Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Blaðsíða 2
'.2 DV. FÖSTUDAGUR 6. APRlL 1984. Óskað löggjafar um greiöslukort Jón Magnússon, varaþingmaöur Sjálfstæöisflokksins, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um aö rikisstjórninni veröi faiiö að skipa nefnd til aö semja frumvarp til laga um greiöslukort og starfsemi greiöslukortafyrirtæk ja. Jón Magnússon sagöi í samtali viö DV aö tillaga þessi væri flutt vegna þess að notkun greiðslukorta geröist stööugt algengari en engin heildar- löggjöf tæki til notkunar þeirra. Þau skilyröi og skilmálar, sem nú gilda um greiðslukort, eru sett einhliöa af greiðslukortafyrirtækjum en skortur á löggjöf í þessum efnum getur valdið réttaróvissu. Sagöi Jón aö löggjöfin ætti fyrst og fremst að tryggja jafnræði aðila á markaði gagnvart þessu greiöslu- fyrirkomulagi, neytenda og kaupmanna jafnt sem greiöslukorta- fyrirtækja. Nú væru þær reglur, sem greiðslukortafyrirtækin störfuöu eftir, samræmdar á milli þeirra í öll- um aöalatriöum, en neytendur og kaupmenn hafa ekki veriö spuröir álits. Jón taldi aö nefnd sú, sem skipuö yröi, ætti aö skoöa þetta mál í sem víðtækustu samhengi og ættu aö sitja í henni meðal annars fulltrúar bankakerfisins, greiöslukortafyrir- tækjanna, Verslunarráösins, Kaup- mannasamtakanna, Neytendasam- takanna, verkalýðshreyfingarinnar og viöskiptaráöuneytisins. -ÓEF. EVRÓPURÁÐSTEFNA UM SAMSKIPTI NORÐURS OG SUÐURS „Noröur—suður: Hlutverk Evrópu” er heiti ráöstefnu á vegum Evrópuráðsins sem hefst í Lissabon í Portúgal næstkomandi mánudag. Fjallaö veröur um öll helstu vanda- málin sem setja svip á samskipti iönríkja noröursins og þróunarlanda suöursins, svo sem endurbætur á hinu alþjóölega hagkerfi og baráttuna gegn hungri og fólksfjölgun. Hugmyndina aö ráöstefnunni setti Olafur Ragnar Grímsson varaþmg- maöur fram á þingi Evrópuráðsins áriö 1981. Tillaga hans um efni, tilgang og skipulag ráðstefnunnar var samþykkt sumariö 1982. Hann varö svo formaöur skipulagsnefndar ráðstefnunnar. Af Islands hálfu munu auk Olafs sækja ráöstefnuna alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Halldór Blöndal og Kjartan Jóhannsson, Olafur Egilsson sendiherra og Jón Ormur Halldórsson hjá Hjálparstofnun kirkjunnar. Meöal framsögumanna veröa Willy Brandt, fyrrum kanslarí Vestur- Þýskalands, Mario Soares, forsætis- ráöherra Portúgal, Narashima Rao, utanríkisráöherra Indlands og Uffe Elleman-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur. Ráöstefnan verður haldin í þing- höllinni í Lissabon. Hana sækja rúmlega 400 fulltrúar frá þjóöþingum og ríkisstjómum Evrópu, samtökum ríkja þriöja heimsins og alþjóöa- stofnunum. Hún mun standa yfir í þrjá daga. -KMU. FJARSKIPTAFRUMVARP- INU VERÐUR BREYTT — segir Ragnhildur Helgadóttir menntamálaraðherra „Þaö er nú ljóst aö útvarpslaga- frumvarpiö verður samþykkt á undan frumvarpi um fjarskipti og þá verður að laga þaö síðarnefnda eftir því,” sagöi Ragnhildur Helgadóttir mennta- málaráöherra um þaö misræmi sem er milli þessara tveggja stjómar- frumvarpa um hvort leyfa eigi ein- staklingum og félögum aö starfrækja kapalkerfi og önnur fjarskiptavirki. I fmmvarpi um fjarskipti er felld niöur heimild til ráöherra sem nú er í fjarskiptalögum um aö veita öörum aöilum en ríkinu leyfi til reksturs