Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1984, Blaðsíða 28
>V. F^ÓáTUDÁtítíR 6.' ÁPRÍL i9b4
DIRE STRAITS — ALCHEMY
SNILLINGUR
AÐ STÖRFUM
Þaö veröur aö seg jast að þaö er ekk-
ert sem kemur á óvart. Þetta eru Dire
Straits aö leika flest af sinum þekkt-
ustu lögum yfirleitt í þeim útsetning-
um sem við þekkjum þau og er oft
furðulegt hversu lítill munur er á
stúdíóupptöku og hljómleikum. Það er
helst aö viö fáum enn fleiri dæmi um
snilli Mark Knopflers á gítarinn.
Þaö eru 10 lög á þessum tveimur
plötum. Átta þeirra eru tekin af eldri
plötum, eitt er áöur óheyrt á plötu og
annaö hefur Mark Knopfler samiö við
kvikmynd.
Dire Straits hefur á glæsilegum ferli
sínum sent frá sér fjórar LP-plötur
sem allar hafa hlotiö veröskuldaöa at-
hygli þótt nokkuö misjafnar hafi veriö
að gæðum. Þaö er enginn vafi á því aö
Dire Straits er einhver allra besta
hljómsveit sem nú er starfandi. En
hvaö er þaö sem gerir Dire Straits svo
merkilega? Því er auösvarað. Mark
Knopfler.
Mark Knopfler er allt í öllu hjá Dire
Straits. Þaö má deila um hæfileika
hans sem söngvara. En sem lagahöf-
undur og gítarleikari er hann í hópi
fárra útvalinna. Því var þaö með
nokkurri tilhlökkun aö tvær plötur meö
upptökum frá hljómleikum með Dire
Straits voru settar á fóninn. Alchemy
nefnist afuröin og er þessi upptaka frá
einum hljómleikum, en ekki tveimur
eða þremur og mixað í stúdíói eins og
tíðkastoröið.
Af fyrstu plötu Dire Straits er bar
einfaldlega nafnið Dire Straits er aö-
eins eitt lag, vinsælasta lag hljómsveit-
arinnar til þessa, Sultan Of Swing.
Þetta prýðislag stendur enn vel fyrir
sinu og þolir vel helmingslengingu eins
og þaö hefur fengiö. Þaö sama er að
segja um næstu plötu Dire Straits,
Communique. Aöeins eitt lag, Once
Upon A Time In The West, besta lag á
Communique, er á Alchemy og er þaö
byrjunarlag konsertsins.
Þriðja plata Dire Straits, Making
Movies, er að flestra áliti meistara-
verk þeirra til þessa og eru á Alchemy
flutt fjögur lög af þessari frábæru
plötu. Romeo og Juliet kemur fyrst,
síðan Expresso Love, Tunnel Of Love,
sem aö mínum dómi er besta lag sem
Dire Straits héfur sent frá sér, er flutt
á konsertinum meö nokkuö löngu for-
spili og fjórða lagiö er Solid Rock. Af
síöustu stúdióplötu Dire Straits, Love
Over Gold, kemur fyrri hliö plötunnar
eins og hún leggur sig. Telegraph
Road sem aö gæöum slagar hátt upp í
Tunnel Of Love er þama aðeins í
styttri útsetningu og svo hiö sérkenni-
iega en um leið heillandi lag Private
Ingvestigations.
Eins og sést á þessari upptalningu
er þarna r jóminn af lagasmíöum Mark
Knopflers. Þaö er helst aö ég sakni
fleiri laga af fyrstu plötunni. Þá er
ógetiö tveggja laga, Two Young Lov-
ers sem ekki hefur heyrst áöur, f jörug-
ur rokkari, þar sem saxófónleikarinn
Mel Colins fær aö spreyta sig og Going
Home — Theme From „Local Hero”
sem er hliöarstökk Mark Knopflers í
gerð kvikmyndatónlistar.
Alchemy er skínandi gott dæmi um
afrek Dire Straits á liðnum árum og
góö eign fyrir hina mörgu aödáendur
Mark Knopflers en hún er engin stór-
viðburður á ferli Dire Straits. Þaö
veröur næsta stúdíóalbúm aö skera úr
um, og verður þess beðiö með eftir-
væntingu.
MARK knopfler
GAZEBO
Þaö er ekki þaö aö lögin séu eins, held-
ur eru þaö útsetningarnar sem eru svo
keimlíkar.
Gazebo sjálfur er ágætur raulari en
mjög lítil tilbreyting er í söng hans. Af
Itala aö vera er enska hans furðanlega
góð og framburöur á textum góður.
Plata Gazebo er ein af þeim sem
ágætt er aö setja á fóninn þegar maöur
vill afslappandi tónlist sem krefst
einskis af manni, en veröur nokkuö
þreytandi til lengdar. HK.
