Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Page 36
36
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER1983.
Ráðherra
í núverandi
ríkisstjórn?
Bragi Guömundss^n, Reykjavík,
spuröi: — Nú hefur þú lýst yfir aö þú
takir ekki við ráöherraembætti fyrst
um sinn. Hvaö varir „fyrst um sinn”
lengi? Gæti þaö orðið í þessari ríkis-
stjórn?
Þorsteinn Pálsson: „Þaö er einfald-
lega ekkert hægt að segja um þetta á
þessu stigi. Sú ákvörðun er tekin miðaö
viö þær aöstæður sem viö búum viö í
dag. Eg sé ekki fyrir þróun næstu
mánaöa eöa ára og mín afstaða mótast
af pólitískum aöstæðum á hverjum
tíma. Hún er þessi í dag. Eg tek ekki
ákvarðanir fyrir framtíð sem ég sé
ekkifyrir.”
— Þaö er ekki þannig aö þú metir
aðstæöur þannig aö þú viljir fá frið til
aö setja þig inn í þitt starf ?
Þorsteinn: „Hluti af ástæðunum er
sá aö ég tel eðlilegt aö fá tóm til aö
sinna minum verkum óháöur einstök-
um fagráöuneytum. Tíminn verður
síöan aö leiöa í ljós hvernig mál
þróast.”
Aðlögun að
Samningsréttur
Ríkisbankamir
Raunvextir
m
Spurningar og svör
á beinni línu DV í gærkvöldi
Margir höfðu áhuga á að leggja spurningar fyrir Þorstein Pálsson, nýkjörinn for-
mann Sjálfstæðisflokksins, á beinni línu á ritstjórn DV í gærkvöldi. Eins og á
fyrri beinum línum blaðsins voru spurningar af ýmsum toga. Þannig var Þor-
steinn spurður jafnt um þjóðmál sem innanflokksmál Sjálfstæðisflokksins.
Alhnargir spuröu hvort Þorsteinn væri fylgjandi því að bráðabirgðalögunum yrði
breytt svo samningsréttur fengist fyrir 1. febrúar. Svörin við þeirri spurningu og
öllum hinum fara hér á eftir. KMu/Jss/Gs/OEF/EiR/óm.
nútíma upp-
lýsingatækni
Jón Árnason í Reykjavík spyr: —
Eru grundvallarbreytingar í
skipulagsuppbyggingu flokksins á döf-
inni?”
„Þaö eru ekki á döfinni neinar
grundvallarbreytingar í starfsemi
flokksins. Viö munum hins vegar
reyna aö aðlaga starfsemina aö
nútíma upplýsingatækni eftir því sem
hún þróast. Bæði málefnaundirbúning-
ur og upplýsingamiðlun hafa veriö aö
færast til hins betra hjá flokknum að
undanförnu. Þetta eru sígild verkefni
sem í sjálfu sér kalla ekki á neinar
grundvallarbreytingar í skipulagi
flokksins. Upplýsingatæknin er aö
breytast. Samskipti stjórnmálaflokka
og fjölmiðla munu einnig breytast í
kjölfariö og þetta er þróun sem við
munum fylgjast mjög náiö meö. ”
Ratsjárstöðv-
ar á íslandi
Jón Ásgeir Sigurösson spuröi: —
Fráfarandi formaður Sjálfstæöis-
flokksins telur utanríkis- og öryggis-
mál mikilvægasta málaflokkinn. Hann
vill láta reisa ratsjárstöövar á Vest-
fjörðum og Norðausturlandi. Ertu
sammála Geir Hallgrímssyni í þessum
efnum og ef svo er, hvaöa rök færir þú
fyrir þinni afstööu?
„Eg er sammála honum í því aö
öryggis- og varnarmál séu einn af
mikilvægustu málaflokkum sem
stjórnmálaflokkarnir fjalla um og sér-
hver ríkisstjórn þarf aö gæta. Þetta
hefur veriö grundvallaratriöi í störfum
og stefnu Sjálfstæðisflokksins um ára-
tuga bil. Ástæöan er auövitaö sú aö viö
viljum skipa okkur í sveit meö
lýöræöisþjóöum Vesturlanda. Viö
viljum leggja okkar af mörkum til aö
halda þeirri samvinnu og þaö höfum
viö gert meö aðild aö Atlantshafs-
bandalaginu og varnarsamstarfi viö
Bandaríkin. Við veröum á hverjum
tíma aö vega og meta hvernig viö
stöndum best að því samstarfi. Þessi
atriði sem þú nefndir er verið að
athuga og ég tel sjálfsagt og eölilegt aö
þau séu könnuö. Viö tökum ákvöröun á
grundvelli þeirra upplýsinga sem þá
liggjafyrir.”
