Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Blaðsíða 19
DV.lXutíÁRDÁGtJR 18.FÉiÖftUÁR 1984. lS' verölaununum fyrir hann, eiginkon- unni Danutu og Bogdan, 13 ára göml- umsyni. Þaö var sannarlega hátíöleg athöfn sem fór fram þennan desemberdag í háskólanum í Osló. Meö virðuleika las Danuta Walesa ræðustúf, sem eigin- maöurinn haföi samið til aö þakka heiðurinn, ræðu sem vakti alla er á hlýddutil umhugsunar: „Þegar ég þakka fyrir þennan heið- ur, sem mér er sýndur, vil ég taka það fram aö ég lít á þetta sem viröingu viö pólsku þjóðina. Þegar ég lít til baka hefur nauðung, hatur og lygi oröið oft á vegi mínum. Það hefur kennt mér að líkamlegt ofbeldi leysir engan vanda. Við óskum friðar og þess vegna gríp- um við ekki til vopna. Viö þráum rétt- læti og munum berjast tU sigurs án vopna.. Hatur og blóö leysir engan vanda.” Eitthvað á þessa leið hljómaði orð- sendingin frá Walesa af vörum Danutu. Hundruð blaðamanna víös vegar að voru komnir. til Oslóar til að hylla þessa hugrökku konu, sem hefur staðið Danuta ásamt Bogdan, elsta syninum, i Osló við afhendingu fríðarverð- launanna. Lech Walesa hefur mikið verið i fjölmiðlum og oft hafa öll lætin i kringum hann tekið á fjölskylduna. við hlið Lech Walesa gegnum súrt og sætt. Hvorki fangelsanir, ofsóknir né hótanir hæstráðenda í Póllandi hafa náð aö buga þessi hjón. „Þessi friðarverðlaun snerta ekki einungis eiginmann minn og pólsku þjóðina heldur allar þjóðir sem berjast fyrir réttlæti,” segir Danuta. „Við höfum ekkert val heima. Við verðum að berjast til þrautar til að halda því sem við þegar höfum náð. Eitt skref aftur á bak getur þýtt að Eining sé búin að vera. Við verðum því að gæta að öllu og viðurkenna fyrir sjálfum okkur að þessi barátta tekur tíma, langan langan tíma.” „Vorum ólýsaniega hamingjusöm" Danuta hreif alla með látlausri framkomu sinni. Það má þvi meö sanni segja að hún hafi komið, séð og sigrað í Osló á dögunum. Hún þótti vingjarnleg í framkomu, glaðleg og ótrúlega róleg þrátt fyrir alla athyglina sem hún vakti. Hún er f jörleg þegar hún segir frá, hendurnar eru á sífelldri hreyfingu til að leggja áherslu á það sem hún hefur að segja. Og tilf inningar hennar má lesa i andlit- inu. „Orðiö gleði er of vægt til orða tekið þegar ég reyni að lýsa tilfinningum okkar er við fréttum að Lech fengi friðarverðlaunin,” segir hún. „Við vorum ólýsanlega hamingjusöm. Það var ekki einungis það að maðurinn minn uppskæri árangur erfiðis síns, heldur og hitt að þetta var alþjóðleg viðurkenning á hugmyndum hans og öllu sem hann berst fyrir. En líf okkar breytist ekkert þrátt fyrir þetta. Okkar lífsmáti og venjur verða þær sömu eftirleiðis sem hingað til. En ef ég á endilega að tala um áhrif þá get ég ekki neitað því að á stundum hefur allt þetta umstang tekið á fjöl- skylduna. Áhugi fólks, jafnvel þeirra sem vilja manni hvað best, getur verið ofmikill.” Bóndadóttirin Danuta er bóndadóttir sem ólst upp í sveitaþorpi skammt frá Varsjá. 19 ára gömul kom hún til Gdansk og fékk vinnu í blómabúð. Dag einn kom hinn sex árum eldri Lech Walesa inn í blómabúðina. Það varð þó ekki ást við fyrstu sýn, eins og þar stendur, að minnsta kosti ekki hvað Danutu við- kemur: „Eg hafði ekki minnsta áhuga á honum. Eg er heldur ekki þannig gerð að ég taki því fyrsta sem býðst. En hvað um það, hann hélt áfram að koma í búðina og ári seinna vorum við gift.” Nú búa þau ásamt börnum sinum sjö, Bogdan, sem er 13 ára og fór með mömmu sinni til Oslóar, er elstur, í 110 fermetra íbúð í úthverfi Gdansk, Zaspa. „Hann lætur mig að mestu um barnauppeldið, enda segist hann hafa 35 milljónir Pólverja á sínum snærum, svo ég geti hugsaö um þessa sjö! Stjómmál ræðum viö h'tið á heimilinu. Þaö kemur fyrir að Lech spyr mig um hvað mér finnist um þessa og hina ákvörðunina. Á þann hátt hef ég kannski pínulitil áhrif á gang mála en að öðru leyti vil ég helst vera í eldhús- inu, þar sem ég ræð ríkjum.” Stolt á báða bóga Lech Walesa hefur sagt um Danutu: „Þó ég sé kannski höfuð fjölskyldunn- ar er það Danuta sem snýr höfðinu. Eg er stoltur af henni. Hún er tákn þeirra pólsku kvenna sem verða að sætta sig viö að eiginmennirnir sitji bak við lás og slá. Það hefur verið erfitt hjá Danutu þegar ég hef setið inni, en hún hefur staðiö sig eins og hetja og í mín- um augum verður hún stöðugt fallegri og fallegri. Auðvitað er Eining líf mitt, en það eru Danuta og bömin lika. Án þeirra gæti ég þetta aldrei.” Andstætt eiginmanninum sparar Danuta stóru orðin. Hún vill helst vera á bak við tjöldin. Heimsóknin til Oslóar og fundirnir með heimspressunni voru undantekning þar á. Það var greinilegt að hún óskaöi þess heitast aö komast sem fyrst heim til bamanna og Lech sem hún er ekki síður stolt af en hann afhenni. -KÞþýddl. Konudagurínn er á morgun G/æsi/egt úrva/ afskorinna b/óma SENDINGAR AF GJAFAVÖRUM B/óma- og þurr- skreytingar við ÖH tækifæri SJÓMENN Á HAFI ÚTI! Þið hríngið og við sendum BREIÐHOLTSBLÓM Arnarbakka 2. Simi 79060.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.