Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 11
11
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983.
„Ágætt aö anda aö
sér nýju lofti”
— Eysteinn Helgason framkvæmdastjóri SL, fer
vestur um haf fyrir SÍS íbyrjun næsta árs
Eysteinn Helgason, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferöa—Landsýnar,
heldur vestur um haf í byrjun næsta
árs. Ferðinni er heitið til aðalstöðva
Iceiand Seafood Corporation í
Harrisburg þar sem hann mun hafa að-
seturíeittár.
,,Eg er búinn aö vera í 6 ár, fyrst hjá
Samvinnuferðum og síðan Samvinnu-
feröum—Landsýn, og mér þótti tími til
kominn að breyta um umhverfi og
víkka sjóndeildarhringinn. Hér hef ég
náö flestum þeim markmiðum sem ég
setti mér og þegar mér bauðst tækifæri
til að fara vestur og vinna að markaðs-
og kynningarmálum fyrir SIS tók ég
því,” sagði Eysteinn í samtali við DV.
Hann sagði að hjá Iceland Seafood
gæfist sér kostur á að kynnast vel
reknu fyrirtæki á bandariskan mæli-
kvarða, auk þess sem hann myndi
kanna markaðshorfur fyrir aðrar af-
urðir Sambandsins.
— Hvernig leggst þetta í þig?
„Mjög vel. Eg er mjög bjartsýnn á
að ég geti orðið að gagni og að þetta
verði árangursríkt.”
— Varstu kannski farinn að staðna?
„Eg segi það ekki, en það er æskilegt
að menn endumýi sig. Þaö er ágætt að
anda aö sér nýju loftl”
— Muntu sakna ferðabransans?
„Ég held að þaö sé nokkuö ljóst, en
það er sárabót að ég stefni að því að
koma aftur eftir eitt ár og taka þráðinn
uppaðnýju.”
— En er samkeppnin sem þar ríkir
ekki dálítið þreytandi?
„Hún er mjög mikil, en skemmtileg,
og hvati til frekari átaka og dáða.”
Eysteinn er mikill áhugamaður um
íþróttir. Hann var formaður hand-
knattleiksdeildar Víkings um nokkurt
skeið og nú leikur hann golf á sumrin
en knattspymu á vetuma, á sunnudög-
um. Enda heitir félag hans Sunday
United. Helsti andstæöingur þess er
Atthagafélagið og milli þeirra em
miklar hildir háðar. En hvemig skyldi
Sunday United ganga í þeirri viðureign?
,,Staðan er jöfn núna. Við unnum í
fyrra og stefnum ótrauðir að sigri í
vor. Eg vona bara að f jarvistir mínar
verði frekar til að herða félaga mina
en hitt,” sagði Eysteinn.
Það kemur þá í hlut Gunnars Steins
Pálssonar aö stappa stálinu i sunnu-
dagsmennina.
Eysteinn Helgason er kvæntur
Kristinu Rútsdóttur og þau eiga þrjú
„Það er Ijóst að óg mun sakna ferðabransans, en óg stefni að þviað koma
aftureftirár,"segirEysteinn Heigason. DV-mynd GVA.
Flugleiðir
til Aþenu?
Flugleiðir hafa fengið beiðni um að forstjóri Cargolux, hefur rætt við Flug-
taka að sér flug milli Aþenu og New leiðir um þetta mál. Flugleiðir hafa
Vork fyrir bandarískt flugfélag, Air ákveðiðaðkannatilboðiðnánar.
National. Um er að ræða eitt flug í viku
á DC—8 þotu og hugsanlega milli- Air National er í eigu írsku Guinnes-
lendingu i Luxemburg. samsteypunnar. Félagið hefur flogið
Einn af forráðamönnum bandariska milli New York og Aþenu um Briissel.
flugfélagsins, Einar Olafsson, áður -KMU.
Nýr bátur
til Flateyrar
Flateyringar fengu nýjan bát,
Ásgeir Torfason IS 96, í sumar. Ásgeir
Torfason er 240 lesta bátur og hét áður
Dalaröst, keyptur af Glettingi í
Þorlákshöfn.
