Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Síða 21
DV. L'AtrdÁRÓÁGUÉ 24'. TVÍÁáS lé84. 21 A o :æð sakamál Monica — hún átti vingott við yfirmann eiginmanns sins. verið svo þreyttur að hann hafði ekki tekið eftir tönnunum sem fyrir voru. Sem betur fer var Pedro ekki vaknaöur. Monica stóð ráðvillt og starði ó gómana. Hún varð auðvitaö að fjar- lægja strax tennur Adolfo, en hvorni góminn átti hann? Monica vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Gómamir voru svo líkir. Eldsnöggt stakk hún öðrum gómnum í vasann á sloppnum sínum. I þann mund kom Pedro. Hún var að setja yfir kaffi frammi í eldhúsi, þegar Petro kom fram öskureiður. Hann hélt á fölsku tönnunum í hendinni. „Þetta eru ekki mínar tennur!” hrópaði hann. Monica hafði skýringu á reiðum höndum. Hún sagði að móðir sín hefði gist hjá sér og gleymt tönnunum sínum. „Eg hef tekið þínar í misgripum. Hérna eru þær. Viö bara skiptum,” sagði hún hlæjandi og tók góminn úr vasa sínum. „Eg fer þá snöggvast til mömmu með góminn hennar.” „Nei, bíddu með það til morguns,” sagði Pedro. ,,Eg ætla að vera heima í dag. Adolfo á ekki von á mér í vinnuna fyrr en á morgun. Við höfum því allan daginn fyrr okkur. Förum út að borða. A reikning fyrirtækisins, auðvitað.” Hjarta Monicu sló aukaslag af skelfingu. Hún varð að koma tönnun- um til Adolfo. Ef hann mætti til vinnu tannlaus og hitti Pedro myndi þann síöarnefnda strax gruna eitthvað. Hún þorði þó ekki að hringja til Adolfo heiman að til að aðvara hann. Kannski gæti hún hringt af veitingahúsinu? Undarleg tilviljun Klukkustundu síðar stansaði Pedro bílinn fyrir utan veitingastaðinn E1 Rancho í útjaðri Granada. Þegar þau komu inn fór Pedro á salernið og notaði þá Monica tækifærið til að hringja í Adolfo á skrifstofuna. En hann var þar ekki. Ritarinn hans sagði að hann hefði farið út að borða með viðskiptavini. Monica gat ekki leynt vonbrigðum sínum. Þau Pedro og Monica gengu saman inn í veitingasalinn. A meðan hrósaöi Pedro sér af því hvernig hann hefði platað f orstjórann og hann hló dátt. Þau settust við borð. Við annað borð, aðeins þrjá metra frá þeim, sat Adolfo með viðskiptavin- inum. Adolfo hafði fyrir undarlega tilviljun valið sama veitingastaðinn og Pedro. Monica sá hann fyrst. Hún sat sem lömuö. Svo kom Pedro auga á hann. Monica sá að Pedro brá mjög, hann fitlaöi við borðhníf. Hann var eins og skólastrákur sem skyndilega kemst upp um. Og nú sneri Adolfo sér að þeim. Það sást greinilega að hann var tannlaus. Monica sá hvernig Pedro varð við. Hann herti takið á borðhnífnum, svo hnúarnir hvítnuðu. Þá sneri hann sér snöggt að henni og sagði: „Þaö voru fölsku tennurnar hans sem voru í bað- herberginu, var það ekki? ” Hún svaraði ekki. En hún roönaði upp í hársrætur. Pedro þurfti ekki frekar vitnanna við. , ,Eg drep þig! ” hvæsti hann. Hann stóð upp og gekk að borði Adolfo sem var að tala við viðskipta- vininn. Þegar hann sá tannlausan trant Adolfo, trylltist hann, lyfti hendinni og stakk af krafti borð- hnífnum í upphandlegg Adolfo. Líf eða dauði Adolfo stökk á fætur og veinaði upp yfir sig. Þegar hann sá hatrið í augum Pedros