minniháttar fjarskiptakerfa. Eins og DV greindi frá fyrir helgi lokar þetta frumvarp þeim möguleika að sjálf- stæðir aöilar geti rekið kapalkerfi en sá möguleiki myndi opnast með út- varpslagafrumvarpinu. Ragnhildur Helgadóttir sagöi aö þetta misræmi milli stjómarfrum- varpanna myndi ekki valda neinum stórvandræðum þar sem frumvarpmu um f jarskipti yröi breytt. ■ÚEF. Fyrirliggjandi í birgðastöð STANGA- Fjölbreyttar stærðir og þykktir Vinkiljárn I— Ferkantað járn ■ Flatjárn _ Sívalt járn • SINDRAi rm .STÁLHF Borgartúni 31 sími 27222 Vorid rr koniið'. á þrí rr riiginn rai'i. Fugla- söiifíiir hct/risl itii á björhiin iiwrfíiiuin. Pað sti/tlist nijöfí í suniarið. Siitnardafíiirinn fi/rsti rr á skirdafí. I!). april. Pillitrinn ni/tur rorsins i Ijöriiiini (i Srlljariiarnrsi. DV-nifínd Finar Olason. Samningaviðræður hafnar á milli Þörungarvinnslunnar og Skipstjórafélagsins: „Ég vona að ekki komi til verkfalls” — segir Halldór Steinþórsson, skipstjóri á Karlsey Samningaviöræöur eru hafnará flutningaskip meö fimm manna milli Þömngavinnslunnar og Skip- áhöfn og er í þangflutningum um stjórafélagsms vegna deilu skip- Breiöaf jörö og málið er að ég tel aö stjórans á Karlsey, skips Þörunga-' ég eigi aö vera á venjulegum flutn- vinnslunar, við fyrirtækiö en hann ingasamningum skipstjóra en þaö hefur boðað verkfall frá 11. apríl hafi hef ég ekki veriö. ” samningar ekki náöst. Halldór sagöi ennfremur aöenginn „Eg vona aö ekki komi til verk- af áhöfn skipsins heföi verið á falls en ég boðaöi þaö til að þrýsta á flutningaskipasamningum og væri um aö ég færi á rétta samninga hjá einnig veriö að athuga málefni vinnslunni,” sagöi Halldór Stein- þeirra í þessum samningum. þórsson, skipstjóri á Karlsey, í Engin vinnsla er nú hjá Þörunga- samtaliviöDV. vinnslunni þar sem skipið er nú í „Karlsey er 179 tonna viðgerð. -FRI. SAMVINNUFERÐIR FÁ GULLVERDLAUN — bjóða upp á bestu ferð ársins á Norðurlöndum Fulltrúi frá Samvinnuferðum mun taka á móti gullverðlaunum í Osló 9. apríl nk. en þau eru fyrir ,,Ferð ársins ’84”. Var þaö hringferð Samvmnu- ferða um landið sem á ensku nefnist .Jfocus on Life” sem varö hlutskörp- ust. „Viö erum aö sjálfsögöu ákaflega Stoltir yfir þessari viðurkenningu,” sagði Helgi Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða í gær. ,,Focus on Life” er hringferö um Island þar sem gist er á bestu hótelum og ekki látið nægja aö sýna ferðalöng- um landslag heldur einnig, og ekki síður, ýmsa atvinnustarfsemi og líf fólksinsílandinu.” I viötali, sem birtist viö Einar Bolla- son í DV í gær, var ranglega sagt aö sjö daga hestaferð yfir Kjöl heföi veriö kjörin besta ferð ársins á Norðurlönd- um. Aö vísu fékk hestaferð Einars og Islensku hestaleigunnar viöurkenn- ingu en gullverðlaunin fóru til Sam- vinnuferða. Samvinnuferðir fengu einnig viðurkenningu fyrir aöra ferö' sem á ensku nefnist „Wonder of Walk- ing” en hún felst í því aö feröamenn eru keyrðir á milli fallegra gönguleiða sem þeir síöan troða og gista í svefn- pokumámilli. „Þetta er meiri viðurkenning en virðast kann í fyrstu vegna þess að í samkeppni þessari höfum viö þurft aö keppa viö velflestar feröaskrifstofur á Norðurlöndum og þær eru ófáar,” sagöi Helgi Jóhannsson hjá Samvinnu- feröum. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.