Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Síða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR L NOVEMBER1983.
9
Útlönd Útlönd
Um 50 þorp
eyðilögðust
í jarð-
skjálftanum
— Dánartalan komin yfir 1200 en yfir
20 þúsund misstu heimili sfn
Björgunarsveitir hafa fundiö 1.226
látna i rústum þorpanna sem stór-
skemmdust í jaröskjálftanum á sunnu-
daginn. Vitað er um nálægt 500 manns
sem hlotið hafa meiösli.
Björgunarstarfi er enn haldið áfram
í þessum afskekktu fjallabyggðum í
norðurhluta Tyrklands og kvíða mnn
því að dánartalan eigi enn eftir að
hækka.
Aö sumum þorpunum sem hart hafa
oröið úti verður ekki komist öðruvísi en
fótgangandi. Stöðugar rigningar eða
snjókoma tálma björgunar- og leitar-
starf. Aurskriður hafa rofið vegasam-
band sums staöar. Ofært er vegna
snjóa annars staöar. Víða hafa fallnir
leirkofarnir breyst í aur og leðju.
Þaö er talið að yfir 20 þúsund manns
hafi misst heimili sín í jarðskjálft-
anum. Björgunarsveitir einbeita sér
að þvi að koma þúsundum tjalda,
ábreiöna, færanlegum bráðabirgða-
skýlum með eldhúsi, ásamt matvælum
til nauðstaddra.
Beltabílar á vegum hersins hafa
verið fengnir til þess að flytja hjálpar-
gögn til þorpanna þar sem hitastig
hefur veriö nærri frostmarki. — Þaö er
taliö að um 50 þorp á 100 ferkilómetra
svæði, austan og norðan við bæinn
Erzurum, hafi eyöilagst í skjálftanum.
I sumum þeirra eyðilögðust allt upp í
70% húsanna. Um helmingur búfén-
aðar á þessum slóöum hefur drepist.
Bretland:
AIDS-tilfell-
um fjölgar
Tíu manns hafa látist í Bretlandi
af völdum hins dularfulla sjúk-
dóms AIDS og einnig hefur tilfell-
um af sjúkdómnum fjölgað mjög
ört nýlega, að því-er segir í opin-
berri skýrslu um sjúkdóminn. I
september sl. fundust átta ný til-
felli og f jölgaði við það þekktum til-
fellum upp í 24 á Bretlandi.
AIDS eyðileggur sjúkdóms-
varnarkerfi likamans. Sjúkdómur-
inn fannst fyrst í Bandaríkjunum,
þar sem tæplega þúsund sjúklingar
hafa látist af völdum hans. Tengja
hefur mátt flest tilfelli í Bretlandi
viö Bandaríkin til þessa. Ekki er
vitaö nákvæmlega hvemig sjúk-
dómurinn berst manna á milli.
Mugabe læt-
ur handtaka
Muzorewa
Abel Muzorewa biskup, fyrrum for-
sætisráðherra, hefur verið tekinn fast-
ur, að sögn innanríkisráðherra
Zimbabwe. Var ósagt látið af hvaöa
ástæöum.
Onefndur maður úr fjölskyldu
Mozorewa, sem óttast um sig ef nafn
hans verður birt, sagði fréttamanni
Reuters að biskupinn hefði verið tek-
inn á heimili sínu í noröurhverfi
Borrowdale í Harare og færður á aöal-
lögreglustöð borgarinnar.
Ættmennum hafði ekki verið leyft að
hafa samband viö biskupinn.
Muzorewa bakaði sér reiði stjóm-
valda í síðasta mánuði þegar haft var
eftir honum á ferðalagi í Israel, að
Zimbabwe ætti að koma á diplómatísk-
um tengslum við gyðingaríkið til að
njóta góðs af tækni- og landbúnaðar-
snilli lsraela. — Robert Mugabe for-
sætisráöherra sakaöi Muzorewa um að
starfa með Israel aö því aö magna upp
innanlandsófrið í Zimbabwe.
Upplýsingamálaráðherrann sagði að
Zimbabwe væri ógnað af þrenningunni
Israel, S-Afríku og hvítum í Ródesíu.
Á blaðamannafundi á laugardaginn
bar Muzorewa gramur á móti því aö
hann stæði í samsæri gegn stjóminni.
Sakaði hann stjómvöld um pólitískar
ofsóknir og kúgun sem hann sagði jafn-
slæma og þegar hvítir hefðu ráöið í
Zimbabwe (sem áður hét Ródesia).
Muzorewa var eitt ár forsætis-
ráöherra i Ródesiu, áður en landiö
hlaut formlegt sjálfstæði 1980. Ian
Smith, fyrrum forsætisráðherra hvítra,
kom Muzorewa til embættis í von um
að binda enda á skæruhemað blökku-
manna i landinu með samningum.
Nýir*
eigendur
méö góða
þjónustu.
Reynið
viðskiptin1
ijSn^'W
ALL/R
BÍLAR
TEKN/R
/NN
VIÐ EIGUM
VETRARDEKK
UNDIR
BÍLINN ÞINN!
Höfum mikið úrval af nýjum og sóluðum hjól-
börðum undir flestar gerðir fólksbifreiða.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR.
HJÓLBARÐA-
VERKSTÆÐI
SIGURJÓNS
IHÁTÚNI 2A-SÍM115508
Opið frá ki. 8—21 — opið íhádeginu — um heigar — laugardaga kl. 9-
19 — sunnudaga kl. 10—12 og 1—19.
Gerðu jólainnkaupin
beint frá London
Verslið hagkvæmt!
>Zl rólegheitum heima getur þú valid jólagjafirnar úr nœr 10004
blaðsídna vörulista okkar.
% Þar finnur þú allt sem hugurinn girnist og margt á frábœru .
^verði. '
jf °9 þú fœrð vörurnar örugglega fgrir jól, því afgreiðslufrestur
9 pantana er aðeins ca 3 vikur.
^jfHringdu og við sendum þér Grattan vörulistann samdœgurs
r (kr. 120+ burðargjald).
Pantanasímar: 36020 og 81347.
Opið til kl. 10.00 á kvöldin.