Fréttaritari DV á Flateyri ræddi
við Gunnar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóra Snæfells, eiganda hins
nýja báts. Hann sagöi aö báturinn
hefði komiö til Flateyrar 5. ágúst sl.
Hann hefði verið fyrsta mánuðinn á
trolli en væri nú byr jaður á línu.
Gunnar sagöi aö útgerð bátsins væri
þung og staðan erfið eins og alls
staðar. Hann sagðist þó vera hóflega
bjartsýnn á það að dæmið gengi upp.
-Reynir Flateyri.
Gleymdu þér í nokkra daga
íGlasgow. Frábær helgarfenð
fyrir aðeins 8.202." krónur
Borg í næsta nágrenni gerðar. í Glasgow eru fjölmargar verslunargötur,
Þú átt kost á ódýrri og ánægjulegri skemmtiferð
til Glasgow. Ef til vill þeirri bestu, sem þú hefur
farið hingað til.
margar hverjar þeirra eru göngugötur með fal-
legum blómaskreytingum og nægum tækifærum
til að tylla sér niður og njóta umhverfisins.
Eftir tæplega 2ja klukkustunda flug lendir Flug-
leiðaþotan á flugvellinum rétt fyrir utan Glasgow
og þú ert kominn inn í eina af skemmtilegustu
borgum Evrópu áður en þú veist af.
Sjötíu skemmtigarðar
í borginni við ána
Það hefur átt sér stað gjörbylting í Glasgow.
Borgin er hrein, lífleg og nýtískuleg. Um leið
heldur hún hinu gamla og rótgróna yfirbragði
með byggingarstíl Viktoríutímabilsins, stórkost-
legum safnbyggingum, listasöfnum, bókasöfnum,
fallegri dómkirkju í gotneskum stíl, köstulum og
sveitasetrum í næsta nágrenni. Hvorki meira né
minna en 70 lystigarðar setja lit á umhverfið, og
ekki má gleyma göngubrautinni meðfram ánni
Clyde, sem teygir sig 5 km frá miðborginni út í
sveitina. Ef þú vilt tilbreytingu, þá er önnur
stórkostleg borg í aðeins klukkustundar fjarlægð,
ef ekið er eftir næstu hraðbraut, - Edinborg. Þar
geturðu skoðað heimsfrægan kastala um leið og
þú lítur við í verslunum Princes Street, verslun-
argötu sem á sér fáa líka.
Verslanaparadís
Eins og þú getur ímyndað þér, vilja Skotarnir gera
góð kaup - og þú auðvitað líka. Þess vegna eru
verslanir Glasgowborgar sérstaklega vel úr garði
Fáar borgir bjóða fjölbreyttara
skemmtanalíf
Skoska óperan, ríkishljómsveitin og ballettinn eru
auðvitað í Glasgow. Skoski fótboltinn á líka sína
aðdáendur. Skotar eiga Evrópumeistaraliðið 1983
og landsvöllur Skotlands er í Glasgow við Hamp-
den Park. Fimm hörku fótboltalið með Celtic og
Rangers í broddi fylkingar hafa aðstöðu í borginni.
í Glasgow eru nýtísku kvikmyndahús, leikhús og
söngleikjahús. Þar eru fjölleikahús og látbragðs-
leikir, kabarettar, næturklúbbar, dansstaðir og
diskótek. I Glasgow er úrval prýðilegra veitinga-
staða með skoskum nautakjötsréttum, ítölskum,
frönskum, indverskum og austurlenskum matseðl-
um.
Flugleiðir
Það tekur tæplega tvær klukkustundir að fljúga
frá Reykjavík til Glasgow með Flugleiðum, sem
fljúga alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
(þriðjudaga og laugardaga frá og með 1. nóvem-
ber) til Glasgow.
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi
Ókeypis bæklingur á íslensku
Hafðu samband við söluskrifstofu Flugieiða, um-
boðsmann eða ferðaskrifstofu og fáðu ókeypis
eintak af bæklingi breska ferðamálaráðsins um
Glasgow og nágrenni bocgarinnar. Hann er stút-
fullur af nytsamlegum upplýsingum og litríkum
ljósmyndum.