Pier Lugi Giombini, og þrátt fyrir aö á
plötunni séu nokkur lög sem falla vel
aö eyrum verður aö segjast eins og er
aö hiö vinsæla I Like Chopin er eina
lagiö sem sker sig nokkuö úr heildinni
hvaö gæöi snertir. Aö vísu er þaö flutt
á plötunni í alitof langri útsetningu eöa
nálægt átta mínútur í flutningi. En eft-
ir að hafa heyrt þaö finnst manni eins
og önnur lög séu eftiröpun á þessu lagi.
Þaö hefur ekki farið fram hjá nein-
um sem á annaö borö hlustar á útvarp
aö eitt allra vinsælasta lag á undan-
förnum mánuöum hefur verið I Like
Chopin, flutt af ítöiskum poppara, Gaz-
ebo aö nafni. Enda er um aö ræða fall-
egt lag í virkilega góöri útsetningu.
Gazebo þessi heitir réttu nafni Paul
Mazzolini og áöur en hann gat sér nafn
sem söngvari haföi hann leikið í rokk-
hljómsveitum um hríö. En hann er
einn af þeim heppnu og heppnin birtist
í líki tónlistarmannsins og lagahöfund-
arins Pier Lugi Giombini sem breytti
ímynd unga rokkarans, geröi hann aö
súkkulaöistráknum sem slegið hefur í
gegn á meginlandi Evrópu á síöasta
ári, fyrst meö Masterpiece og síöan
kom I Like Chopin. Og hafa honum
veriö allar dyr opnar síöan.
Fyrsta LP-plata Gazebo ber nafn
hans og inniheldur átta lög sem þeir
hafa samið í sameiningu, Gazebo og
Við fljúgum
ántafar~
ínnanlands sem utan
HÖFUM OPNAÐ
BÍLASÖLU
300 FERMETRA
SÝNIIMGARSALUR
Óskum eftir öllum tegundum bifreiða á skrá
Opið frá mánudegi til föstudags kl. 10 — 19,
einnig laugardaga kl. 10 — 17.
Bilasalan Val
SverrirÞóroddsson
REYKJAVÍKURFLUGVELLI ® 28011
SMIÐJUVEG118 C - KÓPAVOGI
SMÆLKI
I fréttum er þetta heLst
. . . Enn hefur ekki veriö
gefin nein skyring a moröinu
a Marvin Gaye en sennilegt
aö nmma feöganna hafi
sprottiö af klúrum textum
' sonarins í seinni tiö. Faðir
hans, presturinn, greip þa til
byssunnar og svaraði aö
bandariskum (sjómanna) siö
Breska STEF hefur
barist fyrir þvi í morg ar aö
sérstakt gjald verði lagt a
tómar snældur vegna taps
sem tónskáld og eigendur
flutningsréttar veröa fyrir
við upptökur af plötum i
heimahúsum. Taliö er aö
arangur sé aö nást í þessu
réttlætismáli og verö a tóm-
um snældum hækki uin helm-
ing i Bretlandi innan tiöar.
Svipað mal er í gangi hér
heima sem kunnugt er . . .-
Mætti lauina því að I.istahá-
tíö aö Billy Joelverður á ferö-
inni yfir hafiö í juní. Hann fer
þa aö heimán frá sér i, hljóm-
-k'ikaferð til Bretlands? . . .
Joe Struinmer hefur látiö þau
orö falla um Neil Konnock,
formann breska verka-
mannaflokksins, aö hann
skilji ekki rokktónlist. Kinn-
ock kemur fram í myndbandi
Tracie Ullmans í laginu My
Guy og sennilega er eitthvert
samband hér á milli . . .
Söngkonan Gabrielle Sus-
anne Kerner gerir þaö gott
þessa dagana, topplag í Bret-
landi og annaö sætiö í Banda-.
ríkjunum. Kerner hvað? Jú,
öðru nafni Nena og okkur er
sönn ánægja aö upplýsa um
morgunverð hennar: egg,
kaffibolli og brauösneiö . . .
ZTT heitir hljómplötufyrir-
tæki í eigu Trevor Horn, upp-
tökustjórans kunna, t)g þar a
samningi er meðal annarra
Frankie Goes to Hollywood.
Þýsk hljomsveit er líka á
mala hjá ZTi' og þykir lofa
goöu. nafn: Propaganda.
Iwggiö þaö á minniö . . .
I’aul Simon sendir innan
skamms frá sér lag á smá-
skifu: Think Too Much, sem
er í sjálfu sér ekki í frásögur
færandi nema af þvi Koo
Stark, leikkonan og fyrrum
vinkona Andrew prins,
kemur fram í laginu . . .
Kvikmyndin Against All
Odds hefur aö geyma mörg
góö rokklög. Þegar er búiöaö
gefa út titillag Phil Collins en
Kid Creole, Peter Gabriel,
Big Country og Stevie Nicks
eiga líka lög í myndinni... og
núermálaðlinni.
>|»l»";<8Byar 1mm