Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Side 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NÖVEMBER1983. 17 „Afnám samningsróttarins með lagaboði er grófasta einræði sem þekkist, þrátt fyrir allt hjaiið um iýðræði,"segir Ásmundur U. Guðmundsson um aðgerðir rikisstjórnarinnar. Þumalskrúfuað ferð ríkisstjómarinnar Ásmundur U. Guðmundsson á Akra- nesi skrlfar: Oft hefur maður orðið undrandi um dagana en sjaldan eins og er ég horfði og hlýddi á sjónvarpsfréttirnar mánu- daginn 10.10. 1983, þegar sagt var frá þögulli mótmælastöðu launþega viö Alþingishúsið og afhendingu undir- skriftalista, sem launþegasamtökin í landinu stóðu að. Þvi var hnýtt aftan við fréttina aö komið heföi fram annar undirskriftalisti, af öörum toga, með á annað hundraö nöfnum frá ibúum á Húsavík. Sá listi innihélt lofgjörö um núverandi ríkisstjórn og afskipti hennar, með lagaboði, af samnings- rétti launþega hvar í félagi sem þeir standa. Það er óhrekjanleg staðreynd að meö lögboðnu afnámi samningsréttar var framiö gróft mannréttindabrot, sem við Islendingar getum tæpast verið þekktir fyrir aö framkvæma á sama tíma og viö fordæmum aðrar þjóöir harkalega fyrir alls konar brot á mannréttindasáttmála Sameinuöu þjóðanna, sem við erum stofnendur að. Við höfum látið mikiö aö okkur kveða á þeim vettvangi, þó að nú sé gengiö þvert á allar fyrri yfirlýsingar. Eg ætla aðeins aö tilfæra eitt' dæmi af mörgum, sem er Solidarnosc. Það ætti að vera nóg til að vekja alla til umhugsunar um þá vá er steðjar að launþegum almennt. Síðasta ríkisstjóm var ekki hliðholl verkafólki, öðru nær. Hún fram- kvæmdi kjaraskerðingar, sem látnar voru óátaldar að miklum hluta. Þó gekk hún ekki eins langt og núverandi ríkisstjóm í óskammfeilni í garð þeirra er taka laun eftir töxtum verka- lýðsfélaganna. Ég hélt þó að sérhver launþegi vildi hafa ákvörðunarréttinn um launakjör sín og samningsrétt í eigin höndum en ekki láta alla þræöi í hendur ríkisvaldinu og láta það ákvaröa launagreiðslur hverju sinni. Með þvi fyrirkomulagi mundum við slá við þeirri stofnun, sem ekki hefur verið lofsungin á Vesturlöndum fram á þennan dag, og alls ekki á Islandi, nema þá af þröngum hópi manna, en það er hin rússneska K. G. B. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér um þá stofnun hlyti íslenska ríkisstjórnin, sem nú situr, veglegt heiðursmerki fyrir það framtak aö ráðast á persónufrelsi hvers og eins í formi afnáms samningsréttar með lagaboði, sem er grófasta einræði sem þekkist, þrátt fyrir allt hjalið um lýðræði. I ljósi þeirra staðreynda sem fyrir liggja furðar mig stórlega á að fólk fari að verja einræðisgjörðir núverandi ríkisstjórnar, eins og raun ber vitni um lofgjörðarplaggið að norðan. Það á sér enga hliöstæðu að fordæma þá sem reyna aö endurheimta þann rétt sem af var tekinn snemma á þessu ári, þó að lögin beri nafnið „bráðabirgðalög”. Það er engin framtíðarlausn í því að hjala allt með tungum tveim og fram- kvæma svo þvert ofan í það sem áöur var haldiö fram. Hér á ég einfaldlega við það að láta efri þrep launastigans halda sér óbreytt, sem sagt engin kjaraskerðing. Getur nú hver og einn íhugað hvaöa hópar standa svo vel að vígi að kjaraskerðing nær ekki til þeirra aö neinu leyti. Verðlagi var einnig sleppt lausu og talið allra meina bót, ásamt því að herða kverkatökin á þeim sem lægstu launin hafa, og þar með að reyna að læsa svo á þeim kjaftinum að öruggt megi teljast að engin andstaða verði hvemig sem ríkisvaldið hagar sér. Það þarf enginn vafi að leika á því að ríkisvaldið á hvergi að koma nærri samningagerð launþega hvorki á meðan á samningum stendur né á eftir. Það ætti að vera frumkrafa verkalýðshreyfingarinnar að sneiða af öll afskipti ríkisvaldsins í næstu samningagerð, sem vonandi verður ekki svo langt að bíða eftir. Hallbjörn olli vonbrigðum Hrafnhildur Sigurðardóttir í Borgar- nesi hriugdi: Eg brá mér á ball á laugardaginn með hljómsveitinni Radius og Hall- birni Hjartarsyni. Aðgangseyririnn var 350 krónur og þegar ég spurði hvenær Hallbjörn kæmi fram var mér sagt að þaö yrði um klukkan hálfeitt. Þegar Hallbjörn kom fram voru lögin spiluð af segulbandi og hann raulaði undir. Eg varð mjög óánægð og þess vegna langar mig til aö spyrja Hall- bjöm hvers vegna hann hafi ekki sungiö við undirleik hljómsveitar- innar: Eg get alveg eins leikið plötuna heima hjá mér. Eg var aðdáandi Hallbjöms en ég varð fyrir miklum vonbrigðum með hann. Hallbjöm kántrísöngvari i mikilli sveifiu. sínurn i Borgarnesi vonbrigðum. Samt olli hann aðdáanda IMauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Ásbúð 41, Garðakaupstað, þingl. eign Kristjáns Rafnssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 4. nóvember 1983 kl. 17.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 75., 81. og 82. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Engihjalla 19 — hluta —, þingl. eign Einars Þ. Einarssonar, fer fram að kröfu Landsbanka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 3. nóvember 1983 kl. 11.35. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 75., 81. og 82. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Engihjalla 1 — hluta —, þingl. eign Jóns Þórmundssonar, fer fram að kröfu bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 3. nóvember 1983 kl. 10.55. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 75., 81. og 82. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á eigninni Auðbrekku 23, þingl. eign Óla H. Þorbergssonar, fer fram að kröfu bæjarsjóðs Kópavogs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 3. nóvember 1983 kl. 10.25. Bæjarfógetinn í Kópavogi. UMBOÐSMAIMN VANTAR í NESKAUPSTAÐ Upplýsingar hjá umboðsmanni DV í Nes- kaupstað, Halldóru Ásmundsdóttur, Hrafnsmýri 4, sími 97-7266 og afgreiðslu DV, sími 27022. - Simi 42600 Dodge Omni 1980, ekinn 45.000 km, sjálfskiptur, litað gler, útvarp, o. fl., framdrifinn og amerískur að auki, toppbíll, vínrauður. ARFELLSSKILRUM FYRIR JOL ÞEIR SEM PANTA FYRIR 15. NÓVEMBER FA AFGREITT FYRIR JÓL SÉRHÖNNUÐ 13 IM SÝNINGÍDAG KL.9-16. SKILRÚM - SKÁPAR - HANDRIÐ Sýning laugardaga kl. 9—16. Ármúla 20, símar 84630 og 84635.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.