Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Blaðsíða 37
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER1983. 37 Útiloka ekki samstarf við neinn flokk Einar Jónsson í Hafnarfiröi spyr: — Vildir þú vinna meö Alþýöuflokknum næsta kjörtímabii? ” „Þaö er eindregin skoöun mín aö halda öllum möguleikum opnum varöandi samstarf viö aöra flokka. Viö erum hins vegar í samstarfi viö Framsóknarflokkinn eins og sakir standa og þaö eru engar breytingar í aösigi á því. Hvaö gerist að loknum næstu kosningum vitum viö ekki á þessu stigi málsins en ég útiloka ekki samstarf viö neinn stjórnmálaflokk.” Frjálst markaðskerfi Erlingur Davíðsson, Reykjavík, spyr: — Hefur þú hugsaö þér aö stuöla að því aö komið veröi á frjálsu markaðshagkerfi í landbúnaði og út- flutningi sjávarafuröa? „Þaö var mikið til umræöu á okkar landsfundi. Að vísu voru ekki gerðar um þaö formlegar samþykktir, en í álitsgerö hóps sem f jallaöi um sjávar- útvegsmál var rætt um að þaö væri ástæða til aö koma á meira frelsi í út- flutningi sjávarafuröa. I þessu efni verðum við hins vegar aö gæta aö því að þau samtök sem hafa unnið á þessu sviöi hafa lyft miklu grettistaki og tryggt hámarksverö fyrir okkar afuröir. Viö megum ekki raska þeirri stööu okkar. Á sama hátt höfum viö fjallað um þaö að þaö væri eðlilegt aö auka mark- aðstengsl milli framleiöenda og neyt- enda, athuga aukið frjálsræöi í verðlagningu búvara og gera framleiðslufyrirtækin í landbúnaðin- um ábyrg fyrir þeim kostnaöi sem til fellur á því vinnslustigi. Nú er veriö aö vinna aö endurskoðun framleiöslu- ráðslaga i sérstakri nefnd, sem starfar á vegum stjórnarflokkanna, og þar verða þessi sjónarmiö lögð til grund- vallar af okkar hálfu.” — Erlingur spuröi Þorstein einnig hvort hann áliti aö gefa ætti afgreiðslu- tíma verslana í Reykjavik frjálsan? „Eg er þeirrar skoöunar að þaö eigi aö ríkja aukið frelsi á því sviöi og það ástand sem nú ríkir í þessum efnum á þessu markaössvæöi, þar sem mis- munandi reglur gilda milli samliggj- andi sveitarfélaga, sé ekki viðunandi.” Keflavíkur- sjónvarpið Einar Valur Einarsson, Akranesi, spyr: — Getum viö átt von á því aö sjá Keflavíkursjónvarpiö aftur? „Nei. Eg held aö ég geti svarað því á einfaldan hátt. Það voru teknar á- kvarðanir um að setja þetta sjónvarp í lokað kerfi og ég sé engar forsendur fyrir því aö viö beitum okkur fyrir breytingum þar á,” svaraði Þorsteinn. Frjáls samn- ingsréttur Valdimar Þórarinsson, Akureyri, spyr: — Muntu styðja tillögu Guömundar H. Garðarssonar um frjálsan samningsrétt? „Það er grundvallarregla Sjálf- stæöisflokksins aö aöilar vinnu- markaðarins eigi aö gera út um sín mál í frjálsum samningum. Það var hins vegar ljóst í vor að þaö þurfti aö grípa til mjög umfangsmikilla aögerða. Þaö var neyðarréttarástand í okkar þjóöfélagi. Þess vegna var gripið til þessara skammtímaaðgerða. En við höfum lýst því yfir að viö séum tilbúnir að endurmeta þess stööu í meðferö málsins á Alþingi og þaðveröurgert. Rökin, sem meðal annars voru fyrir því aö festa kjarasamningana um skeiö, voru þau aö skapa aöilum vinnu- markaðarins möguleika á að semja á ný jum grundvelli þannig aö þeir þyrftu ekki aö trúa á árangur af efnahagsaö- gerðum stjómarinnar heldur væri hann kominn fram þannig að þeir heföu hann í raun og veru staöreyndan. Sem betur fer hefur þetta dæmi allt gengið eftir og árangurinn komiö fyrr fram en ella þannig aö þessir aöilar hafa núna þær staðreyndir í höndum um nýjar aðstæður í