Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 12
12 > DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984. Pétur Símonarson rafvirkja- meistari, eða Pétur frá Vatnskoti eins og hann er oftast nefndur, er orðinn sjötíu og tveggja ára. Þrátt fyrir háan aldur aftrar honum ekkert frá því að stunda skíöi og aðrar fjallaferðir. Pét- ur velur heldur ekki brekkumar af verri sortinni. Brattar hlíðar og púöur- færi er hans líf og yndi. Pétur hefur farið ótal ferðir á jökla meö skíðin meðferðis. Hann fer á hverju ári til Austurríkis eins og sönnum skíða- manni sæmir. Sá frægi skíðabær Lech er uppáhaldsstaður Péturs enda voru lýsingarorðin ekkert spöruð þegar Lechbarágóma. Pétur iðar af kátínu og segir létt og skemmtilega frá. — Hvemig er þetta eiginlega Pétur, þegar annaö fólk á þínum aldri er aö búa sig undir dvöl á elliheimilum þá þeysist þú um öil fjöil á skíðum eins og skrattinn sjálfur? Hvaðan færðu þessa orku? „Það er nú kannski ekkert að marka mig, ég er nú soddan strákur í mér og hef alltaf verið. Eg læt heldur ekki vont veður aftra mér frá að fara á skíði eða upp í f jöll. Það er bara skemmtilegra að lenda í smá veseni. ” — Hafa engir kvillar hrjáð þig, gigt eða önnurveikindi? „Nei. Eg hef alltaf veriö heilsu- hraustur og það má örugglega þakka skíðadellunni. Ef einhver nibba er í manni þá er öruggt ráð aö skella sér á skíði og heiisan skánar um leið. Þessi fjandi heklur manni alveg gangandi og þegar fólk fer að blóta fyrstu snjókomun- um á haustin þá iða ég í skinninu og get vart beðið eftir að þeysa í fjöllin. Slíkur er áhuginn skal ég segja þér. — Hvar skíðarðu aðallega ? „Eg skíða yfirleitt í Bláfjöllum, bæði af gömlum vana og þar finn ég líka brattar brekkur.” — Hvernig byggirðu þig upp fyrir skíðavertíðina? „Og, ég byggi mig nú ekkert sérstak- lega upp fyrir þetta. Eg byrja jú yfir- leitt snemma á haustin að ganga í brekkumar með skíðin. Eg er ekkert aö bíöa eftir þvi að lyftumar séu opn- aðar. Maður notar snjóinn um leið og hann kemur, sjáðu til. Eg er oft kom- inn í einhverja brekkuna um miðjan september, þaö þýðir ekkert annað ef maöur á aö vera í góðu formi. Eg fer mikið á skyttirí. Það getur verið þó nokkurt rölt umheiöamar.” — Nú er eldra íólki hættara við meiðslum og kýs þess vegna að skíða í léttum brekkum og vel troðnum. Ertu aldrei hræddur um að slasa þig þegar þú ert að skíöa í bröttum brekkum og erfiðu færi? „Nei, það er ekki til í því að ég sé hræddur, það þýðir ekkert. Auövitaö er gaman að skíöa í vel troðnum brekkum og léttum. Maður gerir þaö nú líka en það er ekkert fútt í því. Ef ég sé almennilega hólabrekku þá er ég kom- inn í hana eins og skot. Auðvitað er maður á hausnum annað slagið en það er bara eðlilegt meðan maður er að ná tökumá brekkunni. Það er engar hólabrekkur að finna hérna heima og lítið um almennilegt púðurfæri. Eg fer aðallega til Lech í Austurríki, þar er nóg af slíkum brekk- um. Maður tollir varla kyrr í lyftu- stólnum fyrst á morgnana þegar maö- ur veit að í næstu ferð veöur maður púðrið upp að hnjám. Það er ólýsanleg tilfinning. Eg verð alveg óður þegar ég kemst í púðurfæri. Hólabrekkumar eru öllu erfiðari fyrir mig, sérstaklega ef þær eru mjög brattar. Þá má ég hafa mig allan við.” Þess má geta að oftast er slétt úr öll- um hólum og ójöfnum sem myndast hafa í brekkunum að degi loknum. Hól- unum er þó leyft að halda sér í einstök- Það er engin hætta á þvi að Pétur komist ekki á skíði. Hiuti af skiða- safni Péturs. Púðurfæri i Lech. Skiðað á fuiiu og ekkert gefið eftir. ,Verð alveg óður þegar ég kemst í piiðursnjð” • rabbað við Pétur Símonarson, 72 ára gamlan skíðaáhugamann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.