Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Qupperneq 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983. Spurningin Hvers vœntir þú af norrænu umferðaröryggis- ári? Gunnar Jónsson framkvemdastjóri: Eg hef ekkert hugleitt það, en ég er klór á að það þarf eitthvað að gera í umferðinni. Það þarf að byrja á því að gera fólki grein fyrir að vinstri akreinin er ætluð tii framúraksturs. Arl Pétursson gröfumaður: Sáralitils. Islendingar eru svo kærulausir að þeir hafa ekki tima til aö aðlagast umferö- inni. Við flýtum okkur of mikið. Þorsteinn Pálsson, starfsmaður Hag- kaups: Alls hins besta. Að umferöin batni og verði sambærileg við það sem gerist t.d. í Englandi. Hrönn Asgeirsdóttir, starfsstúlka Heilsuhællsins í Hveragerði: Aö allt gangi vel og óhöppin verði færri. Arnþór Slgurðsson brunavörður: Eg vona aö fólk læri t.d. aö meta bilbeltin beturenhingaðtiL ölafur Axelsson húsasmiður: Eg vænti þess aö umferöin skáni og að þessu veröi haldið áfram. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hvar er nú óhlutdrægni DV? Gylfl Gislason skrifar: „DV frjálst, óháð dagblað” má sjá skrifað daglega í haus DV. Eg legg til að þessi brandari verði hvíldur svolítið og brandarar um Mumma meinhorn komið þar fyrir í staðinn. Astæðan fyrir þessari uppá- stungu minni er sú að eftir að Dag- blaðið og Vísir gengu í eina sæng virðist DV hafa fengið útlit Dag- blaðsins en pólitískt yfirbragð Vísis. Nýjasta dæmið um þetta er umfjöilun blaðsins um BOR-málið. Þegar útgerðarráð mælti með ráðn- ingu Brynjólfs Bjamasonar í stöðu forstjóra var sagt frá því á eftirfar- andi hátt í DV: „Hlaut hann fjögur atkvæði en þrír sátu hjá. Enginn var á móti svo ekki virðist djúpstæöur ágreiningur um hann í þessa stöðu.” Blaðiö hefur ekki fyrir því að segja frá hvers vegna þrír sátu hjá. Ástæðanvarsú þeir vildu ekki taka þátt í skrípakosningu sem sett var á svið til að koma dyggum sjálfstæðis- manni í forstjórastól, eins og fram kemur í bókun þeirra. Þetta ieyfir DV sér að kalla „ekki djúpstæður ágreiningur”. Eg læt lesendum það eftir að dæma hvort hér sé um hlut- lausan fréttaflutning að ræða. Þess má reyndar geta að allt frá stofnun BOR hefur enginn fram- kvæmdastjóri sem ráöinn hefur veriö til fyrirtækisins fengið jafn- mörg mótatkvæði í borgarráði og borgarstjóm og umræddur Brynjólf- ur. Þá skrifar hinn pólitíski ritstjóri DV nú nýlega leiöara þar sem hann reynir að réttlæta hinar pólitísku uppsagnir. Þó slær nú öil met hvernig lesenda- bréf um þetta mál eru sett upp. IDV 25. okt. sl. em tvö lesendabréf um BOR-máliö. I öðm er valdníösla sú sem fram hefur komið í þessu máli lofsömuð en í hinu eru þessi óheiðar- legu vinnubrögð fordæmd. Fyrr- nefnda bréfinu er slegiö upp með stríðsletri efst í lesendadálknum með stórri mynd. Hið síðarnefnda fær mjög lítið fyrirsagnarletur, er samþjappað og komiö þannig fyrir aðlítiðbará. Af þessu má s já að DV er ekki óháð blað í dag. Eg skora hins vegar á hinn óháðari ritstjóra DV að reyna aö snúa þessari öfugþróun við svo blaðið rísi undir nafni. Hundar lesa hugsanir manna Hundar lesa hugsanir mannanna an þaim virðist iika fíeira tíi lista iagt. 4959-8577 hringdi: Borgarfulltrúar sögðu álit sitt á hundahaldi. Þeim láðist aö geta þess að hundurinn er fyrsta húsdýr manns- ins að því er talið er og hefur fylgt mannkyninu frá upphafi vega sem dyggur þjónn og vinur. Mörgum hefur hann bjargaö frá bráðum bana og til em margar sögur um merkilega hunda. Það umhverfi sem maðurinn skapar sér í borg hentar ekki hundi, sem hefur stigið öil þróunarstig mannsins og hefur varðveitt eðli sitt að hluta. Því ætti þaö að henta manninum frekar en hundi? Reyndar þjást hundar í borg- um af sömu sjúkdómum og