Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 13
13 DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983. ' HUGRAKKUR DRENG- UR í HOLLANDI Albert Guömundsson getur veriö mesti grinari. Hann á þaö tn aö segja brandara svo alvarlegur, aö fólk hrekkur upp af standinum. Svo fór fyrir mörgum nú á dögunum, þegar Albert sagöi að gamni sínu, aö vanda útgeröarinnar ætti bara aö leysa með einu pennastriki: Krossa yfir skuld- irnar. Aðeins væri þar spurt um hug- rekki. Þjóöin hrökk í kút og Halldór Ásgrímsson varð klumsa. Sólargeisli í skammdeginu Svona laufléttur húmor er eins og sólargeisli í skammdeginu. Ekki veitir af aö létta mönnum lund. Aörir ráöherrar mættu taka Albert til eftir- breytni. Grínast við okkur svona inn á milli í alvörunni. Með græskulausu gamni. Fínn, franskur húmor er hins veg- ar fjarlægur grófri, íslenskri fyndni. Þess vegna misskilur Morgunblaöiö iöulega gamanið og heldur vera há- alvarlegt mál. Skrifar um húmorinn flókna og læröa leiöara meö þungum áherslum og miklum oröasvipt- ingum. Þá gefst kostur á aö hlæja aftur — aö tvíhlæja. Þá birtir yfir tilverunni og stjórnmálamenn öðlast meira hugrekki. Hugrakkur drengur í Hollandi Einu sinni var hugrakkur drengur í Hollandi. Ekki er þess getiö, aö hann hafi oröið stjórnmálamaöur og ráöherra. Eitt sinn kom hann þar aö sem stíflugarður var að bresta. Hinum megin var gervallt úthafiö. Hans megin var hiö flata Holland. Farið var að vætla úr gati á garöin- um. Hugrakki drengurinn tróð fingri i gatið. Settist svo niður og beið. Drjúg stund leið án þess aö nokkuö kæmi. Stöðugt víkkaði gatiö uns hugrakki drengurinn stóö með báða hnefa kreppta í gatinu. Innan skamms hefði hugrakki dengurinn þurft aö troöa hausnum i gatiö. Eftir það heföi hann ekki verið til frásagn- ar. Aður en svo færi bar þar að fólk. Þaö sá hvaö leið hugrakka drengn- um og gatinu og bað guö fyrir sér. Þá þaö haföi jesúsað sig tók þaö hnefa hugrakka drengsins úr gatinu og setti annaö i staðinn. Ekki er þess getið hvers konar töpp þaö var, eður' tróö. Síöan hefur hugrakki drengurinn veriö þjóöhetja í Hol- landi. Reistar hafa veriö af honum styttur. Frægö hans barst út hingaö og sagöar voru af honum sögur; m.a. í vesturbænum. Hugrakkur drengur hórna megin Otgerðin á Islandi er nú orðin eins og hið flata Holland. Hinum megin viö garöinn er sjálft úthaf innlendra og erlendra skulda. Hallæris- reksturinn stendur lægst. Farið er aö vætla úr gati í garðinum. Kemur þá ekki aövifandi saklaust blessað bam meö boltann sinn. Það er hugrakkur drengur. Hvað gerir hann? Treður hann puttanum í gatiö? Boltanum? Höfðinu? Nei, iagsmaöur Gróa. Hann dregur upp penna úr pússi sinu og slær striki yfir úthafiö. Þurrkar þaö bara ganske pent alveg út. Þá hættir vita- skuld strax aö vætla úr gatinu. Nema hvaö? Svona miklu hugrakkari eru blessuö bömin hér en í Holiandi. „Taktu hár úr hala mínum..." Sjálfir eigum við Islendingar gamalt ævintýri um litla skessu og stóra skessu, sem gengu fetinu lengra: Ævintýrið um Búkollu. „Taktu hár úr hala mínum og leggðu þaö á jöröina”, sagöi Búkolla. ,,Eg legg svo á og mæli svo um, að þaö verði aö svo stóra