Framtíð
Framkvæmda-
stofnunar
— Hverjar eru hugmyndir þínar um
framtíö Framkvæmdastofnunar?”
spuröi Olafur Friöriksson, Reykjavík.
Þorsteinn Pálsson: „Þaö er verið aö
vinna núna aö endurskoöun á lögum
um framkvæmdastofnun og á skipu-
lagi fjárfestingarlánasjóöa Mín
skoöun er og hefur verið sú aö þaö ætti
að draga úr pólitískri stjóm opinberra
peningastofnana og ég geri ráö fyrir aö
niðurstaða þessarar endurskoðunar
veröi í samræmi við þá skoðun mína og
annarra sjálfstæðismanna.”
Raddir nái
til flokks-
forystunnar
Kolbrún Oskarsdóttir í Reykjavík
spyr: — Ertu samþykkur því sem Sig-
rún Þorsteinsdóttir sagði um aö rödd
hins almenna flokksmanns þyrfti aö
heyrast skýrt og greinilega innan
flokksforystunnar og aö þaö þyrfti aö
virkja fólkiö?
„Eg er mjög sammála henni í því.
Eg held aö viö Sigrún séum bæöi vaxin
upp úr rööum hins almenna flokks-
manns og ég tek undir þetta meö
henni. Fólkiö hefur auövitað völdin
þegar þaö velur sína forystumenn,
síöan þurfa þeir aö halda góöum
tengslum viö sitt fólk og fólkið í land-
inu og ég mun freista þess aö gera það
með öllum tiltækum ráðum. Viö sjálf-
stæðismenn höfum alltaf gert það og
kannski er okkar landsfundur eitt
áþreifanlegasta og áhrifamesta dæmið
um þaö þar sem þúsund sjálfstæðis-
menn koma saman og ræða hugmyndir
sínar og flytja boðskap úr sínum
héruöum. Ég held að þetta sé ein
áhrifaríkasta leiðin til aö virkja hinn
almenna flokksmann til starfa.
Eta böfuðforsendan fyrir framgangi Kisilmálmverksmiöjunnar á Reyðarfirði er sú að erlendir samstarfsaðllar
finnist, sagði Þorsteinn Pálsson meðal annars. DV-mynd EÓ.
Flugvöllur
í Aðaldal
Einar Friöriksson, Reykjavík,
spuröi um afstöðu Þorsteins til þess að
leitað yröi samstarfs viö bandaríska
herinn um byggingu alþjóöaflugvallar
í Aöaldal, sem Geir Hallgrímsson
sagöi á landsfundi aö gæti komið til
athugunar hjá utanríkis- og sam-
gönguráöuneyti.
Þorsteinn Pálsson: „Ég er sam-
mála því aö þeir félagarnir Geir og
Matthías vinni aö því í sameiningu. En
ég held aö þaö veröi ýmis verkefni sem
viö tökum ákvaröanir um fyrr en
alþjóðlegan flugvöll í Aðaldal.”
Örtölvu- og
tæknibylting
Friðrik Guömundsson, Reykjavík,
spuröi: — Hyggst þú sem formaöur
Sjálfstæöisflokksins beita þér fyrir því
að tryggja stöðu launþega gagnvart
hinni öru örtölvu- og tæknibyltingu
sem hafin er? — Hver er skýringin á
því aö VSI var ekki reiðubúið aö ræða
þessi mál í síöustu kjarasamningum?
„Þaö er ljóst aö við eigum eftir aö
ganga í gegnum miklar breytingar í
tengslum viö þessa þróun. Eg er
þeirrar skoöunar aö aukin tækniþróun -
fæöi alltaf af sér ný störf, þó á ööru
sviöi sé. Eg óttast því ekki að af henni
hljótist atvinnuleysi.
Eg er þeirrar skoöunar aö aðilar
vinnumarkaöarins eigi aö gera út um
þessa hluti sín á milli. Best er aö þaö sé
gert í fyrirtækjunum sjálfum, enda
ákaflega erfitt, aö mínu viti, aö gera
heildarsamninga um þessi efni. Þróun-
in hefur enda veriö sú aö þar sem þessi
tækni hefur rutt sér til rúms hafa
viðkomandi mál verið leyst innan
fyrirtækjanna, án nokkurra átaka. Eg
tel farsælast fyrir alla aöila aö gera út
um þessi mál á vinnustööunum eins og
gert hefur verið, átaka- og ágreininga-
laust.”
Sála
ríkisbanka
Jóhannes Bjarmarsson, Akureyri,
spyr: — Þaö kemur fram í ályktun
landsfundar Sjálfstæðisflokksins aö
breyta beri ríkisbönkum í almennings-
hlutafélög. Er þá þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins tilbúinn aö samþykkja
tillögur Bandalags jafnaðarmanna um
sölu ríkisbanka?
