Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Blaðsíða 17
DV. FÖSTUDAGUR 6. APRlL 1984. 25 íþróttir Öllu stolið f rá Udinese (þróttir (þróttir Iþróttir (þróttir Sagt eftir leikinn: „Þetta var mjög skemmtilegur og góður leikur. Lcikmenn léku vel og drengilega,” sagði Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra eftir leik Vals og KR í Höliinni í gærkvöidi en hann var ásamt konu sinni heiðursgestur stjórnar KKÍ á leiknum. „Eg verð hins vegar að viðurkenna að ég hef lítið fylgst með körfuknattleik en cftir að hafa séð þennan skemmtUega leik hér í kvöld kcmur vel tU greina að fylgjast með körfuboltaleikjum í framtiðinni,” sagði Steingrímur. -SK. „Góð vörn er besta sóknin” „Það var fyrst og fremst samstaða og feikilega góð barátta scm færði okkur þennan sigur,” sagði .Jón Sigurðsson, þjálfari KR. „Við fórum seint af stað í leiknum og ástæðan fyrir því er aðallega sú að KR-liöið hefur ekki i langan tima ieikið úrslitaieik. Þaö hafa Valsmenn hins vegar gert oft upp á síðkastið. En eftir að við áttuðum okkur á hlutunum í siðari hálfieik var ég ekki í vafa um að við myndum standa uppi sem sigur- vegarar í lokin. Vörnin var þá frábær hjá okkur og það saunaðist að góð vörn er besta sóknin." -SK. „Vorum miklu betri” „Þetta var alveg meiri háttar sigur. Við vorum miklu betri og áttum sigurinn fylli- lega skilinn,” sagði Páll Kolbeinsson i KR. „Þetta var skemmtilegur leikur og ég er nokkuð ánægður með þátt minn í sigrinum. Lenti að visu i óþarfa villuvandræðum undir iokin en það skipti ekki raáli.” -SK. „Þetta var topp- leikur” „Þetta var toppieikur. Baráttau í KR- liðinu var alveg einstök,” sagði Kristlnn Stefánsson KR-ingur eftir leikinn en hann lék lengi með KR og landsliðinu og stjórnaði innáskiptingum hjá KR í gærkvöldi ásamt Gunnari Gunnarssyni. „Það voru margir ieikmenn í mínu liði sem léku vei. Til dæmis Garðar Jóhannsson. Hann var alvcg frábær. Og þeir sem komu inn í leikinn af varamanuabekknum stóðu sigmeöafbrigðumvel.” -SK. I/D „Wlf- hjartað sló hratt íkvöld” „Ég get sagt þér það að gamla KR-hjartað sló hraðar í kvöld cn það hefur lengi gert. Ég er í sjöunda himni,” sagði Einar Bolla- son, þjálfari Hauka, varaformaður KKÍ og gamall KR-ingur. „Við vorum einfaldlega miklu betri á öllum sviðum. KR-liðið lék alveg stórkost- lega í þessum leik. Það kom mér hins vegar á óvart hve Valsliðið var baráttulitiö i leiknum.” -SK. „Vörnin klikkaði” ,J>að var vörnin sem klikkaði fyrst og fremst hjá okkur í þessum leik,” sagði Vals- maðurinn Jón Steingrimsson. „Við hikuðum örlitið í siðari hálfleik og það nægði KR-ingunum. Hvað okkur varðar þá hafa margir leikmenn leikið mun betur en í kvöld og liðið raunar í hcild upp á síðkastið, þá hjálpaði það ekki til að dóm- gæslan var mjög slök,” sagði Jón. -SK. dsí Mail á hæð og 38 kg. Enn hefur hún ekki notað keppnisskó í hlaupum sínum, finnast þeir of þungir. Besti árangur hennar er í 5000 m hlaupi. Þar hefur hún náð sex sekúnda betri tíma en nokkur önnur kona. Tíininn þó ekki viöurkenndur sem heimsmet þar sem Suður-Afríka er ekki aðili að alþjóða- frjálsíþróttasambandinu. Persónuleg methennarerunú: 1500 m4:01,81min. 3000 m 8:37,5 mín. og 5000 m 15:01,83 mín. -hsím. Zico gat ekki lelklð með Udinese vegna meiðsla í gærkvöldi og hefur líklega skammast sin nokkuð fyrir landa sina en móttökur þeirra voru vægast sagt óvæntar. — leikmenn liðsins fengu óvæntar móttökur er þeir léku vináttuleik í Brasilíu Leikmenn ítalska knattspyrnuliðsins Udinese fengu heldur betur óvæntar móttökur er þeir í gærkvöldi léku vin- áttuleik gegn úrvalsliði frá Brasiliu í Brasilíu. Fyrri hálfleikur gekk eðlilega fyrir sig en er leikmenn