Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Qupperneq 7
DV. FÖSTUDAGUR 6. APRlL 1984. 7 Útlönd Útlönd Útlönd Kotanámumenn og lögregla iróstum við skrifstofur kolaráðs ríkisins. Vilja ekki taka þátt í kolaverkfalli Fulltrúar námamanna á næst- stærsta kolasvæði Bretlands greiddu atkvæði gegn því í gær að taka þátt í kolanámuverkfallinu sem lokað hefur tveim þriðju af kolanámum ríkisins í nærfjórar vikur. Verkfallssinnar gerðu óp aö fulltrú- um kolanámumanna frá Nottingham- shire sem með 186 atkvæðum gegn 72 höfðu fellt tillögu foringja sinna um aö ekki skyldi gengið til starfa í gegnum raðir verkfallsvarða. 1 Nottinghamshire eru um 34000 námamenn og höfðu þeir áöur greitt atkvæði gegn verkfalli. — Verkfallið hefur veriö róstursamt, og verkfalls- verðir úr öörum héruðum hafa komið til Nottinghamshire til þess aö hindra starfandi kolanámumenn þar í að mæta til starfa. Einn maður lést af meiðslum sem hann hlaut í slíkum ryskingum. I gær handtók lögreglan fjóra verk- fallssinna í róstum sem urðu áður en gengið var til atkvæða. Aðrir 29 voru teknir úr umferð í Port Talbot þar sem um 600 námamenn efndu til kröfu- göngu við stáliðjuver en stáliönaður- menn hafa ekki viljað fara í samúðar- verkfall meö námumönnum. FærTreholt eftirlaun? Blaðafulltrúi utanríkis, Geir Grung, hefur upplýst að Ame Treholt muni þrátt fyrir uppsögn halda hluta af launum sínum um einhvern óákveðinn tíma. Þaö verður hins vegar stórþingið sem tekur endanlega ákvöröun um hvort honum beri eftirlaun. Kari Storækre, eiginkona Treholts, mun halda áfram störfum hjá norska sjónvarpinu og hefur nú verið leyft að koma fram á skjánum að nýju. Ráðn- ingarsamningur hennar rennur út í byrjun maí og um tíma leit út fyrir að hún yrði ekki endurráðin. Nú hefur hins vegar orðið samkomulag um að Storækre haldi áfram. —Pétur Ástvaldsson í Osló. 70 þúsund í verkfall íNor- egi á morgun Um 70 þúsund manns í Noregi munu að öllum líkindum fara í verkfall á miðnætti í nótt. Eru það starfsmenn í málmiðnaöi, starfsfólk á hótelum og í veitingaiðnaði og fataiðnaði. Kröfur þessara félaga snúast einkanlega um styttingu vinnutíma og hækkun lág- markslauna. Verkfallið mun hafa víð-; tæk áhrif ef af því verður, fyrir utan röskun á ýmiss konar þjónustu er hætta á að útgáfa nokkurra dagblaða stöðvist, svo • sem Aftenposten og Verdens gang. Tæknimenn útvarps og sjónvarps hafa ennfremur átt í vinnudeilu við norska ríkisútvarpið og er ekki taliö að hún leysist fyrir páska. Horfur eru því á að dagskrá ríkisfjölmiðlanna fari úr skorðum á næstunni. —Pétur Ástvaldsson í Osló. Nýtt á Islandi Hitamaskinn kominn aftur Maski þessi hentar öllum húötegundum og hefur náð stórkostlegum árangri í hreinsun og fegrun húðarinnar. Snögg samlögun virkra efna í blóðinu er framkölluð með augnablikshækkun hitastigs húðarinnar og eykur þannig súrefni frumnanna í gegnum háræðakerfið. FRUMSÝNING CORSA 2ja dyra ssáíssií ípmís CORSA 3ja dyra Þetta er sá yngsti í Opel-fjölskyldunni — Corsa. Hann veröur frumsýndur á bílasýningunni Auto ’84. En hann veröur ekki einmana, því aö viö sýnum líka Opel Kadett og Opel Ascona, Isuzu Piazza, Isuzu Trooper, Izuzu KB Pickup, Chevrolet Pickup og Chevrolet Blazer. Þaö er sama hvers konar bíl þiö eruö aö hugsa um — fjölskyldubíl, feröa- eöa vinnubíl — þeir bíöa ykkar allir á sýningarsvæöi okkar á Auto ’84. Komiö og skoöiö. Viö bjóöum ykkur velkomin. HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.