„Þetta er stefna Sjálfstæðisflokksins
að vilja ganga þannig til verka. Viö
erum hins vegar aöilar aö nefnd sem
skipuð var af fyrri ríkisstjórn og
endurskipulögö fyrr í sumar og vinnur
aö endurskoðun löggjafar, bæði um
Seölabanka og viðskiptabanka. Því
starfi er ekki endanlega lokiö. Þaö er
ætlunin að ná þar samkomulagi og
samstöðu um breytingar á þessari lög-
gjöf og ég vænti þess að þeirri vinnu
ljúki innan skamms tíma. Á þessu stigi
get ég ekki nákvæmlega greint frá því
hver niöurstaða verður. En ég hygg aö
þaö sé þó hægt aö fullyröa þaö aö því
verki verður ekki lokið fyrr en fundinn
hefur veriö jarðvegur fyrir samruna í
bankakerfinu. En hvort það næst sam-
staöa um breytingar á eignaraðild get
ég ekki sagt um á þessu stigi málsins.
Eg held aö tillagan frá Bandalagi
jafnaðarmanna, eins og hún liggur
fyrir, sé óraunhæf og illa undirbyggö,
þó aö ég sé í sjálfu sér sammála þeirri
grundvallarhugmynd aö breyta
bönkunum í hlutafélög. En tillagan er
ekki nægjanlega vel úr garöi gerö til aö
þaö sé hægt aö samþykkja hana sem
slíka,” svaraði Þorsteinn.
Bflakaupfor
Gurrnar Gunnarsson spyr: — Finnst
þér ekki ósvífiö hvernig Dagblaöinu-
Vísi og ritstjóra þess, Jónasi Kristjáns-
syni, hefur tekist aö gera sjálfsögö og
eðlileg bifreiöakaup forsætisráöherra
tortryggileg?
„Þaö hafa nú fleiri tekiö þátt í þeim
leik en Jónas Kristjánsson. Þaö væri
nú ekki sanngjarnt aö ég færi aö
ráöast mikið á Jónas þegar ég sit hér
sem gestur hans. En ég hef ekki tekið
undir þessa gagnrýni,” svaraöi Þor-
steinn.
Myndir þú
hleypa Fram-
sókníland-
búnaðarráðu-
neytið?
Eggert Jóhannsson, Reykjavík,
spyr: — Ætlar þú, ef stjórn verður
mynduð meö þinni forystu, að hleypa
Framsóknarflokknum áfram í
landbúnaöarráöuneytiö og sjávarút-
vegsráðuneytið svoleiðis aö óráösían
haldi áfram þar?
„Við erum nú í samstjórn viö þá
núna og Framsóknarflokkurinn fékk
bæði landbúnaöarráðuneytið og
sjávarútvegsráöuneytiö. En
Sjálfstæðisflokkurinn fékk mjög veiga-
mikla málaflokka. Undir stjórn ráð-
herra Sjálfstæöisflokksins falla um 87
prósent af útgjöldum ríkisins þannig
að ég held aö þaö veröi ekki annaö sagt
en aö Sjálfstæðisflokkurinn hafi samið
af miklum styrkleika viö þessa
stjórnarmyndun,” sagði Þorsteinn.
— Nú er ég alveg klár á því en hins
vegar er ég mjög hræddur um þessi tvö
ráðuneyti því mér sýnist vera miklu
spreöað þarna, bætti Eggert viö.
„Þaö er góð samvinna milli stjórnar-
flokkanna og þeir vinna saman aö
stefnumörkun á flestum sviöum.
Þannig að ég held aö viö þurfum ekki
að hafa áhyggjur af þessu,” sagði Þor-
,steinn.
Ekkert flokks-
bákn tefur
ákvarðanir
Siguröur Guömundsson í Reykjavík
spyr: — Álitur þú aö Sjálfstæöis-
flokkurinn sé ef til vill orðinn þaö bákn
aö gangur máls í gegnum kerfiö og út
til fólksins sé of seinn í svifum?
„Eg held aö viö getum ekki talaö um
yfirbyggingu Sjálfstæöisflokksins sem
bákn. Þar eru fáir menn sem vinna
mikið verk. Viö reynum aö vinna aö
undirbúningi mála mjög vandlega. Til
dæmis fer undirbúningur aö landsfundi
þannig fram aö málefnanefndir vinna
álitsgeröir sem lagðar eru fyrir starfs-
hópa. Þær eru síðan sendar út til
flokksfélaganna meö hæfilegum fyrir-
vara fyrir fundinn og þaú fá tækifæri
til að fjalla um álitsgeröirnar.
Auövitaö tekur þetta allt tíma —
lýöræði tekur tíma. En ef á þarf aö
halda tökum við ákvaröanir skjótt og
örugglega.”