ítalska liðsins komu til búningsherbergis síns í leikhléi blasti við þeim hálf ömurleg stað- reynd. Öllum fötum þeirra, úrum, pen- ingum og öörum farangri hafði verið stolið og leikmenn liðsins sátu uppi ráðalausir. Þeir neituðu að hefja síðari hálfleikinn fyrr en þeir hefðu fengið loforð Brasilíumanna fyrir því að þeir fengju skaðann bættan. Því lofaði einn af forráðamönnum úrvalsliðsins bras- ilíska, hét hann að greiða hverjum leikmanni sem svarar til um fjögur þúsund ísl. kr. í bætur. Leikmenn Udinese, sem léku án snillingsins Zico, töpuðu leiknum 0—1 og fóru því til síns heima með heldur slæmar minningar frá heimalandi Zicos. -SK I ? Eins og fram hefur komið mun allt I besta frjálsíþróttafólk okkar sem Iæfir I Bandarikjunum taka þátt í miklu stórmóti sem fram fer í Texas | um hclgina. Bíða margir spenntir ■ eftir árangri íslenska íþróttafólkslns 1 sem hefur undanfarið verið að bæta ■ árangur sinn í hinum ýmsu greinum. Nokkur meiðsli eru þó farin að gera vart við sig hjá tslendlngunum. Siguröur Einarsson spjótkastari get- ur ekki keppt, á við meiðsli að striða i olnboga og hefur ekki getað kastað undanfarna daga. Þá er talið mjög líklegt að kúluvarparinn Oskar Jakobsson verði ekki meðal kepp- I enda, á við meiðsli að stríða. J Ekki tókst að fá það staðfest i gær- | kvöldi hvort Lyfjanefnd ÍSl hygðist ■ láta prófa islensku keppendurna á I mótinu. Alfreð Þorsteinsson, for- I maður nefndarinnar, hefur hins vcg- ■ ar lýst því yfir „að þaö gæti allt eins I orðið.” -SK | m ímm nam mmm mmm mmm a— mmm Jl Haukastúlkurnar i körfuknattleik komu nokkuð á óvart i gærkvöldi er þær gerðu sér lítið fyrir og sigruðu ný- bakaða íslandsmeistara ÍS i úrslitaleik bikarkeppninnar. Lokatölur urðu 69— 57 eftir að staöan í leikhléi hafði verið 35—28 Haukum í vil. Sigur Hauka var mjög sanngjarn. Hafnarfjarðardömurnar léku af miklu öryggi undir stjórn Kolbrúnar„Dollu” Jónsdóttur, en svo skemmtilega vill til að hún æfir og leikur með ÍS. Hún valdi sér hins vegar þaö hlutskipti í gær- kvöldi að stjórna Haukaliöinu en Stúdínur sátu eftir með sárt ennið. Yfirleitt voru Hauka-stúlkur yfir í leiknum, þetta 5—10 stig, en þegar átta mínútur voru til leiksloka tókst ÍS að jafna metin og spennan gífurleg í lok- in. En dömurnar hennar Dollu gáfu ekki tommu eftir á lokamínútunum og fyrsti sigur Hauka á körfuknattleiks- móti en örugglega ekki sá síðasti var staðreynd. Sanngjarn sigur og fögnuð- ur Haukastúlknanna var gífurlegar í lokin svo ekki sé sterkara tekið til oröa. Sóley bidriðadóttir átti stórleik hjá Hauk- um og skoraði 32 stig, tæpan helming stiganna fyrir Hauka. Svanhildur Guölaugsdóttir átti einnig góðan leik og skoraði 16 stig en í heild lck Hauka-Iiðið mjög vel. Einhvern neista vantaði í IS-liðið að þessu sinni og baráttan ekki fyrir hendi. Kolbrún Leifsdóttir skoraði mest fyrir ÍS, 20 stig en þær Hanna Birgisdóttlr og Ragnhildur Stein- bach skoruðu 10 hvor. -SK Sigur KR-inga í Bikarkeppni KKÍ í gærkvöldi var fyrsti sigur liðsins á stórmóti síðan 1979. TitiUinn var því leikmönnum liðsins og áhangendum kærkominn svo ekki sé meira sagt. Sigur KR í keppninni er mjög sannfærandi. Liðið byrjaði á því að leggja sigurvegarana í 1. deild, Stúdenta, að velli. í næstu umferð sigruðu KR-ingar Laugdæli, því næst sjálfa Íslandsmeistarana, Njarðvík, og loks vann liðið sigur yfir Keflvíkingum í undanúrslitinum. Og í gærkvöldi sigraði KR í bikarkeppninni í 10. skipti en fyrst varð liðið bikarmeistari árið 1966. -SK. 10. sigur KR íbikarkeppninni > Fyrsti sigur Hauka — stúlkumar hennar „Dollu”slógu ígegn ígærkvöldiogurðu bikarmeistarar í körfu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.