efnahagsmálum sem þeir geta samið út frá. Þaö er alltaf þannig að þeir sem gera samninga verða aö bera ábyrgö á þeim sjálfir og sá rammi sem menn hafa er auðvitað verðmætasköpunin í þjóðfélaginu. Þaö er ekki hægt aö hlaupa í samninga núna og koma svo til ríkisstjórnarinnar og biðja um gengislækkun,” svaraði Þorsteinn. Sátturvið ráðherraval Konráð Baldvinsson, Siglufirði, spuröi hvort Þorsteinn væri sáttur viö ráöherraval flokksins og hvort hann heföi ekki viljað hafa þá yngri. Þorsteinn Pálsson: „Já, ég er sáttur viö ráðherravalið. En ég býst við því aö eftir þennan landsfund hafi Sjálf- stæðisflokkurinn á að skipa yngstu forystu í stjórnmálalifi landsins. Ekki bara flokksforystu, heldur í ýmsum Raunvextir Guðni Daníelsson, Kópavogi, spuröi hvers vegna „vaxta- og verðbótaokrinu” væri viöhaldið: „Nú er þaö svo aö vextir hafa stór- lækkaö upp á síðkastið og þaö er hlutur sem ekki hefur gerst fyrr í okkar hag- sögu. Þannig aö sá árangur sem ríkis- •stjórnin hefur náö á þessu sviöi er mjög umtalsverður. Það er ljóst aö ef við ætlum aö halda jafnvægi á okkar peningamarkaði verðum við aö hafa raunvexti til þess að fá sparifé inn í bankakerfið til þess að lána aftur út. Það er meginatriöi, bæði fyrir atvinnulífiö og aöra, eins og húsbyggjendur, sem þurfa á lánsfjár- magni aö halda. Með aögerðum ríkisstjómarinnar hafa vextir lækkað stóriega. Þeir heföu að óbreyttu sennilega farið mjög fljótt yfir hundraö prósent í byrjun sumars ef til þessara aögeröa heföi ekki verið gripið. Það sem stjómarflokkamir ætla aö keppa aö er aö halda áfram aö lækka vexti í takt við minnkun veröbólgu, en þó aö tryggja aö það sé jafnvægi á milli framboðs og eftir- spurnar þannig aö það verði nægjanlegt fjármagn í bankakerf inu. Við skulum líka muna eftir því, þeg- ar viö erum aö tala um raunvexti, aö legs dagblaös og framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins. Ert þú ekki slæm ímynd Sjálfstæðisflokksins með fylgi launþega í huga? ,,Alls ekki. Þetta meö aldurinn er vandamál sem eldist fljótlega af mér en ég hef í stööu minni sem ritstjóri fjallaö mikiö um viðfangsefni á vinnumarkaðinum og jafnframt öðlast mikla reynslu af samningamálum í starfi mínu hjá Vinnuveitendasam- bandinu. Eg hef kynnst mörgum forystumönnum launþega úr öllum stjórnmálaflokkum. Eg hef oröiö þeirrar gæfu aönjótandi að öðlast trúnaö þeirra margra. Eg hef í kosningum notið stuönings og trausts fjölmargra forystumanna verkalýðs- félaganna. Eg á mjög gott persónulegt samband viö þá. ' Grundvallarstefna okkar flokks er sú aö hagsmunir atvinnufyrirtækja og launþega fari saman. Allt þetta gerir það að verkum að ég kvíði ekki aö eiga samstarf viö þessa aöila. Þvert á móti held ég að starfsvettvangur minn und- anfarin ár auki likumar á því að þetta samstarf geti oröiö gott og heilsteypt og á trúnaöi byggt.” — Gísli spuröi einnig hvemig Sjálf- stæðisflokkurinn gæti bæði gætt hags- muna launþega og atvinnurekenda í senn? byggöarlagið, ef þaö reyndist vera á þann veg aö hún yröi baggi á þjóö- félaginu. Verði hitt staðreynd þá stöndum við að þeim ákvörðunum sem teknar hafa veriö. Þaö er verið að vinna aö þessu máli. Endanlegar lyktir þess em ekki komnar fram. Meöal annars þarf að leita aö erlendum sam- starfsaöilum. Það er ein höfuðforsend- an fyrir því aö þetta geti náö fram að ganga. Þaö er alveg ljóst að viö þurfum mjög svo að hraða okkur í uppbygg- ingu iðnaöarins í landinu. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem lengst eru komin í undirbúningi,” svaraöi Þor- steinn. Kynslóða- skipti f þingflokknum Viðar Amarson i Reykjavík spyr hvort búast megi viú kynslóðaskiptum í þingflokki Sjálfstæöisflokksins i kjölfar kynslóöaskipta í forystusveit- inni. „Þaö er ekki auðvelt aö svara þessu á þessari stundu, þaö uröu töluveröar DV-mynd EÖ. VOdir þú ekkl hafa yngri menn í ráðherrastólum Sjálfstæðisflokksins? Þorsteinn Pálsson svarar spurningum lesenda DV i gærkvöldi. aðalsamtökumflokksins er ungt fólk í| forystu. Ég held aö við þurfum ekki aö kvarta, hin nýja kynslóð í flokknum, aö hafa ekki fengiö mikla ábyrgö. Við höfum gott samstarf viö þá sem eldri era og þaö er nauðsynlegt aö það fari saman kraftur nýrrar kynslóöar og reynsla þeirra sem lengi hafa unnið. Ég held að við upplifum einmitt [ slika tima núna í Sjálfstæöisflokkn- um.” Konráö spurði einnig hvort Þor- steinn væri þeirrar skoöunar að hann ætti sem formaður flokksins aö velja samráöherra sína þegar þær aðstæður sköpuöust. Þorsteinn; „Samkvæmt reglum er þaö þingflokkurinn sem kýs ráöherra. Eg tel það hins vegar eðlilegt aö flokksformaður geri tillögur þar að lút- andi og ég býst við aö ég muni starfa á þeim grundvelli þegar þar að kemur. Formaðurinn á aö hafa mikil áhrif og ég tel eðlilegt að hann geri tillögur um, menn og málaflokka sem þeir gegna í ríkisstjóm.” stærsti hluti spamaðarins í okkar þjóöfélagi er hjá launafólkinu. Það em ekki stóreignamenn eða stórfyrirtæki sem eiga spariféð. Þaö er launafólkið. En þaö eru atvinnufyrirtæki sem aö stærstum hluta nota þetta f jármagn — fá það aö láni. Þanig aö mér finnst það vera eðlilegt og sanngjarnt að launa- fólkið fái eölilega ávöxtun af sínu sparifé og að atvinnulífiö borgi þaö i ,sömu verömætum til baka,” svaraöi Þorsteinn. ímynd Sjálfstæðis- flokksins Gísli J. Ingólfsson, Reykjavík, spurði: — Nú ert þú aðeins 36 ára, lög- fræðingur, fyrrum ritstjóri borgara- „Þaö gemm við best með því aö freista þess að skapa hér eðlileg og góö skilyrði fyrir atvinnureksturinn, þannig að við getum aukið verðmæta- sköpunina í þjóðfélaginu. A því byggjast fyrirtækin upp og það gerir þeim kleift að bæta lífskj örin. ’ ’ Kísilmálm- verksmiðja á Reyðarfirði Jóhann Halldórsson, Reyðarfirði, spyr: — Hver er afstaða þín gagnvart Kisilmálmverksmiöjunni á Reyöar- firði? „Ég vil stuðla aö framgangi þessar- ar verksmiðju en auövitaö innan þeirra marka að það sé ljóst aö hún muni skila þjóðarbúinu og byggöar- laginu aröi. Mín skoöun er sú aö þaö sé óskynsamlegt, bæöi fyrir þjóöarbúiö og | breytingar á kosningunum í vor og kjörtímabilið er 4 ár. I sjálfu sér kæmi mér þaö ekki á óvart þótt einhverjar breytingar yröu í næstu kosningum, þannig er þaö yfirleitt, stundum miklar, stundum litlar. En eins og sakir standa er ógjörningur aö svara þessu svo vel fari á þessari stundu. Þú ættir aö reyna að hringja aftur þegar nær dregur kosningum,” sagði Þor- steinn. Viöar Arnarson spuröi einnig hvort Þorsteinn teldi að Ellert B. Schram ætti sér viðreisnar von innan flokksins ef hann tæki ákvöröun um aö taka aftur sæti á þingi og því svaraði Þor- steinn: „Éllert hefur ekki sagt af sér þing- mennsku og hefur því stjórnskipulegan rétt til setu þar. Hann er kjörinn til setu þar og hefur e.t.v. meiri skyldu til aö taka sæti sitt þar en að sitja á því ágæta blaði þar sem ég nú er gestur í kvöld. En þetta er ákvörðun hans og af henni ætla ég ekki aö fara aö skipta mér.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.