Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Blaðsíða 16
16
DV,..fVUJGAIWAGUJi lfi. KEBRtJAR J984.
Tuttugu s/óöum
Fyrir framtíðina
Sunnlendingar
Almennar umræður. Allir velkomnir.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN.
Sjálfstœdisflokkurinn efnir til almenns stjórn-
málafundar á Sudurlandi í Selfossbíói sunnu-
daginn 19. febrúarkl. 16.00.
Ræðumenn verða:
Sólrún Jensdóttir,
aðstoðarmaður
menntamálaráðherra.
Þorsteinn Pálsson, Friðrik Sophusson,
alþingismaður — formaður alþingismaður — varafor-
Sjálfstæðisflokksins. maður Sjálfstæðisflokksins.
Sendibréf
lír námsdvöl
Elsku mamma!
Þegar ég hóf guöfræðinámiö hér í Kaupmannahöfn
óraði mig ekki fyrir því að þetta yrði svona kostnaðar-
samt. Bækurnar eru bara svo dýrar héma. Ég reyni að
stilla öllum matarkaupum í hóf eins og ég get. Kaupi
pulsu og pulsu og síöan borða ég brauð og álegg.
Bjórinn. Ja, lítið var en lokið er hugsaði ég í dag þegar
ég vaknaði. Ég bragða ekki bjórinn aftur heldur drekk
bara danska vatnið sem er ágætt ef maður heldur fyrir
nefið þegar maður drekkur.
Ég er dálítið svekktur út í pabba fyrir þessar dylgjur
sem hann var með þegar þið hringduð í síðustu viku,
eða var þetta ekki örugglega í síöustu viku sem þið
hringduð?
Við höldum voða mikið saman hérna nokkrir kátir
Islendingar. Stundum mikið líkamsrækt og hlaup. Ég
var kominn upp á gott lag með að hjóla en varö að selja
hjólið mitt í síðustu viku vegna blankheita. Ég vona
bara að námslánið nái hingað á réttum tíma. Ég er
orðinn töluvert horaðri en ég var áður.
Vertu samt ekkert að hafa miklar áhyggjur af mér.
Maður lifir þetta vonandi af —. Strákur hérna er búinn
að hóta því að berja mig ef ég borga ekki 1000 kall.
Ég fór niður í skóla í síðustu viku. Það var ágætt. Ég
skil krakkana ekkert sérstaklega vel ennþá — enda út-
lendingur. Við höldum voða mikið saman hérna Islend-
ingarnir eins og ég sagði.
Jæja, ég er ekkert að hafa þetta lengra að sinni. Þú
sendir kannski læri og gamla frímerkjasafnið mitt.
P.S. Verið ekkert að hafa áhyggjur af mér.
Það er þetta sem ég hata við kapitalismann.
ó
Við verðum að horfast i augu við það, frú Serensen: Þetta er ekki
smávægilegt þyngdarvandamái. Þér eruð akfeitar.