Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Side 14
14 DV.LAUGARDAGUR5.MAI 1984. ROKKSPILDAN ROKKSPILDAN ROKKSPILDAN Norræna rokkhátíöin, sem hald- in er í samvinnu viö listahátið, verður i Laugardalshöllinni 3. júni nk. og munu sex hljómsveitir koma fram, ein frá hverju Norður- landanna og tvær islenskar hljómsveitir, Vonbrigði og Þursa- flokkurinn. Nú er áformað að halda svona hátiðir á öllum hinum Norðurlöndunum. Vonbrigði mun ekki hafa komið fram í tvo mánuði er hátíðin verður þar sem þeir eru nú að æfa upp nýtt prógramm fyrir þessa tónleika en Þursaflokkurinn stefnir á plötuútgáfu á þessum tíma og eru þeir nú í stúdíói. Rokk- spildan hefur heyrt að á þessum tónleikum muni Karl Sighvatsson koma fram með Þursum á nýjan leik. Hvað norrænu hljómsveitirnar varöar þá kemur kvennahljóm- sveitin Clinic Q frá Danmörku en hún er óðum að skipa sér sess sem þekktasta hljómsveit Dana þessa dagana og hefur CBS gefið út eina plötu meö þeim en önnur mun vera í smíðum. Grýlumar munu hafa komið fram með stúlkunum í Clinic Q er þær voru í Danmörku á sínumtíma. Frá Noregi kemur hljómsveitin Circus Modern sem fengið hefur góða dóma að undanförnu í norsku pressunni og eru miklar vonir bundnar viö þessa sveit þar í bæ. Einn af meðlimum Circus er úr hljómsveitinni Kjött sem var ein helsta pönkrokksveit Norðmanna á árunum eftir 1980. Frá Svíþjóð kemur hljómsveitin Imperiet sem sprottin er úr „Utangarðsmönnum” þeirra Svía, hljómsveitinni Ebba Grön. Sæuska hljómsveitin Imperiet. f Ikarus- platan Ný plata með hljómsveit- inni Ikarusi var gefin út um helgina. Hún ber heitið Rás 5—20 og skartar ýmsum „perlum”, eins og lögunum Berti blanki og MX Geir. Ekki eru áformaðir tónleikar hjá Ikarusi fyrsta kastið þar sem Þorlákur Kristinsson er í Þýskalandi þessa dagana og ekki ljóst hvenær hann kemur í sumar, en heyrst hefur að aðrir meðiimir sveitarinnar verði meö óvæntar uppákomur í kjölfar útgáfunnar. Vonbrigði og Þursaf lokkur verða á norrænu rokkhátíðinni: Fleiri hátíðir á Norður- löndum Þessi hljómsveit er nú á viða- miklu tónieikaferðalagi um öll Norðurlöndin og lýkur því ferða- lagi hér í Reykjavík þann 3. júní nk. Hljómsveitin hefur þegar gefið út tvær plötur, en er einkum þekkt fyrir beinskeytta texta. Frá Finnlandi kemur hljóm- sveitin Hefty Load sem er sex manna sveit og skartar m.a. saxófónleikara. Tónlist hennar er undir miklum fönk-áhrifum og er hún, að sögn kunnugra, örugglega ein fremsta hljómsveit á Norðurlöndum á því sviði. Nýlega kom út fyrsta plata sveitarinnar en „pródúsent” á henni var Jimi Sumen sem sumir muna ef til vill eftir úr Classix Nouveaux. Eitt laganna á þessari plötu hefur nú náð í 5. sæti breska Independant-listans. „Rokkhátíð þessi er að mörgu leyti þýöingarmikil fyrir íslenska ,tónlistarmenn. Þetta er fyrsta hátíð sinnar tegundar og sem slík á hún þátt í að koma á auknu sam- starfi milli landanna á þessu sviöi, samstarfi sem ekki hefur verið til staðar áður,” sagði Ásmundur Jónsson í samtali við Rokkspilduna en hann er einn af skipulegg jendum hátíðarinnar. „Þessi hátíð kemur til með að verða mikilvæg fyrir okkur því í framhaldi af henni verður efnt til fleiri hátíöa á öllum hinum Norðurlöndunum,” sagði hann. -FRI Norska hljómsveitin Circus Modern. Bergþór og Rúnar halda áfram með Egó: „Búnir að stofna blúsband” Þungarokkstónleikar íSafari: Kröfu- pass Þungarokk hefur notið vax- andi vinsælda hérlendis að undanförnu eins og stofnun Skarr ber með sér, þ.e.- þungarokksklúbbsins, og hefur aðsóknin í Safari á tónlistarkvöldin þar verið einna best ef boðið er upp á hljómsveitir á þessu sviði. Tvær slíkar sleiktu hljóðfærin fyrir rúmri viku, annars vegar hljómsveitin Pass úr Mosfellssveit sem lítið hefur heyrst til í ár og hins vegar Drýsill sem nokk- uð hefur borið á undanfarna mánuði. Pass hóf leikinn með dúndrandi keyrslu, hefur greinilega bæði hörkuna og „innyflin” til að standa í þessu en tónlistin er á köflum mjög á ...