Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Page 13
DV. LAUGARDAGUR 5. MAI 1984.
Lengi lifi lífið. Við vitum aldrei hvar það endar, syngja Dolly de Luxe i kvöld i Evróvisjon.
keppninni. Fá þær stig?
13
Norsarar í Evróvis jón í kvöld:
Vinnum ekki
með norskan
texta
Norðmenn hafa alltaf verið
okkur íslendingum til óblandinnar
skemmtunar þegar þeir koma
fram í Evróvisjón söngvakeppn-
inni. Jahn nokkrum Teigen, sem
vinsæll er meðal Norðmanna,
hefur til dæmis einu sinni tekist að
fá núll í keppninni og í annað skipti
að vera mjög stigafár. Leynivopnin
sem Norðmenn verða með í keppn-
inni að þessu sinni heita Benediete
Adrian og Ingrid Bjomlov.
„Við fáum sambönd erlendis og
nú er allt tilbúið fyrir innrás á
Evrópumarkað,” segja þær stöllur
gunnreif ar fyrir keppnina.
Þær segjast hafa verið að búa til
ný lög frá því í október í fyrra og
reynt að endurnýja sig og bæta.
Saman kalla þær sig Dolly de luxe
og lagið sem þær syngja heitir
„Lenge leve livet”. Þær sendu það
inn til keppni um útnefninu í Noregi
og þeirra lag var valið úr 950.
Lag og texta hafa þær stöllur
gert sjálfar. Lagið heitir á ensku
„Life was made for living” og
norsk, ensk og frönsk útgáfa af þvi
er nú þegar komin á markaðinn.
„Það er reglulega leiðinlegt að fá
ekki að syngja á ensku,” andvarpa
þær stöÚur. ,,Lagið er langbest
þannig og þá skilja líka fleiri text-
ann. Það er líka innihald í honum.
Það er ekki sama kínverskan og er
á klútunum okkar. Táknin á klútun-
um þýða raunar „gefið okkur fleiri
stig þegar við komum til Lúx-
emborgar”. Sniðugt?”
Dolly de Luxe eiga eftir að fara
til Filippseyja í sumar í hljóm-
leikaferðalag og munu þegar vera
búnar að vinna sér nafn í Japan.
Svo verður auðvitað hljómleika-
ferðalag um Noreg eftir keppnina.
Við fylgjumst með þeim í kvöld.
Stórkostlegar breytingar hafa verið gerðar á
Safnlánakerfinu þér í hag svo að segja má að um nánast
NÝTT SAFNLÁN sé að ræða.
Lengri endurgreiðslutími
Endurgreiðslutími láns eykst því lengur sem sparað er.
Sparnaður 3-6 mán. Endurgr. 3-6 mán.
Sparnaður 7-12 mán. Endurgr. 9-15 mán.
Spamaður 13-18 mán. Endurgr. 18-27 mán.
Hærri vextir:17% og 19%
Nú eru vextir af þriggja til fimm mánaða reikningum 17% og fara
upp í 19% ef spamaðurinn nær yfir 6 mánuði eða lengur.
Hærra lánshlutfall
Lánshlutfallið með Safnlánakerfmu verður mun hagstæðara eftir
því sem lengur er sparað.
Eftir 3-6 mánaða sparnað 100%
Eftir 7-12 mánaða sparnað 125%
Eftir 13-18 mánaða sparnað 150%
Hámarks upphæð sem veitir lánsréttindi er nú 10.000 kr. á mánuði.
Að öðru leyti má spara hvaða upphæð sem er.
Hag þínum er vissulega betur borgið með þessum breyt-
ingum á Safnláninu.
Leitaðu upplýsinga og fáðu bækling í næsta Verzlunarbanka.
UCRZLUNfiRBflNKíNN
Bankastræti 5 Grensásvegi 13 Umferðarmiðstöðinni Vatnsnesvegi 14, Keflavík Húsi verslunarinnar,
Arnarbakka 2 Laugavegi 172 v/Hringbraut Þverholti, Mosfellssveit nýja miðbænum
Taktu Safnlán - því eru lítil takmörk sett.
AUK hf. Auglýsingastofa Kristínar 43.63