Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Síða 17
DV. LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984.
17
Samtima sögu-
legar heimildir
um ævi Jesú og
postulanna finn-
ast engar og
áratugaleit að
einhverjum kristn
um fornleif-
um hefur engan
árangur borið.
H eimildaskorturinn veldur
vandræðalegri sambúö kirkju og sagn-
fræði. Kirkjan þykist eigi kippa sér
upp við þetta, það megi vera ráðgáta,
aðalatriöi sé að lesa guöspjöllin og trúa
og vitnar til orðanna: „Vond og guð-
laus kynslóð heimtar tákn, en hún skal
ekkert tákn fá. .. ” Þó hefur kirkjan
sjálf lagt mikið upp úr táknum,
stundað Biblíurannsóknir og án efa
tekiö því fegins hendi, ef fomleifarann-
sóknir hefðu dregið eitthvað fram í
dagsljósiö.
Hvort sem umfjöllunarmaöur telur
sig sagnfræöing eða kirkjusögufræð-
ing, leggur hann guðspjöllin til grund-
vallar, færir til mannlífs og umhverfis
í Gyöingalandi og Rómaveldi. Þannig
hafa verið skrifaðar á síðari tímum
næstum óteljandi ævisögur Jesúsar,
morandi af getgátum og í bland við
síðari helgisögur, eða menn reyna að
skoða Jesús frá ólikum sjónarhornum,
eins og sálræn lýsing Emest Renans,
sem fræg varð á miðri 19. öld. Ganga
má að verki með mismunandi hugar-
fari. Fræðingar kirkjunnar hafa
tilhneigingu til að líta á guðspjöllin
sem óvéfengjanlegan grunn og safna
rökum til að styðja hann. Sagnfræði-
legt viðhorf er gagnrýnna, skoðar
hvort guðspjöllin séu áreiöanleg
heimild, leitar að í hverju þeim skeiki,
en þar á milli stigmunur, kirkjusögu-
fræðingar viðurkenna vankanta
guöspjalla og sagnfræðingar 'eru
trúaðir.
V ið efnislestur guðspjalla reka
gagnrýnendur augun í, hve takmörkuð
heimildarit þau eru, atburöafrásögn
losaraleg og skortir tímatal, helst að
nefna stjórnarár Ágústusar, Tíberíus-
ar og Heródesanna. Tímaröð er óljós,
ósamkvæmni milli guðspjaUa, svo
óyggjandi yfirlit um feril Jesúsar
verður ekki sett upp, hvenær hann er í
Samaríu, flytur fjallræðu, vekur
Lasarus, rekur víxlara úr musterinu.
Skortur á tímatali olli mörgum
öldum síöar misskilningi, þegar
kirkjan fór um aldamótin 500 að miða
nýtt tímatal við fæöingu Krists. Menn
voru þá ekki nógu klárir á rómverskar
heimildir. Guöspjöllin herma að Jesús
hafi fæðst á valdatíma Heródesar
mikla, en þaö er víst aö hann var dáinn
4 f.Kr. Hafi halastjarna sést á himni,
kæmi til greina Halleys-stjarna, er
sást 12 f.Kr. Hafi manntal verið tekið,
er það manntal, sem Kvírínus land-
stjóri í Sýrlandi lét taka 7 f.Kr. eða
annað sem Agústus keisari fól Heró-
desi að taka 11 f.Kr. En allt er þetta út í
loftið, því aö jólaguðspjöllin eru ævin-
týralegasta helgisaga guðspjallanna.
Niöurstaðan er að ekkert sé vitað um
fæðingarár Jesúsar en útbreiddast að
telja hann fæddan 4. f. Kr.
A líka óvissa ríkir um tíma kross-
festingar. I Lúkasar guðspjalli er
timamark, aö Jóhannes skírari hafi
ausiö Jesús vatni á 15. stjórnarári
Tíberíusar, eöa árið 29. En ólíkar kenn-
ingar eru uppi um hvort Jesús hafi
kennt í 1, 2 eða 3 ár, og eftir því skipa
menn krossfestingu á árin 30 eða 33.
Líkur hafa verið leiddar að því, að
Jóhannes skírari hafi eigi verið höggv-
inn fyrr en 34, þá gæti krossfesting tæp-
lega hafa veriö fyrr en árið 36. Reynt
er að nálgast þetta með rímfræði og
niðurstaða að samstofna guðspjöll
bendi til krossfestingar 15. Nísan-
mánaöar, föstudagur árið 27.
Jóhannesar guðspjall bendir til 14.
Nísanmánaðar, sem bar upp á föstu-
dag bæði árin 30 og 33. Aður hölluöust
margir að því, aö krossfesting heföi
verið 29, en nú einna algengast aö fast-
setja hana 7. apríl árið 30, án þess það
sé víst.
Geta má þess, að deilur voru milli
Gyðinga um sitt eigiö tímatal. Saddúk-
ear réðu hinu opinbera tímatali,
hvenær páskar voru haldnir, en
farísear gagnrýndu tímarím þeirra,
snerti það vandamál hlaupárs og töldu
að skeikaði tveimur dögum, en beygðu
sig í verki fyrir hinu opinbera
almanaki. En nú er upplýst að sér-
trúarsöfnuður Essena viðurkenndi
ekki almanak Saddúkea, og héldu
páska 2 dögum fyrr eða fimmtudag,
sem þeir töldu vera laugardag og kann
að vera að síðasta kvöldmáltíð Jesúsar
á fimmtudegi hafi átt að vera páska-
hátíöin, þó það komi ekki fram í guð-
spjöllunum. (BirtmeðleyfiFjölva.)
Sóknarf élagar — Sóknarf élagar
Aðalfundur
félagsins verður haldinn þriðjudaginn 8. maí að Borgartúni 6,
kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sýniðskírteini.
Stjórnin.
BÍLDSHÖFÐA 16.
SÍMAR 81530 OG 83104
SELJUM í DAG
Lancia A 112
'80, 2ja dyra,
hvítur, beinsk.,
4 gira, ekinn
aðeins 32.000.
Bíll sem nýr.
Saab 900 GLE
'80, 5 dyra,
rauður, sjálfsk.
+ vökvastýri,
ekinn 76.000.
Mjög góður og
fallegur bíll.
Saab 99 GL '82
4 dyra, Ijósblár,
beinsk., 5 gira,
ekinn 33.000.
Saab 99 GL '80.
4 dyra, grænn,
beinsk., 4 gíra,
ekinn 52.000.
OPIÐ 10-4
LAUGARDAG
TÖGCURHR
SAAB UMBODIÐ
Lai
frá kl
og k
STÓRKOSTLEGT ÚRVAL AF NÝTÍSKU SÓFASETTUM
TM-HÚSGCk3N
Síðumúla 30 - Sími 86822