borgar- búar, streitu, offitu, taugaveiklun og fleiri algengum sjúkdómum, sem vart finnast í frjálsri náttúru. Omhverfi sem nútímamenn skapa sér er mann- inum framandi og fjandsamlegt og sjúkdómaskapandi. Þaö hefur eingöngu veriö gengið á aðlögunar- hæfni hans. Margir aölagast ekki stressþjóðfélagi nútimans enda kannski engin ástæöa til aö taka upp heimsku fjöldans. Menn skapa sér allrahanda draumkennt ástand meö ótal vímuefnum. Kannski leita þeir horfins umhverfis og tengsla við lífrflrið. Mikill indíánahöfðingi sagði eitt sinn: Maöurinn sló ekki vef h'fsins og það sem þú gerir vef lífsins, þaö gerir þú þér. Menn skyldu varast að útrýma tegundum í lífríkinu. Það gæti svipt menn skilningarvitum sínum. Sumir spá því að mannkyniö kafni í eigin skít og barna framtíðarinnar biði stórir ruslahaugar, menguö höf og auðlinda- snauður heimur. Vonandi verður þá til hundur til að taka síöustu skrefin með manninum yfir ruslahauginn. Fyrstu og síðustu skrefin stigin með traustum vini. Sumir hundar hafa margfalt meiri „karakter” og tígulleika en menn og það bætir flesta að vera í návist þeirra. Þeir eru næmir fyrir umhverfi sinu og lesa jafnvel hugsanir manna. Það er kannski vegna þess sem mönn- um er illa viö hunda. Þá menn sem börn og hundar hænast að er þér óhætt aö öfunda og treysta. I minningu um Poilý gellu. Ártúnsholtiö: HVERT FARA BÖRNIN í SKÓLA? 1213-2697 hringdi og langaði til að hefðu enn ekki verið teknar, en þær vita hvernig ætti að leysa vanda mundu byggjast á forkönnun um þeirra bama sem á næstunni flyttust væntanlegan fjölda bama og aldurs- í Artúnsholtið þar sem enginn skóli skiptingu þeirra í hverfinu. Hins væri. vegaryrðivelséðfyrirþeimbömum sem flytja í hverfið á næstunni. Svar: Fræðsluráðið hvetur einnig alla A Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur væntanlega íbúa að gera því viövart var okkur tjáð að lokaákvaröanir umbömáskólaaldri. SJÓMANNSKONUR, LÁT- UM TIL SKARAR SKRIÐA Sigrún Haraldsdóttir hringdi: Eg vil taka undir grein frá sjómannskonu í DV 27. október. Eg er sjómannskona og hef oft orðið að standa frammi fyrir miklum erfiöleikum en aldrei eins og núna. Það vantar ekki útreikninga á tekj- um sjómanna þegar vel gengur. Þá eru dregnar fram hæstu töiur og þær básúnaðar í öllum blöðum en þagað þunnu hl jóði ef illa gengur. Ekki fyrir löngu var viðtal við sjávarútvegsráðherra í sjónvarpinu. Hann var búinn að skoða nær flest frystihús landsins og ræða við starfs- fólk þar en hann hefur ekki rætt við einn einasta háseta, hvaö þá meira. Eins þegar sjómenn fóm í verkfall var ekki rætt við þá og skoöanir þeirra fengnar. Nei, en það var básúnað hversu illa þeir færu með útgerðina og starfsfólk í landi. Á þessu verður að verða breyting. Sjómenn eru ekki í sömu aðstöðu og aðrir til að ræða þessi mál sin á milli og láta til sin heyra. Það eru að sönnu talstöðvar um borö í skipunum en þeir hafa ekki leyfi til að nota þær þegar þeim þóknast, aö skipstjóra og stýrimanni undanskildum. Það eru einnig haldnir fundir í landi. Yfirleitt em þeir mjög fámennir, einfaldlega vegna þess að allir eru úti á sjó. Þess vegna veröum við, sjómannskonur, að láta til skarar skríða. Við þurfum jú að vera faðir og móðir heima við og hvers vegna ekki út á við lfka? Við verðum að rísa upp og vera meiri og betri fulltrúar fyrir okkar menn en viöhöfumverið. Að lokum. Það em erfiðir tímar núna. Þó held ég að tekjumissirinn sé hvergi eins mikill og hjá sjómönn- um. Eg vil því skora á þá sem fara með þessi mál aö taka tillit til þess. Eg er ekki að tala um að fá styrki, þ.e. peninga tekna úr vösum almenn- ings, heldur aðeins svolítinn skilning áþessuvandamáli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.