir Honecker „persónu- legan friðarsáttmála,” sem þau sjö höföu öll undirrítað á fundinum með Honecker. Samkvæmt honum gengust þau undir aö fordæma notkun valds hvert gegn ööru og hétu því að líta aldrei á hvert annað sem fjandmenn og starfa að einhiiða afvopnun í eigin heimalöndum. V-þýska sjónvarpið sagði að Honeck- er hefði undirritað hluta samningsins en látið undir höfuð leggjast að undir- rita þann hluta sem kvaö á um einhliöa afvopnun. Græningjar hafa verið í fylkingar- brjósti þeirrar hreyfingar I V-Þýska- landi, sem vill láta stöðva uppsetningu Persing-2 og Cruise-eldflauganna I Evrópu. Þeir efndu til mótmælafundar í Moskvu i síðustu viku til stuönings kröfum um bann við kjarnorkuvopn- um. Fundurinn með Honecker í gær hafði verið ákveöinn eftir að Petra Keliy og tveir aðrir græningjar voru handteknir á útifriðarhreyfingar í A-Beriín í maí síðasta vor. Honecker hafði þá harmað að hafa ekki fengið tækifæri til aö hitta þau. Græningjarnir sögðust hafa sýnt Honecker lista yfir 30 fangelsaöa fé- laga úr friðarhreyfingunni a-þýsku og hafði Honecker lofaö að einum þeirra skyldi sleppt og mál annars tekið til endurskoðunar. Mótmæli við herstöð Andstæðingar kjamorkuvopna sem hafa staðið fyrir setuverkfalli við bandarísku herstööina við Waldeheide í V-Þýskalandi hyggj- ast nú færa mótmæli sin til herbúða Bandaríkjamanna við Neckarsulm. Fyrir tveim dögum hófu mótmælendur fyrirhugaðar fjögurra daga mótmælaaðgerðir viö Waldeheide herstöðina, en mót- mælendur segja aö þar eigi aö koma fyrir Pershing-2 eldflaugum, náist ekki samkomulag i viðræðun- umíGenf. Bandaríkjamönnum ekki treystandi Sovésk dagblöð hafa mjög f jallað um innrás Bandaríkjanna á Grenada og hafa leitt að því rök að þjóðir V-Evrópu ættu að hugsa sig um tvisvar áöur en þær treystu Reagan Bandaríkjafor- seta til þess aö stjóma eldflaugabúnaöi sem staðsettur er í Evrópu. Hin opinbera fréttastofa Sovétrfkjanna, Tass, vitnaði til Lundúnablaðsins Evening Standard sem spurði í fyrirsögn: „Er Reagan treystandi?” og sagði að þetta væru spuming sem vestræn ríki ættu að svara áður en meðaldrægu eld- flaugarnar verða settar upp. „Hin ástæðulausa og svivirðilega árás Bandaríkjamanna á Grenada sýnir hvernig Bandaríkjamenn em tilbúnir að lita framhjá bandamönnum sinum og láta þá ekki einu sinni vita um ráða- gerðir sínar,” segir í frétt frá Tass.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.