Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 18
 i * ,1 islandskort. aðfjallaomgomu"sla ■pp 8 ýningineingöngu Upphaflaga í§landssýnmg í Vínarborg 1984: GEIRFUGL, ÍSLENSK ÓPEXt A, STI5I\4SÖF\... 18 DV. LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984. Eirikur Helgason, Vínarborg, viötal og myndir. Rætt vid Ilelmut Neumaim, framkvæmdastjóra sýningarinnar Hvaö veröur svo á sýningunni? „Þar kennir ýmissa grasa,” sagði Helmut. Alls kyns hlutir, í eigu Austur- ríkis og Austurríkismanna varðandi Island og Islendinga. Eftir Austur- ríkismenn sem unnið hafa á Islandi. Eftir Islendinga sem unnið hafa í Austurríki og yfirleitt allt sem hægt var aö grafa upp hér í Austurríki tengt Islandi. Að sögn Helmut eru ýmsir fágætir munir á sýningunni. Eg bað hann að gera grein fyrir nokkrum þeirra svo lesendur gætu fengið hug- mynd um hvers konar sýningu hér er um að ræða. Verðmætt handrit ,,Það er erfitt að gera grein fyrir þessu í stuttu máli. Viö veröum meö handrit, svo eitthvað sé nefnt, mjög verðmætt, sem Austurríki á og varð til á Islandi. Þaö er af Jónsbók og talið vera frá því á 14. öld. Handrit þetta fengu Austurríkismenn í skiptum frá Dönum árið 1838. Danir munu hafa fengið eitthvert austurrískt menn- ingarverömæti í staðinn. Þama verður líka annað handrit í eigu Austurríkis. Þaö er handrit sem austurríska keisaradæminu var gefið í stjómartíö Maríu Theresíu árið 1764. Handrit þetta inniheldur Davíössálma á latínu og er íslenska þýðingin skrifuö á milli línanna. Viö fáum líka á sýninguna, með aö- stoö stofnunar Ama Magnússonar, tvö handrit frá Islandi. Jónas Kristjáns- son, formaður stofnunarinnar, kemur sjálfur með Njáls-Sögu og Snorra- Eddu. Við verðum með fleiri stórkost- leg verðmæti úr fortíðinni og dettur mér þá í hug aö nefna að Naturhistori- sches Museum í Vín lánar geirfugl í eigu stofnunarinnar og má geta þess til glöggvunar um verðmæti fuglsim; aö hann er tryggður á 580.000 austurríska skildinga (Tæplega 900 þús. ísl. kr.) Geirfuglinn komst í eigu Vínarbúa árið 1831 en eins og kunnugt er var síðasta eintakiö drepiðálslandi3. júní 1844.” Alltof langt mál yröi að telja upp hluti þá sem til sýnis verða á þessari Islandssýningu. Þeir eru ótrúlega fjöl- breyttir. Þar má nefna aö allar þær íslensku bækur sem hafa veriö þýddar á þýsku úr íslensku og náðst hefur í veröa hér til sýnis. Þar verða verk eftir Halldór Laxness, Nonna, Gunnar Gunnarsson, Benedikt Gröndal svo eitthvaö sé nefnt. Meira aö segja veröur íslenska ævintýrið Búkolla til sýnis í þýskri þýðingu Más Magnús- sonar, svo sjá má að bókakosturinn verður f jölbreyttur. íslensk ópera Ekki er við öðru að búast en tónlistin fái ítarlega umfjöllun á sýningu í höfuðborg tónlistarinnar, Vínarborg. Hvað getur Hebnut frætt okkur um þann þátt sýningarinnar? „Tónlistin fær sinn skerf á sýning- unni. Við verðum með á sýningunni tónlist eftir Austurríkismenn sem unn- ið hafa á Islandi og Islendinga sem unniö hafa og eða lært í Austurríki. Svo eitthvað sé nefnt verða á sýningunni verk eftir Jónas Ingimundarson, Jór- unni Viðar, dr. Hallgrím Helgason, Jón Leifs og fleiri Islendinga sem hér hafa lært eöa tengjast Austurríki á einhvern hátt. Ásýningunni verða líka verk eftir Austurríkismenn sem flutt hafa til Islands og helgað íslensku tónlistarlífi krafta sína. Má þar nefna þá Pál Pampichler Pálsson, dr. Viktor Urbancic og Melitu konu hans og síðast Helmut Neumann, framkvæmdastjóri sýningarinnar, biaðar isýningarskránni. I gær, þann 4. maí, var opnuð í Vínarborg við hátíðlega athöfn Is- landssýning í tilefni af 40 éra afmæli lýöveldisins íslands. Fyrir sýningunni standa Austurrisk-íslenska félagið í Austurríki og austurríska þjóöarbóka- safnið. Formaöur Austurrisk-íslenska félagsins er Islandsvinurinn, sellóleik- arinn, tónskáldiö og ráðuneytisritarinn Hehnut Neumann. Hann hefur borið hitann og þungann af undirbúningi sýningarinnar. Ég sótti Helmut heim aö heimili hans i Klosterneuburg, lítilli borg i nágrenni Vinar, þeirra erinda að fræðast um sýningu þessa. „Undirbúningur sýningarinnar hefur staðiö sl. fjögur ár og hef ég unn- ið að þessu í öllum frístundum mínum í langan tíma,” sagði Helmut. Hér er um að ræða yfirgripsmikla sýningu. Hún verður haldin í húsakynnum der „Osterreichischen National- Bibliothek” við Josefsplatz nr. 1 í Vínarborg. Salur sá sem sýningin er haldin í er að sögn Helmut einn sá allra fegursti af mörgum fögrum í gjörvallri Vínarborg. Salurinn er um 60 metrar að lengd og verður í honum komið fyrir 154 sýningarkössum sem hver um sig er hálfur annar metri að lengd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.