Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Blaðsíða 24
24 Dm,AUGftHDAG0ma:ra&RffÁR?i9a4'/' Á ERLENDUM MÖRKUÐUM VAR HAMILTON JAMES FULLUR ITVO MÁNUÐIIÍRAN? „Hvaö eigum viö aö leggja tii? Viljum viö láta þá droppa fabrikk- unni? Þaö er ómögulegt aö segja hvenær allt verður vitlaust þarna niöurfrá.” Svo kæruleysisleg voru ekki öll ummæli þátttakenda á námskeiði Stjórnunarfélags Islands undir yfir- skriftinni „Markaössókn á erlendum mörkuöum”. Námskeiö þetta fór fram á Hótel Loftleiðum fyrir nokkrum dögum meö 40 þátttakendum úr at- vinnulífinu, sér í lagi á sviði út- flutnings. Færri komust aö en vildu á þetta námskeiö jafnvel þótt útflytj- endur sjávarafurða (sjávarafuröir eru' obbinn af útflutningi Islendinga) tækju ekki stóla frá öörum. I þrjá daga sátu menn þungbúnir yfir erfiðleikum ýmissa erlendra stór- fyrirtækja og reyndu aö ráöa fram úr markaösvandræðum þeirra víöa um heim. Leiöbeinandinn, dr. Kenneth Simmonds frá London Business School, hafði einstakt lag á aö hrekja menn á milli horna ráöstefnusalarins þegar lausnir þóttu of fábrotnar. 1340 Hann haföi líka þjálfunina til þess. Fyrir utan margra ára feril við kennslu hefur hann verið ráögjafi fjöl- margra fyrirtækja í Bretlandi, Banda- ríkjunum og víðar á sviöi markaös- mála. Auk þess hefur hann veitt stór- fyrirtækjum forstööu, ritað greinar og gefiö út bækur um markaðsmál. Annars er dr. Simmonds frá Nýja-Sjá- landi. En menn glímdu sem sagt við dæmi: Sumarið 1340 (miðaö er viö för Múhameös frá Mekka til Medína) íhugaöi bandaríska fyrirtækiö Royal Battery aö setja upp verksmiðju til framleiöslu á rafhlöðum í Iran en fyrirtækiö framleiddi þegar rafhlööur í Bandaríkjunum. Utflutningur fyrir- tækisins til Iran haföi verið lítill í gegn- um árin einkum vegna þess aö umboðsmaöur þeirra þar var ekki áhugasamur um málið. Vegna þess hversu lítil salan til Iran haföi veriö bjó fyrirtækið ekki yfir mikilli vitneskju um markaðinn þar yfirleitt. Og þá kemur Hamilton James til sögunnar. Þetta er ungur maöur meö gráöu í viöskiptafræöum, í vinnu hjá Royal kompaníinu. Hamilton James er falið aö fara til Iran og gefa skýrslu um það sem hann verður vísari. Skemmst er frá því aö segja aö Hamilton James þvældist á milli ým- issa stofnana í Iran til aö komast aö því hvaö innflutningurinn á rafhlööum til landsins væri mikill og afla annarra upplýsinga. ÓBRÚK- LEG Of langt mál er aö skýra nákvæm- lega frá þessum ferðum Hamiltons milli ýmissa embættismanna. Þó skal þess getiö aö í íranska tollinum gat hann fengið upplýsingar um innflutn- ing á rafhlöðum en því miöur ekki eftir fjölda heldur eftir þyngd: „Meginhlut- verk okkar er aö innheimta tolla, ekki safna tölum,” sagöi íranski tollarinn (líklega meö nokkrum þunga). Hamilton dvaldist í tvo mánuöi í Iran og reit aö för sinni lokinni all-ítarlega skýrslu til yfirmanna sinna. I sem skemmstu máli sagt var sú skýrsla óbrúkleg aö verulegu leyti. Þegar hér var komið sögu var þaö í valdi nemenda á námskeiöinu aö ákveöa fyrir hönd Royal rafhlööu- manna hvað næst skyldi til bragös taka. Afrakstur Hamiltons þótti rýr og í einkasamtölum létu menn sér detta í hug að maöurinn heföi verið drukkinn þótt ólíklegt sé í Iran. Atti aö senda Hamilton James aftur til Iran til aö afla frekari upplýsinga? Fáir vildu þaö. Fyrsta niöurstaöa dr. Simmonds var hins vegar einföld. nrigt Hb En l\ ANN Manninn átti skilyröislaust aö reka. Síöan varö fyrirtækiö aö taka afstööu til framhaldsaögeröa. Viðhorf dr. Simmonds gagnvart sérfræöingum á markaðssviöi birtist oft meö þessum hætti á námskeiöinu. DV spurði hann því hvort sú menntun sem fáanleg væri um þessi mál væri ekki fullnægjandi. „Jú, ég er ekki endilega aö halda því fram. Hins vegar er þaö tilhneiging hjá fólki, sem ekki hefur sömu menntun og þessir menn, aö samþykkja oröalaust allt sem þeir segja. Hluti af því sem ég er aö fara þegar ég bendi á veikleika í námi þeirra er aö gefa nemendum mínum meira sjálfstraust til aö þora aö spyrja og efast um þaö sem borið er á borö fyrir þá. Þetta mundi til dæmis eiga sérstaklega vel viö um ykkur Islendinga ef þiö væruö meö erlenda sérfræöinga í vinnu hjá ykkur til aö koma ykkar vörum á markaöi. Þá er nauösynlegt aö kunna aö spyrja og krefjast þess aö sérfræöingarnir geri þaö sem þeir eiga aö hafa þjálfun í aö gera. TÆKNI Þá er rík tilhneiging til þess í ýmsum skólum í Evrópu og jafnvel Bandaríkj- unum aö kenna mönnum