Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Blaðsíða 14
14
DV. FÖSTUDAGUR 6. APRlL 1984.
Spurningin
Hverjir finnst þér hafa verið
helstu kostir og gallar ríkis-
stjórnarinnar?
Garöar Alfonsson: Þetta er erfiö
spuming. Ég veit ekki hvort hún hefur
gert nokkra góöa hluti. t>aö er kannski
helst veröbólgan en það hefur bara
bitnaö á öðru svo það má deila um
hvort það er gott verk.
Lúvís Pétursson: Hún hefur staöið sig
vel og þá sérstaklega í veröbólgubar-
áttunni. Ég held að ég sleppi að svara
þessu meö gallana.
Hjálmar Jóhannsson: Kvótakerfiö er
hennar stærsti galli en veröbólgu-
stríöiö hefur borið góöan árangur þó
hún hafi komið hart niöur á laun-
þegum. Eg held aö þaö sé allt þess
viröi að ná henni niöur.
Jóhann Sigfússon: Veröbólgubaráttan
er númer eitt. Þaö er erfitt að segja til
um gallana, nema ef vera skyldi þessi
sífellda ósamstaöa innan hennar og
yfirlýsingar á báöa bóga.
Kristinn Sigurjónsson: Þetta hefur
allt verið í rétta átt hjá þeim, sér-
staklega aö ná niöur veröbólgunni.
Sigríöur Vaigeirsdóttir: Ég veit nú
ekki, en þaö besta sem hún gæti gert er
aö leyfa Albert að hafa hundinn.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Bréfritarí villekki sjá áiver við Eyjafjörð.
Álver við Eyja-
fjörð — nei, takk
Þóröur Björgvinsson útgeröarmaöur
skrifar:
Þessum orðum sem hér eru
skrifuö vil ég beina aö þeim hópi
manna sem hlynntur er byggingu ál-
vers viö Eyjafjörö.
Gerið þiö ykkur grein fyrir að ef
þessi draumur ykkar verður aö
veruleika þá hafiö þið stuðlað aö
óbætanlegum náttúruspjöllum og um
leiö útilokað fjölda annarra og betri
kosta hvað varðar iðnaöar- og
atvinnuuppbyggingu viö Eyja-
fjörö? Fiskeldi í firðinum yröi til
aö mynda útilokaö og er þaö miður
því þarna eru ákjósanlegar aöstæöur
til slíkrar atvinnu.
Þaö er einnig hægt aö útiloka alla
matvælaframleiöslu, kjötiðnað og
garðrækt. Athugiö að í framtíðinni
munu matvæli frá Islandi talin í sér-
flokki ef viö höfum vit á aö halda
landinu hreinu og ómenguðu.
Ég vil líka benda á að Eyja-
fjaröarsvæðiö er eitt þaö fegursta á
landinu en þá fegurö getum við af-
skrifað ef álver, tvöfalt á við það í
Straumsvík, veröur reist viö þennan
lognkyrra f jörö.
Viljiö þiö ganga aö færiböndum
erlendra auökýfinga sem eitthvert
annars flokks fólk eöa viljiö þiö
halda þeirri reisn sem andstæöingar
stóriöju meö íhlutun hafa? Island er í
mínum huga besta land á jöröu hér
og viö eigum að geta lifað hér án
erlendra afskipta. Lifið heil.
Leðursðfasett í miklu úrvali
íleðurdeild á3juhœð.
Munið okkar
hagstæðu
greiðsluski/má/a.
Opið til kl. 20 í kvöld
og til kl. 16
laugardag
jia
Jón Loftsson hf.
/A A A A A Z.
BlcMl □ J
□ c s c u Giaaaj-jq
cjLiur''—
LLLJJ
Hringbraut 121 Sími 10600
Gagnrýni
á gagnrýni
Páls Baldvinssonar
3362—3224 skrifar:
Mig rak í rogastans er ég las gagn-
rýni í menningardálki DV þann 2. apríl
sl. þar sem fjallaö er um Tómasar-
kvöld Þjóöleikhússins.