vissi hann að nú var um líf eða dauða að tefla. Hann velti borðinu þegar hann stóð upp. Pedro þreif í hann og reif stykki úr jakka hans. Nú tók Adolfo á rás út af veitinga- staönum og Pedro á eftir. Annað borð fór um koll og þeir hlupu niður einn gestanna. Adolfo hljóp eins og fætur toguðu í áttina að bílastæðunum. Hann ætlaöi aö komast burt á bílnum. Orfá- um skrefum á eftir var Pedro með reiddan hnífinn. Inni á veitingastaðnum voru gestir og starfsfólk óöum að gera sér grein fyrr hvað var að gerast. Veitinga- maöurinn hljóp í símann og hringdi til lögreglunnar. Nokkrir þjónar hlupu út til að fylgjast með framvindu mála. Enginn þeirra haföi þó geð í sér til að blanda sér í málið af ótta viðaðmissa eigiðlíf. Adolfo komst að bílnum, reif upp dyrnar og henti sér bak viö stýrið. Hann læsti hurðinni. Hann leitaði að bíllyklinum en fann hann ekki. Hann mundi þá eftir því að hann lá á boröinu inni í veitingasalnum. Hann komst því ekkert á bílnum. Hann rétt náði að læsa hinum hurðum bílsins áöur en Pedro fór aö hamast á þeim. Pedro gekk eins og óður maöur kringum bílinn og reif í hurðirnar til að reyna að opna þær. Adolfo hélt sig á öruggum stað. Pedro var viti sínu fjær fyrir utan bílinn og tók að berja hann utan með berum hnúunum. Tuttugu manns stóðu álengdar og fylgdust með. Allt í einu heyrðist í bíl, sem ók af stað og á ógnarhraöa á brott. Allir horfðu á eftir bílnum. Viö stýrið sat konan sem hafði verið með árásar- manninum, sem sagt Monica. Hún hvarf á braut. Hún hafði tekið hótanir eiginmanns síns alvarlega og var nú að koma sér í öruggt skjól. Ævilangt fangelsi En Pedro var ekki af baki dottinn. Hann dró vasaklút upp úr vasa sínum, skrúfaöi bensínlokið af tanknum og tróð vasaklútnum til hálfs ofan í tankinn. Að hinum endanum bar hann logandi eldspýtu. Vasaklúturinn fuðraði upp. Pedro flýtti sér í skjól. Og álengdar fylgdist hann með. Allt í einu heyrðist mikil sprenging. Bíll Adolfo var í b jörtu báli. Adolfo lét lífiö. Þótt einhver hefði viljað reyna að bjarga honum, hefði það ekki tekist. Allt gerðist svo snöggt. Pedro var enn fullur haturs og hrópaöi ókvæðisorð á eftir Adolfo inn í eilíföina. Hann blótaði enn þegar lög- reglan handtók hann fyrir morðið. Pedro var dæmdur í ævilangt fang- elsiímaíáriðl979. Monica, konan hans, flutti til annars bæjar og skildi ekki eftir sig neitt heimilisfang. Hún óttast enn um líf sitt þvi í réttarsalnum sór Pedro að hann skyldi flýja til þess að geta gert upp reikningana við hana. DAGS FORSKOT Á ÍÞRÓTTAFRÉTTIR HELGA&INNAR B VARTA OFURKRAFTUR - ÓTRÚLEG EIMDING VARTA GÆÐI Á GÓÐU VERÐI ávallt í leiðinni FRAMLEIÐENDUR BETRI BÍLA í EVRÓPU VELJA VARTA RAFGEYMA í BÍLA SÍNA Það segir meira en mörg orð. Framleiðendur Mercedes Benz, BMW, Volkswagen og fleiri, velja VARTA rafgeyma, enda hefur reynslan sýnt að VARTA rafgeymum má treysta. Þeir bjóða upp á meira kaldræsiþol, eru viðhaldsfríir og einnig ódýrir. 60 AMP-stundir kr. 1.494.00. 70 AMP-stundir kr. 1.788.00. Hentar flestum gerðum bifreiða. Á OLÍS stöðvum færðu VARTA rafgeymi, og ísetningu á staðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.