vatni, að enginn komist yfir nema fuglinn fljúgandi.” Þegar stóra skessa og litla skessa komu að vatninu sendi stóra skessa litlu skessu eftir stóra nautinu hans fööur síns, sem kom og svelgdi í sig allt vatnið. Verðbólgubálið „Taktu hár úr hala minum og leggðu það á jörðina”, sagöi þá Búkolla. „Legg ég svo á og mæli um, aö þaö veröi aö svo stóru báli aö ekkert komist yfir nema fuglinn fljúgandi.” Þegar litla skessa og stóra skessa komu að bálinu sendi stóra skessa Kjallarinn Sighvatur Björgvinsson Utíu skessu eftir stóra nautinu hans föður síns. Það kom og pissaöi yfir báUð öllu vatninu, sem það haföi drakkið, svo bálið slokknaði. Mórall sögunnar Hver er svo móraUinn í þessu al- kunna ævintýri? Hann er auðvitað sá, aö menn eiga ekki aö strika út út- haf erlendra og innlendra skulda meö einu pennastriki þegar menn sitja uppi með veröbólgubál sem er svo stórt, að enginn kemst yfir það nema fugUnn fljúgandi. Þaö er iUa farið með mikið úthaf að þurrka þaö þannig út án þess aö hafa af því nema hálft gagn. Þvert á móti eiga menn aö senda eftir stóra nautinu til þess aö súpa þaö upp og pissa því síðan á verðbólgubálið svo þaö slokkni. Ekkert vit í ööru. Einhver takmörk fyrir hugrekki Hins vegar skyldu menn ákaft var- ast aö halda áfram lengra eftir sögunni og reyna aö troöa sér meö hausinn á undan inn í urð og grjót og standa þar svo fastir eins og stóra skessa. Hugrekki manna verður nú Uka aö eiga sér einhver takmörk. Sighvatur Björgvinsson, fyrrv. alþingismaöur. Spamaðargabbiö Ein skemmtUegasta bábilja sjálf- stæöismanna er aö ríkið sé of viða- mikið á Islandi. FuUyrðingar um þetta efni standast auðvitað engan veginn sé borið saman við nágranna- lönd okkar. En það broslega er að talsmenn auömannaflokksins í dag virðast ekki átta sig á aö enginn hefur notað sér ríkisvaldið meira en einmitt fyrirtækjaeigendur. Siðasta vinstristjórn og t.d. vinstristjórnir 4. áratugarins geröu sér far um aö skUa haUaiausum ríkisreikningi. Hægrimenn hér og á öðrum Noröur- löndum hafa i seinni tiö verið iönir viö aö auka skattbyrðar og ríkisút- gjöld. Skuldir Reykjavíkurborgar fara nú hríðvaxandi í höndum sjálf- stæöismanna. Ætlun ríkisstjómar- innar virðist vera að klóra yfir eyöslusemi sína meö því að selja fyrirtæki í almenningseigu og fá þannig eitthvað í kassann. Efnahagshugsjónir Vinstrisinnaðar rikisstjórnir eiga stundum marga vini, en þeir vinir era ekki frekir tU f járins. Núverandi r&isstjórn lætur mikið af hendi rakna viö skjólstæðinga sína, braskarana, og má gera ráð fyrir aö þeir fái opinber fyrirtæki á sérstöku fyrirgreiðsluverði þegar þar aö kemur. I stjórnmáiaumræöunum á Alþingi fyrir skömmu (18/10) reyndi formaöur Sjálfstæöisflokksins aö glöggva hlustendur á því á hverju hagstefna ríkisstjórnarinnar bygg- ist. Formaðurinn ætlaði að hrinda þeirri ásökun aö stjómin hefðist ekki annað aö en skera niður. Ot úr því dæmi kom aðeins eitt: Viö höfum skorið samneysluna niður um nokkur prósent, sagði hann. Og bætti við aö þetta muni „aö visu” leiða til versnandi þjónustu við almenning. Ekki verður meö skýrari hætti viður- kennt aö stefna stjórnarinnar beinist gegn