Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 2
DV. LAÚGARDAGÚR 5. MAl 1984. Fimmtiu tonnum af finnsku kartöflunum hefur verið hent og þær sem dreift hefur verið i verslanir verða allar innkallaðar eftir helgi. Töluvert magn af hollenskum kartöflum, mun betri en þeim finnsku, er ihúsakynnum Grænmetisverslunarinnar eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var þar igær. Þessar kartöflur fara i kartöfluverksmiðjur. Kartöflurfrá Hollandi: DV-mynd Loftur. BÆÐIBETRIOG ODYRARI „Viö höfum hér í höndunum tilboð frá hollenskum kartöflukaupmanni á prýðisgóðum kartöflum. Hingaö komið myndi kilóið kosta 12 krónur í smásölu, pakkað í neytendaumbúðir,” sagði Sæmundur Gunnarsson verslunar- stjóri í Hagkaupi við DV í gær. „Þetta er haustuppskera af kartöflum en þær erugóðar cnnþá.” Þetta verö er án niðurgreiöslna. En samkvæmt upplýsingum Gunnlaugs Bjömssonar, forstjóra Grænmetis- verslunar landbúnaðarins, er hvert kíló af finnsku kartöflunum, sem stór hluti af hefur reynst skemmdur og sýktur, greitt niður úr ríkissjóði um 2,40 kr. Hámarksniðurgreiðslur á kartöflum eru 5,98 kr. á kíló. Finnsku kartöflumar kosta í heildsölu meö niðurgreiðslu 13,60 kílóið og 15,60 í smásölu. Þó að Hagkaupsmenn hafi tilboö í höndunum um lægra verð á kartöflum og líklega betri er ekki þar með sagt að neytendur hér geti notið góðs af. Innflutningur á kartöflum er sem kunnugt er aöeins í höndum Grænmetisverslunar landbúnaðarins. „Getum fengiö nýjar kartöflur í skip í Rotterdam á mánudag" „Við gætum fengið nýjar kartöflur í skip í Rotterdam strax á mánudag. Samkvæmt tilboði, sem við höfum fengið, myndi kílóið kosta hingað komið með öllum gjöldum 18,36 krónur, eða um 21 krónu í smásöiu,” sagði Magnús Erlendsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Björgvin Schram hf„ í viðtali við DV. Þetta verð er án niðurgreiðslna. „Viö erum árið um kring í sam- böndum nánast um allan heim vegna ávaxtainnflutnings en aldrei hefur Grænmetisverslun landbúnaðarins leitað til okkar. Vegna ummæla, sem höfð voru eftir forstjóra Grænmetis- verslunarinnar í útvarpi, að nýjar erlendar kartöflur yrðu mjög dýrar hér, leituðum við upplýsinga hjá okkar erlendu aðilum. Forstjórinn nefndi að kílóið af nýjum kartöflum myndi kosta á milli 30 og 40 krónur. Nýjar kartöflur eru komnar frá Grikkiandi, það er verð á þeim sem ég nefndi hér,” sagði Magnús ennfremur. Nýjar ítalskar kartöflur eru einnig komnar á markaði erlendis og einnig frá Möltu og Israel. Fáanlegar eru svo hollenskar kartöfl- ur, haustuppskera, á mjög góðu verði. Við höfum haft samband við fleiri inn- flytjendur sem hafa sambönd erlendis við ávaxta- og grænmetiskaupmenn og hafa þeir sömu sögu að segja og fram- kvæmdastjóri Björgvins Schram hf. -ÞG Söngvakeppnin íbeinni útsendingu fkvöld KJÓSIÐ SJÁLF HEIMA í STOFU Eins og kunnugt er veröur Eurovision söngvakeppnin í beinni útsendingu í kvöld. Fer keppnin fram í Luxemburg og hefst útsending klukkan 19. Af þessu tilefni höfum viö útbúið töflu fyrir lesendur blaösins, svo þeir sjálfir geti gefið einkunnir þeim þátttak- endum sem fram koma og svo borið saman við endanleg úrslit keppninnar. Við höfum gert töfluna þannig úr garði að fleiri en einn á heimilinu geti tekiðþátt. -KÞ Land Nafn á lagi Flytjandi Ykkar einkunnagjöf Endanleg úrslit Svíþjóð Diggi-Loo Diggi-Ley Herrey's Luxemburg 100% d'amour Sophie Carle Frakkland Autant d'amoureux que d'étoiles Annick Thoumazeau Spánn Lady,Lady Bravo Noregur Lenge Leve Livet Benedikte Adrian & Ingrid Björnov Bretland Love Games Belle and the Devotions Kýpur Anna Mari-Elena Andy Paul Belgía Avanti la Vie Jacques Zegers írland Terminal 3 Linda Martin Danmörk Det Lige Det Hot lce Holland Ik Hou Van Joui Maribelle Júgóslavía Cao Amore Ida and Vlado Austurríki Einfach Weg Anita Þýskaland Aufrecht Gehen Mary Roos Tyrkland Halay Bes Yil Once on Yil Sonra Finnland Hengaillaan Kirka Sviss Welche Farbe Hat der Sonnenschein Rainy Day Ítalía I Trendi di Tozeur Alice & Franco Battiato Portúgal Silencio e Tanta Gente Maria Guinot

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.