Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 4
4 DV. LAUGARÐAGUR 5. MAt 1984. Flugmálastjórn kannar atviká Reykjavíkurflugvelli: Hætta á stórslysi? Flugmálastjórn kannar nú atvik er varö á Reykjavíkurflugvelli síðastlið- inn mánudag. Samkvæmt frásögn sjónarvotts voru Fokker-vél frá Flug- leiðum og lítil einshreyfilsvél nærri ientar í árekstri. Flugleiöavélin var aö koma yfir Oskjuhlíð til lendingar á braut 32. Rétt áður en hún átti aö snerta flugbrautina stefndi litla vélin inn á flugbrautina þar sem tvær aöalbrautir vallarins skerast. Fokker-vélinni var gefiö inn fullt afl. Litla vélin snarbeygði út í kant „meö ægilegu ískri og látum”, aö sögn manns er sá atvikið úr Oskjuhlíö. Haukur Hauksson varaflugmála- stjóri kvaöst sjálfur hafa séö þegar Flugleiöavélin hætti viö lendingu og klifraöi á fullu afli. Hann haföi ekki fengið skýringu á því hvers vegna Fokkerinn „púllaði upp” en sagði aö málið yröi rannsakað. -KMU. EINMITT FYRIR ÞIG! SÝNIIMG UM HELGINA Sýnum um helgina ýmsar skemmtilegar nýjungar. Verið velkomin. OPIÐÍDAG KL. 10-16 OG SUNNUDAG KL. 13-16 Borgartúni 27 Sími 28450 Hægt er aö fá innréttingu í hvaöa eldhús sem er, stór eöa lítil, viö viljum benda þeim á sem hafa mjög þröng eldhús aö hægt er aö gera þessi litlu ótrúlega „stór" Hægt er aö fá margskonar aukahluti svo sem hillur fyrir búsáhöld, brauöbretti, vínrekka, o.fl. o.fl. Breskt herskip kom til Reykjavíkur igær i fyrstu slika heimsókn siðan fyrir þorskastrið og að sjálfsögðu tóku ungir menn sig til og fóru að veiða hjá skipinu við Ægisgarð. Afvarð hins vegar ekki nýtt þorskastrið. DV-mynd/EÓ. Hagkaup heldur áfram sölu gleraugnanna: SÆKJA UM UNDAN- ÞÁGU TIL RÁÐHERRA Hagkaup hefur ákveöið aö halda á- fram sölu á lestrargleraugum þrátt fyrir aö ný lög um gleraugnasölu hafi nú öölast gildi meö birtingu þeirra í Stjórnartíöindum. Gísli Blöndal hjá Hagkaupi sagöi í samtali við DV aö þeir myndu sækja um úrskurö ráðherra um hvort þessi gleraugu féiiu undir nýju lögin og til vara sækja þeir um undanþágu til aö selja þessi gleraugu. „Þessi gleraugu eru meö jafnan styrk báöum megin og henta aðeins á- kveönum hópi fólks og viö teljum engan mun á þeim og til dæmis stækkunarglerjum,” sagöi Gísli. -FRI. Gallerí Langbrók: Bómull og postulín Gallerí Langbrók opnar í dag, laug- ardag, klukkan fjórtán, kynningu á verkum þeirra Steinunnar Bergsteins- dóttur og Kolbrúnar Björgólf sdóttur. Steinunn sýnir handmálaöan bómullarfatnaö og ullarfatnað. Kol- brún sýnir skartgripi úr postulíni. Kynningin veröur opin virka daga frá klukkan 12 til 18 en um helgar frá 14 til 18. -JGH. ENGINN STRÆTÓ í HAFNARFJÖRÐ? — verkfall hef st á sunnudagskvöld „Verkfallsboöunin stendur óbreytt. Við höfum ekki fengið þær undirtektir viö kröfum okkar sem gefa til kynna að samningar séu aö takast,” sagði Jón Svavarsson, formaöur bílstjórafélags Landleiða, síödegis í gær. A miönætti á sunnudag hefst tveggja daga verkfall bílstjóranna. Hafnar- fjaröarstrætó mun því ekki aka á mánudag og þriðjudag. Síöasta ferö úr Reykjavík til Hafnarfjarðar veröur klukkan 23.30 á sunnudagskvöld. Síðasti vagn úr Hafnarfirði leggur af staöámiðnætti,klukkan24. -KMU. DagurEvrópu 1984: Evrópuráðið 35 ára Nú eru 35 ár liöin frá stofnun Evrópuráösins og veröur þess minnst í öllum aöildarríkjum þess hinn 5. maí, á degi Evrópu. Dagurinn er aö þessu sinni helgaður grundvallarhugtökum Evrópuráösins, frelsi og lýöræði. Evrópuráöiö samanstendur af 21 ríki, þ.á m. Islandi, og tryggir meö mannréttindasáttmálanum vernd og þróun frelsis sem yfirstígur landa- mæri. Brúðhjónum boðið til Júgóslavíu I tengslum viö skipulagöar hópferðir Samvinnuferöa-Landsýnar til Dubrovnik í Júgóslavíu hafa þar- lendir f erðamálafrömuðir ákveöiö aö bjóöa ungum, nýgiftum, íslenskum brúðhjónum til árlegrar brúðkaups- hátíðar í Júgóslavíu. Verður ferðin þeim alg jörlega að kostnaöarlausu. Samvinnuferöir leita nú brúöhjóna sem giftu sig á tímabilinu 1. janúar til 24. maí á þessu ári. Skilyrðin, sem júgóslavneska feröamálaráöiö setur, er aö karl- maðurinn sé ekki eldri en 30 ára, og kvenmaðurinn ekkieldrien 28 ára. Bæöi tali 1—2 tungumál utan móöur- málsins og aö a .m.k. annar aðilinn sé á einhvern hátt tengdur listum, menningarmálum, vísindum eöa öðrum þjóðþrifamálum. -FRI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.