„hvar hef ég heyrt þessa frasa áöur?...” nótunum, til dæmis sagði einn kunningi minn í miðju kafi eins af hraðskreiðari lög- unum: „Eins og Marillion á 120 snúningum.” Trommuleikur og gítar í sumum „riffunum” báru af hjá Pass og á heildina litið hefur hljómsveitin „spilin” til að bera þótt nafnið bendi til annars, nema þetta sé kröfupass hjá henni. Drýsill keyrir meira á út- litið en Pass, mun meira leður og króm á sviðinu, hljómsveitin tók til við að berja á hlustum viðstaddra, yfirvegaðri og rólegri í tíð- inni en Pass, svona svipað og „Whitesnake” ef við teljum Pass á „Iron Maiden” lín- unni. Sterkasta tromp Drýsils er söngvarinn Eiríkur, rödd sem getur „rifið” hvaða hlustir sem er, en á íslenskan mælikvarða er hljómsveitin traust enda skipuð flestum „aðalbrýnunum” sem komið hafa við sögu á undanfömum árum. Þeirra þungarokk sver sig meir i ætt við hart og gott rock’n’roll fremur en annað sem kannski er því að kenna að kerfið sem notast er við er ekki beint sniðið að þessari tegund tónlistar þótt Bjama Friðrikssyni í hljóöblöndun- inni hafi tekist ótrúlega vel að koma „þungarokks- hljómnum” til skila út í sal án þess að úr yrði einn þéttur hávaðaveggur. -FRI Rúnar Erlingsson og, Bergþór Morthens ætla að halda áfram með hljóm- sveitina Egó og eru þeir nú að leita að mönnum til að fylla upp í skörðin. Ýmis- legt annað er einnig á döf- inni hjá þeim eins og fram kemur í eftirfarandi viðtali sem tekið var „Hjá Kokknum” á Laugavegi meðan viðkomandi slöfruðu í sig súpu og styrktan pilsner. „Við erum búnir að stofna blús- band sem í eru við tveir og Siggi Bjóla en Siggi ætlar að syngja og spila á trommur,” byrja þeir á að segja rokkspildunni sem svelgist á súpunni viö að heyra tíðindin. „Ekki gera grín að þessu, þetta er háalvarlegt atriöi og við höfum [ þegar fengið „gig” íFæreyjum.” I alvöru? „Það er í athugun. Siggi reddaöi í því. Við fórum að kíkja á trommu-1 settiö hans um daginn og það^ reyndist ein 16 tommu bassa- tromma, einn hyatt og einn simbal • en hann var jafnvel að spá í aö setja sneril framan við það,” segja þeir og brosa. Fram kemur í umræðunum að viökomandi blúsband er ekki farið að æfa neitt ennþá því Siggi er búinn að vera svo önnum kafinn í Broadway en drög að æfingum eru komin eins og þeir orða það. En hvað er að gerast í Egó- dæminu eftir að Bubbi hætti og nýja platan kom út? „Við höldum áfram meö Egó. Að vísu er ekkert komið á hreint hvaða mannskapur verður með. Þau mál öll eru á viðkvæmu stigi og ekki hægt að greina frá neinum án þess að koma við taugar ann- arra,” segja þeir og bæta því svo við að allir sem þeir hafi haft sam- band við séu mjög jákvæðir á þátt- töku í hljómsveitinni. Verður ekki erfitt að fylla skarö söngvarans? „Við höfum verið að velta fyrir okkur tveimur nöfnum, karl- mannsnöfnum, en einnig hefur verið fleygt í okkur einu/tveimur kvenmannsnöfnum en þar sem viö erum mikil karlrembusvín, eins og fram kemur á plötunni, verður karlsöngvari ráðinn.” Það sem ég átti við var hvort ekki væri erfitt að finna einhvern til að fara í spor Bubba? „Áttu við fyrir okkur eða viðkomandi söngvara?” Bæði? „Það er kannski ekkert erfitt fyrir okkur en margir sem við höfum rætt við eru ragir við aö taka viðaf Bubba. Málið er hins vegar það að með nýrri liöskipan kemur alveg nýtt prógramm og við höfum algjör- lega sagt skiliö við fortíðina þó við höldum nafninu áfram. En það er ekkert öruggt og kannski skiptum viðeinnig umnafn,” segjaþeir. „Við erum að spá í að byggja upp prógramm þar sem byggt er á liðsheildinni en leiðtogakerfið verður látið róa. Leiðtogi er svo sem nauðsynlegur í þessum hópi en enginn slíkur verður til staðar á sviðinu skulum við seg ja.” Hvað tónlistina varðar benda þeir á að þeir hafi samið öll lögin á nýju plötunni og þótt tónlistin komi til með að taka breytingum með nýjum mönnum þá sé efniö af plötunni nýtt fyrir þá og þeir hafi áhuga á að þróa það efni áfram. Þeir reikna með að þetta taki nokkum tíma þannig að Egó mun ekki þvælast fyrir þessum fimm „sumarferðum” eða svo sem rúlla munu um landið í sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.