hagsmunum þorra lands- manna. Nú á að draga saman þjón- ustu á sviði menntamála, heil- brigðismála og f élagsmála. Rikisstjómin hefur reist sjálfri sér niöstöng með ábyrgðarlausri skerð- ingu sinni á kjörum launafólks. En hiö hörmulega er aö kjaraskeröingin er ekki læknisráð heldur hugsjón. Það virðist vera hugsjón hjá forystu- mönnum stærsta stjómmálaflokks- ins að skera niður samneyslu. Lang- tímatilgangur kaupránsins er aö minnka félagslega þjónustu. I þessu felst að langlundargeö launamanna veröur ekki notaö til aö skeröa kjörin og bæta þau svo aftur eftir nokkra mánuöi, heldur er þaö kjarni og til- gangur aðgeröanna að minnka félagslega þjónustu. Laun era lækkuö til aö fullnægja þeirri hug- s jón aö veita verri þ jónustu. Kjósendur í landinu kusu ekki slíka stefnu yfir sig í síðustu þing- kosningum. Sjálfstæðismenn vildu fyrir kosningar litt kannast við frjálshyggjuþvættinginn, og núver- andi forsætisráðherra var jafnvel talinn einhvers konar vinstrimaður. Eftir kosningar hefur svo komiö á daginn að þeir stjórnmálamenn, sem mestu ráöa í ríkisstjómarflokk- unum, hafa ekki bolmagn til að láta skynsemina halda hlut sínum í glím- unni viö valdamikla hagsmunahópa, sem stjórnast af gróöafýsn og skammsýni. Hvers konar mannlífs- hugsjón er þaö eiginlega aö þjarma aö almenningsbókasöfnum og leik- vallarekstri, eins og borgarstjóri sjálfstæöismanna hefur gert? Andfélagsleg hegðun og allsherjar hugsunarleysi era aðalsmerki fyrir- greiöslusinna, sem nú ráða ferðinni. Börn hafa litinn félagsþroska. Þau skilja lítt þarfir annarra og sam- þykkja aðeins þær leikreglur sem færa þeim sjálfum stundarávinning. Sama lögmál gildir í hinni grátbros- legu stjómmálastefnu, sem nú ríkir á Islandi. Hún er frumstæö. Mér er næst aö halda aö a.m.k. sumir leiö- togar ríkisstjórnarinnar framfýlgi „efnahagsstefnu” sinni í góðri trú. Þannig held ég t.d. ekki aö ráð- herrar, sem búa í glæsibyggingum og láta skattborgarana gefa sér lúxusbila, séu endilega illmenni þótt þeir skeri niður framlög til verka- mannabústaða og leigjendasam- taka, og þótt þeir hóti aö siga lögregl- unni á þá launamenn sem hyggjast neyta verkfallsréttar síns. En samúö og félagshyggju vantar gjörsamlega í hugsun slíkra manna. Uppeldi þeirra er misheppnaö. Hugsunar- háttur lýðræðisins er þeim f ramandi. Fyrirgreiðsla: leiðin til ánauðar I stjórnmálaumræðunum á Al- þingi, sem fyrr var vísað til, kvað formaður Sjálfstæðisflokksins það firru eina að likja ástandinu á Islandi viö ástandiö í Póllandi. Sagði hann miklu meira ófrelsi ríkja þar eystra. Þetta er alveg rétt hjá for- manninum, t.d. að því leyti aö enn fá stjómarandstæðingar hérlendis að gefa út dagblöö. En ef finna ætti heppilegri samlíkingu viö Island, eins og það er að veröa í höndum for- mannsins og annarra, mætti benda á lönd Suður-Ameríku. Þar ríkir sami einræðisandi og hér, og þar er al- menningsþjónusta lítils virt eins og hér. I þeim tilgangi, sem er lítt skiljanlegur mannvinum, að minnka menntun og heilbrigðisþjónustu í landinu, efna ríkisstjómarmenn nú til byggingar á flugstöö fyrir mörg hundrað milljónir króna, handa bandariskum ferðamönnum, sem