Slik níöskrif sem þar eru hef ég
sjaldan lesið, um flutning sem ég hafði
mjög gaman af og skemmti mér í raun
konunglega.
Eg vil líka meina aö allflestir viö-
staddra gesta hafi sömu skoðun ef
marka má hiö góða hljóö og hiö mikla
lófatak í lok hvers þáttar fyrir utan
framíköll eins gests sem hafði trufl-
andi áhrif á áheyrendur.
Páll Baldvinsson, sá er þetta skrif-
aði, ætti sjálfur aö leggjast upp í rúm
meö ljóöabók eftir Tómas, og geröi
hann svo ætti hann alls ekki aö hafa
eytt kvöldinu til einskis.
Efast ég um að flutningur á nokkru
efni sé þessum mikla fræöingi, sem
Páll hlýtur aö vera, til hæfis, utan það
sem enginn áhugamaöur skilur eöa
geturhlustaðá.
Eg er ekki lærður í Tómasarljóöum
og ekki heldur spekingur um sviös-
framkomu eða sérfræöingur í áhersl-
um en þaö get ég sagt aö ekki heföi ég
getað eytt þessari kvöldstund á betri
veg. I aö hlusta á skemmtilega og vel
flutta dagskrá er kvöldinu svo
sannarlega vel varið.
Maturinn fór víst eitthvað í taugam-
ar á Páli en hann taldi sig ekki getað
lastaö hann líka enda varla menntaöur
„gúrme”.
Létt máltíö var auglýst og ekki
kostaöi hún mikið, 175 krónur. Húsið
þarf ekki að skammast sín fyrir hana.
Ogaölokumþetta:
Páll segir fólki aö fara ekki aö
hlusta á þennan flutning. Á móti segi
ég: Takið ekki mark á Páli.
Geimfarinn
John Glenn
Áhugamenn um tunglferöir skrifa:
Um fátt hefur verið meira rætt á
mínum vinnustaö í þessari viku en
grein sem birtist í síöasta Helgarblaöi
DV, en grein þessi fjallaöi um fyrstu
tunglfarana. Þar eru höfð um þaö
mörg orö að John Glenn hafi veriö í
hópi þeirra fyrstu er stigu fæti á tungl-
iö og þótti mörgum þaö ný tíðindi sem
von er. Við vinnufélagarnir töldum
flestir aö ranghermt væri en sumir
fóru að efast og töldu jafnvel aö minnið
heföi brugöist sér og lá viö aö menn
veöjuðu um hvort þessi þáverandi for-
stjóri heföi tekiö sér frí í fyrirtækinu á
meðan á tunglferöinni stóö. Þrátt fyrir
víötæka leit fundum viö hvergi heim-
ildir fyrir því að John Glenn heföi
nokkru sinni stigiö fæti sínum á
tungliö. Hins vegar vita flestir aö hann
fór þrjá hringi umhverfis jöröu meö
„Friendship” geimfari árið 1962 og
samtímaannnálar greina frá því aö
hann hafi gengið úr flughernum 1965 og
verið ráðinn skömmu síðar forstjóri að
bandarísku stórfyrirtæki þar til hann
var kjörinn á þing fyrir Ohio árið 1975.
Viö félagarnir biöum því fram eftir
viku eftir að leiðrétting birtist í DV.
Blaðið hefur hins vegar ekki séð
ástæöu til aö leiðrétta þessa forkastan-
legu grein og viljum viö því gjarnan fá
nánari skýringar á hvaöan umrædd
grein er komin og hvemig hún komst
gagnrýnislaust á síöur Helgarblaðs
DV. Þaö er mannlegt aö gera mistök
en í tilfelli sem þessu ber blaöinu
skylda til aö biöja lesendur sínar
afsökunar.
SvarDV:
Greinin sem vísað er til í bréfinu er
þýdd úr dönsku og var hún meö þeim
rangfærslum sem birtar voru í Helgar-
blaði DV. Blaöamaöur, sem ekki var
sérlega kunnugur staöreyndum máls-
ins, þýddi greinina. Því fór sem fór.
Helgarblaðið biöst velviröingar á
þessum mistökum.