Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1983, Blaðsíða 30
30 DV. ÞRIÐJUDAGUR1. NOVEMBER1983. Forstjóri SVR Starf forstjóra Strætisvagna Reykjavíkur er laust til um- sóknar. Viö mat á umsækjendum veröur lögð áhersla á reynslu og menntun á sviði stjórnunar. Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a. frá menntun og starfsreynslu auk almennra persónulegra upplýsinga. Umsóknum skal skilaö til undirritaðs fyrir 21. nóv. nk. BORGARSTJÓRINN í REYKJAVÍK. fSÍ Ártúnsholt og Selás f#' (suður) Skráning þeirra barna og unglinga á grunnskólaaldri sem áformað er að flytji í hverfin á árinu 1984 eða fyrr fer fram í fræðsluskrifstofu borgarinnar þessa viku og lýkur föstudaginn 4. nóvember nk. Vegna skipulagningar skólasóknar er mikilvægt að foreldr- ar eða forráöamenn barna og unglinga, er flytja munu í hin nýju byggðahverfi, geri viðvart til FRÆÐSLUSKRIFSTOFU REYKJAVlKUR, Tjarnargötu 12, sími 28544. STAÐGREIÐSLU- AFSLÁTTUR AF SMÁAUGLÝSiNGUM Við veitum 10% AFSLÁTT af þeim smáauglýsingum í DV sem eru staðgreiddar. Það te/st staðgreiðs/a ef aug/ýsing er greidd daginn fyrir birtingardag. Verð á einni smáauglýsingu af venju/egri stærð, sem erkr. 290,- /ækkar þannig í kr. 261 ef um staðgreiðs/u er að ræða. SMAAUGLYSIINIGADEILD Þverholti 11, simi27022. Tilkynning tíl smabátaeigenda í Reykjavík Um miðjan nóvember verður hafist handa um að taka upp flotbryggjur hafnarinnar til eftirlits. Getur því enginn trillu- eigandi vænst þess að hafa viðlegu við flotbryggju í vetur. Reykjavíkurhöfn mun dagana 4. til 5. nóvember nk. kl. 10.00 til 17.00 taka á land þá smábáta sem legið hafa í höfninni í sumar. Upptakan verður við Bótarbryggju (við Slysavamahúsið) og mun höfnin leggja endurgjaldslaust til krana til upptökunnar og til að taka báta af bílum, en eigendur sjái sjálfir um flutning að geymslusvæði utan Verbúða. Ogreidd leigugjöld verða innheimt á staðnum. Hér með er skorað á alla eigendur smábáta, sem liggja í Reykjavíkurhöfn, aö mæta með báta sína til upptöku á nefndum stað og tíma og greiða gjöld sín svo ekki þurfi að grípa til annarra innheimtuaðgerða. Reykjavík, 27.10.1983 , HAFNARSTJÓRBMN í REYKJAVÍK Gunnar B. Guðmundsson Hreinn Sigurðsson. Grunnur átöppunarverksmiðjunnar sést fyrir aftan hann. Verksmiðjan ris við sjóinn skammt fré höfninni. D V-mynd: Bjarnieifur. Átöppunarverksmiðja byggð á Sauðárkróki — Tindastélsvatn á 50-60 þúsund f löskur daglega handa New York-búum „Það er áformað að hefja útflutning á vatni i september á næsta ári,” sagði Hreinn Sigurðsson á Sauðárkróki í samtali við DV. Framkvæmdir við flösku- og átöppunarverksmiðju hófust í haust. Grunnur, í bókstaflegri merkingu, hefur veriö lagður að vatnsútflutningi frá Sauðárkróki til New York í Bandaríkjunum. ,,Stefnt er að því að ljúka húsinu í vetur,” sagöi Hreinn. Húsið verður 2.600 fermetrar að grunnfleti. Hreinn Sigurðsson hefur í átta ár undirbúið vatnsútflutning frá Islandi. Hann hefur verið í sambandi við aðila í Bandaríkjunum. Þegar hefur veriö geröur samningur