þangað eru fluttir m.a. fyrir tilstilli islenskra niöurgreiöslna. I her- foringjalöndum Ameríku hygla spilltir ráöamenn jafnan vildar- mönnum sínum meö aðferðum, sem minna á Bæjarútgeröarmálið, Tívolí- máliö, Blazermáliö, fræöslustjóra- máliö og margt fleira, sem ríkis- stjómarflokkamir hafa staðið að hér. Annar helsti efnahagshugsuöur Árai Sigurjónsson <' ..... sjálfstæðismanna, næst á eftir for- manninum, er forystusauðurinn í Reykjavíkurkjördæmi, en hann er jafnframt fjármálaráðhera. Hann hefur túlkað stefnu flokks sins ágæt- lega: hún er fyrirgreiöslustefna. I henni felst ekki fyrirgreiösla við félagasamtök og stéttir manna, heldur fyrirgreiðsla viö einstaklinga, vildarmenn flokksins og aðra, sem láta sig hafa þaö aö koma persónu- lega á kontórinn til þessara manna aö sníkja. Fyrirgreiðslustefna merkir hér sama og stjómmálaspill- ing, geöþóttastefna og valdníösla. Þegar þjóöir þurfa sjúkrahús er ekki nóg aö veita einum og einum sjúkl- ingi „fyrirgreiðslu”. Ef þjóöir vantar menntakerfi dugir ekki aö splæsa á einn og einn námsferö til háskólalanda. Ef ellilífeyririnn er naumur hjá þjóöum, þá dugir ekki aö rétta stöku öldungi hundraökall. Þeir menn, sem standa í veginum fyrir félagslegum umbótum og stunda „fyrirgreiðslu”, hafa þaö yfirleitt sammerkt aö vera vellauðugir sjálfir. Sparnaðurinn er gabb Það er ekki mikil kúnst að segja valdamönnum hvar má spara, ef ríkið er aö sligast, eins og stundum er talað um. Hættið við seðlabank- ann, flugstööina, ráöherrabílana og utanferðirnar, setjið 25000 króna hámarkslaun í landinu, og sjá: þið hafið nokkra milljaröa í afgang. Þá þarf ekki að ræna ellilífeyrisþega, börn, einstæða foreldra og sjúklinga. Þá verður jafnvel hægt aö styöja viö bakið á þessum hópum í staðinn. Þeir verst settu hafa engan hag af því aö felldur sé niður skattur af feröamannagjaldeyri og bifreiðum, né heldur að lækkað sé stimpilgjald og víxilkostnaöur. Helmingur þjóöarinnar veit líklega ekki einu sinni hvaö stimpilgjald er. Það á ekki aö lækka bifreiðaverð, heldur hafa ókeypis í strætó. Það á ekki aö lækka stimpilgjald heldur húsaleigu. Það á ekki aö stöðva sjúkrahúsa- byggingar heldur láta tann- lækningar vera ókeypis. Og þaö á ekki aö rakka sjúklinga fyrir matinn á sjúkrahúsum, heldur á aö gefa bömum aö borða í skólunum, og það án þess aö rukka þau fyrir þaö. Spamaður ríkisstjómarinnar er aðeins gabb. Hún sparar ekki eyris- virði af munaði handa sjálfri sér. Þaö heitir ekki spamaöur þegar fé er tekiö af alþýöu og sett i vasa auð- manna, eins og nú gerist, — og þaö síst úr því ríkisskuldirnar munu aukast gífurlega á komandi ári ef svo fer sem horfir. Það heitir eitt- hvað allt annað. Ef til vill minnkar verðbólgan og ef til vill raknar eitthvaö úr atvinnu- vegunum í tíð þessarar ríkisstjórnar. Kannski batna aflabrögð á næstunni. En það breytir ekki hinu aö næstu ríkisstjórnar bíður mikið endur- reisnarstarf við að byggja aftur upp ýmsa þjónustu handa almenningi, sem hinir auöugu forystumenn stjórnarflokkanna eru nú í óða önn aðskeraniður. Arni Slgurjónsson bókmenntafræðingur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.