einungis tækni en ekki hvernig fara á aö viö aö finna hina raunverulegu meinsemd. Sumir þylja jafnvel kenningar um efnahagsmál og halda aö þeir séu aö kenna bisness.” En sér dr. Simmonds eitthvaö ákveöiö sem Islendingar ættu aö taka til bragös í markaðsmálum sínum erlendis? „Þaö fyrsta og mikilvægasta í upp- hafinu er aö Islendingar verða aö átta sig á því aö sú hugsun aö eitthvað annaö eigi viö um Island en önnur lönd er röng. Víst er Island lítiö land en þaö er mikiö af litlum fyrirtækjum í öörum löndum sem hafa selt vel af sínum vörum á heimsmarkaöi. Islendingar þurfa aö vinna aö því aö afla erlendra markaöa frekar en aö einbeita sér aö því aö flytja bara út sem allra mest magn. Mér sýnist vænlegra fyrir Islendinga að selja vöru sína meö því fororði aö hún sé á einhvern hátt sér- stök vegna þess aö hún kemur frá Islandi heldur en aö reyna aö selja sem allra mest. Meö þessum hætti yrði selt minna af dýrari vöru.” EIN- FALT Þótt dr. Simmonds hafi vikiö aö því aö ef til vill væri of mikiö gert aö því að kenna mönnum tækni í ýmsum viðskiptaháskólum er ekki þar fyrir aö tækni geti á stundum verið nauösyn- leg. Sagt var frá forstjóra alþjóðlegs stórfyrirtækis sem gekk illa aö afla upplýsinga frá undirforstjórum sínum í öörum löndum. Hvort tveggja var aö upplýsingarnar bárust seint og þær sem bárust voru rýrar, sérstaklega um markaðsmál. Forstjórarnir höföu veriö beðnir aö svara fyrirspurn aðal- forstjórans meö bréfi. Dr. Simmonds benti hins vegar á aö árangursríkara væri aö kalla alla slíka til fundar einu sinni á ári. Á þeim fundi skyldi þeim ætlaö aö gera grein fyrir stöðunni frammi fyrir öllum hinum forstjór- unum. Síöan þyrftu þeir aö sitja fyrir svörum og rökstyöja niðurstööur sínar. Með þessari aöferö er lítil hætta á ööru en aö upplýsingarnar berist og séu fullnægjandi. Hver vill standa á gati frammi fyrir fjölda félaga sinna? Það gerir enginn nema einu sinni,. Til gamans var líka bent á mikilvægi einkaritara forstjórans. Hans hlutverk á nefnilega meöal annars aö vera aö leka upplýsingum um það sem for- stjórinn ætlar aö taka sér fyrir hendur. Ef undirmennirnir fá vitneskjuna þannig meötaka þeir hana ööruvísi heldur en ef þeir fengju bein fyrirmæli frá forstjóranum. 33 Eins og minnst hefur verið á voru þátttakendur á þessu námskeiði Stjórnunarfélagsins látnir ráöa fram úr vandamálum ýmissa fyrirtækja. Eitt þeirra var kallaö Thornton. Þetta var frekar lítiö fyrirtæki með 33 starfs- menn. Fyrirtækið framleiddi nú nýja teg- und bora til aö bora í steinsteypu. Þessir borar höfðu ýmsa kosti umfram þá sem áöur höföu verið á markaöi. Gott útlit var fyrir aö sala á þessum borum yröi góð í framtíðinni. Hins vegar skorti Thornton tilfinnanlega rekstrarfé til að unnt væri aö nýta til fulls þá möguleika sem framleiöslan bauð upp á. Fyrirtækiö var því reiðubúið til aö selja framleiöendum í öörum löndum framleiðsluréttindi. Helst vildu þeir finna framleiöanda sem hefði yfir aö ráöa dreifingarkerfi um allan heim. Ef það tækist gat Thornton hugsað sér aö veita framleiöslurétt fyrir alla hugsan- lega markaöi sem nokkurt vit væri í. Aö öörum kosti yröi að veita framleið- endum í hverju landi, eða svæði, leyfi. Eftir grein í tímariti um tæknimál um bor þennan fékk fyrirtækiö Sidney h/f í Astralíu áhuga á málinu. Maöur frá því fyrirtæki, sem staddur var í Bandaríkjunum, heimsótti í framhaldi af því Thornton og gaf viö heimkomu sína til Astralíu sínum mönnum jákvæöa skýrslu um málið. I fram- haldi af heimsókn Astralans fékk Thornton síöan bréf frá Sydney h/f þar sem þeir lýsa vilja sínum til aö höndla framleiðslurétt um allan heim eöa allavega öll önnur lönd en Bandaríkin. TRAUST IR Thornton vissi sáralítið um Sydney h/f. Hann haföi þó einhverjar hug- myndir um aö þeir væru verktakar í borverkum og framleiddu auk þess ýmsa bora fyrir Ástralíumarkaö. Athugun Thorntons leiddi í ljós að fyrirtækið var fjárhagslega traust og amerískt fyrirtæki í Astralíu taldi félagið hafa yfir fullkomnu dreifingar- kerfi að ráöa. Nú vildi dr. Simmonds fá nemendur til aö ráöa Thornton heilt og vandaöist þá máliö. Átti Thornton aö slá til? Menn settu fram hugmyndir og nú sem fyrr voru þeir ekki látnir komast upp meö yfirborðsframsetningu. Einhver vildi skrifa bréf og taka vel í hug- myndina til aö vinna tíma. Gott og vel, en til hvers átti aö nota þann tíma? Til

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.