Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Qupperneq 1
37.000EINTÖK PRENTUÐÍ DAG RITSTJÓRNSÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 2702! DAGBLAÐIЗVÍSIR 257. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983. ^ . ■ .... TF-RÁN fórst ígær- kvöldi STUJT KALL OG HVITT LEIFTUR v — voru síðustu merkin f rá þyrlunni v r Fjögurra manna saknað „Það var þrem minútum eftir að þyrlan hafði yfirgefið varðskipið, sem heyrðist óljóst kall frá henni, sem hefði getað verið mayday-kall. Einnig sást hvítt leiftur, en síðan ekki meir,” sagði Guðmundur Kjæmested skipherra hjá Landhelgisgæslunni í viðtali við DV vegna slyssins sem varð í Jökulfjörð- um í gærkvöldi, er TF-RAN, þyrla Landhelgisgæslunnar, fórst. Fjögurra manna áhöfn var á þyrlunni. Þeirra er' allra saknað. Það var kl. 22.53 í gærkvöld sem þyrlan fór frá varðskipinu Óðni. Hugð- ist áhöfnin fljúga henni í lítinn hring og láta hana síöan síga aftur niður á skip- ið. Þegar RÁN yfirgaf skipið var það statt skammt undan Höfðaströnd í Jökulfjörðum. Þrem mínútum eftir flugtak heyrðist stutt kall frá þyrlunni, sem ekki varö greint, og jafnframt brá fyrir hvítu leiftri. Leit var strax hafin frá varðskipinu og aðstoðar leitað hjá björgunarsveit- um og fiskibátum frá Isafirði og Bol- ungarvík. Einnig voru fengnar til leit- ar flugvél Flugmálastjórnar og þyrla frá vamarliðinu. Um tvöleytið í nótt fann línubátur- inn Orri svo brak úr þyrlunni um hálfa mílu undan landi, skammt suð-austur af Kvíamúp, sem er í mynni Veiði- leysufjaröar. Reyndist þar vera um að ræða hluta úr stóra spaöa þyrlunnar, varabjörgunarbelti og einn hjálm. Þverhnípt bjarg gengur fram í sjó þar sem brakið fannst. Þegar slysið varð stóð hægur vindur á land, suð-suð- vestanátt. Veður var gott þegar slysið varð en versnaði heldur þegar líða tók á nóttina, með éljum. Aö sögn Guðmundar Kjæmested var í morgun ekki hægt að gera sér grein fyrir orsökum slyssins, en búist við að um snögga bilun í þyrlunni hefði veriö að ræða. -JSS Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á beinni línu DV: Tilbúnir að endurmeta samningsréttinn „Það var neyðarástand og þess vegna var gripið til þeirra skammtímaaðgerða að framlengja samninga meö lögum. Við eram tilbúnir til að endurmeta þessa stöðu í meðferð málsins á Alþingi,” sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, meðal annars á beinni línu á DV í gærkvöldi. Margir áhugasamir lesendur DV hringdu og lögöu spumingar fyrir Þorstein. Þor- steinn var einnig spurður um afstöðu sína gagnvart Kísilmálmverksmiðj- unni á Reyöarfirði. Hann sagði að endanlegar lyktir þess máls væra ekki enn komnar fram. Ein höfuöfor- sendan fyrir að það mál næði fram að ganga væri sú að erlendir samstarfsaðilar fyndust. Þorsteinn Pálsson sagði að ekki væru neinar grundvallarbreytingar á döfinni í starfsemi Sjálfstæðisflokksins. „Við munum hins vegar reyna aö aðlaga starfsemina að nútíma upplýsinga- tækni eftir því sem hún þróast.” Svör Þorsteins við öðram spumingum er aöfinnaábls. 36—37. -óm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.