við Hafskip um flutning á markaðs- svæðið, New York og nágrenni. Áætlaður stofnkostnaður er rúmar fimmtíu milljónir króna. I ráði er að stofna hlutafélag um bygginguna og reksturinn. Vatnið verður allt tekið úr Tinda- stóli. Þaö mun renna úr fjallinu um lokaö veitukerfi Sauðárkróksbæjar. „Til að byrja með verður tappað á 50 til 60 þúsund flöskur á dag,” sagði Hreinn. Hver flaska rúmar einn og hálfan lítra. Það þarf því 75 til 90 tonn af vatni á dag. Vatninu veröur tappað á plastflöskur sem steyptar verða á staðnum. Tólf slikar flöskur fara i einn pappakassa. Reiknaö er með að fyrirtækið þurfi þr játíu starfsmenn. -KMU. 3 jafnir og efstir — á helgarskákmótinu í Garðinum Eftir harða og tvísýna keppni urðu þrír efstir og jafnir á 21. helgarskák- mótinu sem fram fór í Garðinum um sl. helgi. Helgi Olafsson hlaut 6 vinninga og 26 stig, Margeir Péturs- son 6 vinninga og 25 stig og Guðmundur Sigur jónsson 6 vinninga og 24 1/2 stig. 1 kjölfar þeirra fylgdi svo Ingi R. Jóhannsson með 5 1/2 vinning og 26 1/2 stig, þá Jóhann Hjartarson með 5 1/2 vinning og 25 1/2 stig, Magnús Sólmundsson hlaut sama vinninga- og stigafjölda og í sjöunda sæti hafnaði Elvar Guð- mundsson með 5 1/2 vinning og 25 stig. Hlutskarpastur öldunga varð Sturla Pétursson með 4 1/2 vinning, í flokki yngrí en 14 ára uröu efst þau Siguringi Sigurjónsson og Guöný Hrund Karlsdóttir, bæði með 3 vinn- inga. Tómas Bjömsson og Guömund- ur Arnason sigruðu í flokki yngri en 17 ára meö 5 vinninga hvor og i flokki yngri en 20 ára sigraði Elvar Guðmundsson meö 51/2 vinning. Bestum árangrí keppenda utan Stór-Reykjavíkursvæðisins náði Halldór B. Einarsson frá Bolungar- vík. Hlutskarpastir heimamanna urðu Pétur Sævarsson, Gísli Heiðars- son, Vilhelm Guðmundsson, Þor- steinn Heiðarsson og Tryggvi Þór Tryggvason, allir með 3 vinninga. Alls tóku 58 manns þátt í heigar- skákmótinu í Garðinum og var áhugi geysilegur, sérstaklega hjá æsku- Kór Langholtskirkju 30 ára: Eldri félagar kallaðir til þátttöku Kór Langholtskirkju heldur upp á 30 ára starfsafmæli sitt um þessar mundir. Verður þeirra tímamóta minnst í Bústaðakirkju næstkomandi laugardag en þar verður kórínn með tónleika og kaffisölu kl. 15. Eru kórfélagar þessa dagana að æfa f jölbreytta dagskrá sem flutt verður á tónleikunum. Er m.a. gert ráð fyrir því að eldri kórfélagar taki þátt í flutningnum. En þar sem ekki hefur náðst til þeirra allra vilja forráðamenn kórsins beina þeim tilmælum til þeirra, er áhuga hafa á aö vera með á tónleikunum, að mæta á æfingu i Langholtskirkju næstkomandi miðvikudagskvöld kl. 20.30. Eru eldri kórfélagar hvattir til að mæta og láta tilsín heyra. Albert Guðmundsson: Góð hugmynd að selja veislu- salina „Nei, ég hef ekki fengið tilboð í veislusal stjórnvalda í gömlu Rúg- brauösgerðinni og því er hún ekki á sölulista,” sagði Albert Guömunds- son fjármálaráðherra. „Annars hefði ég ekkert á móti því að selja alla veislusali ríkisins og þetta er mjög góð hugmynd.” HÞ. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.