Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Qupperneq 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983.
15
Þaö er miklu líklegara, að þessi
stórveldi muni semja um ágreinings-
mál, t.d. þau er nú eru helst á döf-
inni, svo sem hugmyndafræöileg og
stjómmálaleg.
Það er alveg ósannað, að maðurinn
hafi, siðferðilega séð, „göfgast” á
liönum öldum, Trúlega er hlutfallið
milli „góðra” manna og „vondra”
svipað og það var á dögum Karls
mikla og Loövíks 14. — en sívaxandi
eyðingarmáttur, sem vísindin leggja
í hendur stjórnmálamanna og her-
foringja skuldbindur þá til þess aö
meta verk sín og afleiðingar með
meiri gætni.
Það er t.d. ekki langt síðan Frakk-
land tók grófum yfirtroðslum
möglunarlaust af ótta við, að annars
kæmi til almennra hryðjuverka (sbr.
innrás og yfirgang nasista í Frakk-
landi í heimsstyrjöldinni síðari).
Þess konar „varkárni”, og hún er
ekki einkennandi fyrir Frakkland
eitt, — heimilar okkur að ætla, að
mannkyniö muni feta veg sinn til
framtíðarinnar slysalítið.
Vonir standa meira að segja til, að
uppgjöf og ráðleysi þjóðanna, a.m.k.
sumra, muni víkja fyrir gagnkvæmu
En mannkynið á engu að síður
langt lif fyrir höndum, og það er
merki um f jarska litla forvitni, ef við
spyrjum ekki, hversu maðurinn
muni á sig kominn eftir þúsund eða
hundrað þúsund ár í sambýli við
breytt hugmyndakerfi og áframhald-
andi tækniþróun.
GeirR. Andersen
• „Við höfum átt því láni að fagna að vera
vestan megin þar sem Bandaríkin hafa
verið í forsvari fyrir frelsi og uppbyggingu og
tekist að halda óttalausum samskiptum milli
Vestur-Evrópuríkjanna.”
trausti, eftir því sem máttur og
áhrifasvið vísindanna stækka. —
Slíkt traust undanskilur þó engan
veginn þann möguleika, að skipting
og skipan heimsmála verði með öðru
sniði en nú tíökast. Og ekki þarf
annað til en starfsemi friðarhópa
leiði til þess sigurs, sem þeir stefna
að. Meö honum myndi strax leiða til
nýrrar skiptingar í Evrópu.
Er friðarheyfingum
sjálfrátt?
Hvað sem segja má um starfsemi
friðarhópanna svokölluðu og hversu
vel meinandi sem þeir eru, þegar frá
er talinn stuðningur sá, sem þeir
sannanlega hafa sótt til annars stór-
veldisins, má merkja, að annaö og
meira býr að baki.
Það má á margan hátt likja friðar-
hópum Evrópuríkjanna við eins kon-
ar leiksopp örlaga þeirra sem ráöa
munu f ramtíð þessa heimshluta.
Setjum nú svo, að friðarhópar
Evrópu fái því framgengt, að stór-
veldið í vestri fjarlægi vamir þær að
fuilu, sem það hefur komið fyrir í
Vestur-Evrópu og dragi þaðan
mannafla sinn til staösetningar
annars staöar, þar sem það telur að
hann þjóni betur til varöveislu þeim
vestrænu ríkjum, sem enn vilja hafa
samstöðu í hugmynda- og siðfræði.
Þá er harla sennilegt, að Evrópa
morgundagsins verði vesæll, fátæk-
ur skagi, einangraöur frá vestrænni
menningu. Hve langan aðdraganda
slíkt hefur skal ósagt látið. Hitt má
fullyrða, að fái friðarhópar áhuga-
málum sínum um vamarleysi
Vestur-Evrópu framgengt, mun hún
aö fullu renna inn í stjómskipulag og
yfirráð þess stórveldisins, sem bíður
austanvert við bæjardymar, Sovét-
rikjanna.
Það er óneitanlega nokkur eftir-
vænting að fylgjast með þróun mála í
okkar heimshluta, ekki síst fyrir þá
fullvissu, að hingaö til hefur núver-
andi skipan heimsmála farið vel með
okkur, sem búum í Vestur-Evrópu.
Við höfum átt þvi láni aö fagna aö
vera vestan megin, þar sem Banda-
ríkin hafa verið í forsvari fyrir frelsi
og uppbyggingu og tekist að halda
óttalausum samskiptum milli
V estur-E vrópurík janna.
Þaö er kannski einmitt vegna þess,
sem fólkið, sem myndar friðarhreyf-
ingarnar getur leyft sér þann
„munað” að fara í leiki, sem þaö
kallar „friðargöngur” og ögra með
þeim því staöviðri, sem varað hefur
frá síðustu heimsstyrjöld.
Það er því átakanlegt, þegar fólk,
sem komið er yfir miðjan aldur og
veit, hver forsendan er fyrir friði í
þessum heimshluta, tekur undir
sönginn um röskun á heimsskipan,
sem breytt getur lífsháttum þess á
einni nóttu.
Geir R. Andersen.
meðvituð um tilvist sína og við
mennirnir, þá gefur það okkur samt
engan rétt til að drepa þau bara af
því að þau eru í samkeppni við okkur
um lífsgæði. Hverjir geta verið
ábyrgir fyrir því að murka niður svo
undursamlegt afkvæmi lífríkisins
eins og selurinn er, án þess að brjóta
um leið niður alla lotningu og ást
sína á lífinu? Slikir menn hljóta að
missa alla tilfinningu fyrir hinu göf-
uga og andlega. Þeir verða trénaðir
efnishyggjumenn. Með viðhorfi sínu
bara hundblauðir þjónar peninga-
hyggjumanna, sem keyra okkur
lengra og lengra út í firringu og þræl-
dóm í krafti ótta við veröbólgu, ótta
við atvinnuleysi og ótta um að standa
sig ekki í lífsgæðakapphlaupinu. Og
nú er alið á óttanum um minnkandi
velferð ef selurinn er ekki drepinn.
En hvað er velferð?
Eru það bara peningar og það sem
hægt er að kaupa fyrir þá ?
öldum saman hafa menn reynt að
sem lífsanda dregur, sköpunar-
gleði, lífskraftur, innri friður,
þjónustusemi og visdómur verður
ekki keypt f yrir peninga. Slíkir eigin-
leikar fást einungis með réttri inn-
stillingu og athöfnum og réttum
viðhorfum gagnvart sjálfum sér,
öörum mönnum, lífríkinu og öllum
alheimi.
Með grimmd okkar og tillitsleysi
gagnvart öðrum lífverum erum við
að brjóta niður samstillingu okkar,
við móður náttúru, lífheim og al-
Við selshræ.
og hegöun eyðileggja þeir alla sam-
stiliingu sína við tilveruna, — líf-
fræðilega, huglega og andlega. Séu
þeir valdsmenn í þjóðfélaginu, munu
fasísk viðhorf þeirra gagnvart lífrík-
inu einnig valda bölvun í mannlegu
samfélagi. Firra verður slíka sálar-
sjúklinga öllum völdum í þjóðfélag-
inu, viljum við byggja upp mann-
eskjulegt þjóðfélag, en ekki vera
kaupa sér hamingju en ávallt mis-
tekist. Það er í besta falli hægt að
kaupa vitsmunalegan þekkingar-
forða til að nema og sitthvað annað
sem þarf til að f ullnægja grundvallar
lífsþörfum, svo sem fæði, klæði, hús-
næði og heilbrigðisþjónustu. Við get-
um kallað ofangreind atriði tilvistar-
grundvöll.
En samúð, ást, lotning fyrir öllu
heim. Hvað er þessi samstilling?
Hún er ást, — sterkasta „bindie&iið”
í veröldinni. Afl sem ekki er minnst á
í, .Hagtölum mánaðarins”.
Hafin er undirskriftasöfnun gegn,
seladrápinu, Heiti ég á allt réttsýnt
fólk að taka höndum saman og:
stöðva þennan ósóma.
Guttormur Sigurðsson
sölumaður
, Verslunar- eða atvinnuhúsnæði
til leigu viö Laufásveginn. Upplýsingar í símum
18160 eða 12902.
Snyrtivörur
fyrir þá sem eiga aðeins það besta skilið.
Lista-Kiljan sf., sími 16310.
RAFHITARAR
NEYSLUVA TNSHITA RA R
Sjálfvirkir, nákvæmir, vel einangraöir.
Hagkvæm og heppileg lausn við
rafhitun húsnæöis.Vatniö hitaö upp í
geymi og því síöan hleypt út í ofnana.
Ýmsar stæröir fáanlegar.
Fljótvirkir, sparneytnir — og þú velur
hitastigiðsjálfur.
Fást í mismunandi stæröum.
KYNNTU ÞÉR VERD OG GÆDI.
RAFHA —VÖRURSEM ÓHÆTTERAD TREYSTA.
Verslunin Rafha, Austurveri, Háaleitisbraut 68.
Símar: 84445,86035.
Hafnarfjörður, simar. 50022,50023,50322.
I
og myndarlega
JÓLAGJAFAHANDBÓK
kemur út
um mánaðamót
nóv/des.
Þeir auglýsendur sem
áhuga hafa á að auglýsa í
JÓLAGJAFAHAND-
BÓKINNI
SIMINIM
ER
vinsamlegast hafi samband
við auglýsingadeild
Síðumúla 33, Reykjavík,
82260
eða í síma 82260 milli kl.
9 og 17.30
HAFIÐ SAMBAND
STRAX
SEM ALLRA FYRST.