Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Side 33
33
irto- t * *#r a rrrtrx^ nra f niTXt \rrt
DV. LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984.
Boltinn
Boltinn
Sheff ieldliðin í uppsveif lu:
Mörk Keith Edwards
komin vfir f iörutíu
Keith Edwards.
Stáliönaöarborgin mikla, Sheffield,
getur brátt fariö að setja á sig spari-
brosiö eftir áralanga út og sorg, a.m.k.
knattspymulega séð.
Sjaldan hafa knattspymuliöin tvö,
United og Wednesday, rist jafndjúpt og
undanfarin ár. Það fór meira aö segja
þannig fyrir rest aö United liðiö datt
ofan í fjóröu deild í fyrsta skipti í sögu
félagsins.
En betri tímar era væntanlega
framundan meö blóm í haga. Wednes-
day liðið er efst í annarri deild, þegar
búiö að tryggja sér sæti í þeirri fyrstu
og allt stefnir í aö þaö tryggi sér efsta
sætiö.
United er nú í þriöja sæti þriðju
deildar og staða þess er virkilega góö,
þeir eiga að spila við Wimbledon á
heimavelli en það lið er einmitt einu
stigi ofar en United.
Þaö sem mest munar um 1 baráttu
Sheffield liðsins fyrir endumpplifun á
góðu tímunum er hin geysilegi marka-
fjöldi sem framherji liösins, Keith Ed-
wards, hefurgert.
Þau eru komin yfir fjörutíu og slag-
urinn um efsta sætiö á markalistanum
virðist nú ætla aö verða einvígi á milli
Edwards og Ian Rush hjá Liverpool.
Sjálfur er Edwards bjartsýnn á
nánustu framtíð. Hann leikur við hlið-
ina á tveim mjög færum framvörðum,
Colin Morris, sem hefur gert yfir
tuttugu mörk í vetur, og Glenn Cocker-
ill sem nýlega var keyptur frá Lincoln
City.
Þaö er gott jafnvægi á milli ungra
manna og þeirra eldri, með mikla
reynslu, þar ber helst að telja flökku-
jóann Ray McHale, fyrirliða liðsins, en
hann hefur meðal annars leikiö meö
Barnsley og Brighton. Annar er Paul
Stancliffe sem án efa er einn af bestu
miðvörðum í þriðju deiidinni. Hann
hefur bundið vömina feikilega saman
en hún hefur einmitt þótt veikasti
hlekkurSheffieldliðsins hingaötil.
Edwards sjálfur skorar mörk eins og
af vana. Arið 1981—82, þegar United
var í fjóröu deild, geröi hann hvorki
meira né minna en 35 mörk og var
markahæstur í deildinni allri þaö
keppnistímabil.
I fyrra var bara meðalár hjá honum,
23 mörk „aðeins”. „Hat-trickin” á
þessu keppnistímabili em oröin fjögur
og kom þaö fyrsta í fy rsta leiknum.
Leikurinn á laugardaginn gegn
Wimbledon er meira en bara einvígi á
milli liöanna tveggja. Hann er líka ein-
vígi á milli markahæstu leikmanna
þriöju deildarinnar. Alan Cork kemur
á eftir Edwards á skorlistanum.
Staðan var svipuð í byrjun ársins er
liöin mættust á Plough Lane í Wimble-
don í fyrri umferðinni. Edwards hafði
þá gert jafnmörg mörk og Cork en sá
síðarnefndi seig fram úr í þeim leik,
geröi tvö gegn einu Edwardsmarki í
3—1 sigri Wimbledon liösins.
En hverju þakkar Edwards öll þessi
mörk? Jú, fyrst og fremst félögum
sínum Uiöinu, framkvæmdastjóranum
Ian Porterfield og fööur sínum. Sá
síöarnefndi var vinur Eddie Bally,
fyrrum framherja Tottenham, og fékk
hann allskyns ráö frá honum sem hann
miðlaði svo aftur sy ni sínum af.
Porterfield hefur tekiö þá ákvörðun
aö láta Edwards taka öll hom, auka-
spyrnur og víti og Edwards segir aö
þessi aukaskylda fylli hann sjálfs-
trausti.
Þegar talaö er um framherja sem
Edwards heldur sérstaklega upp á
koma nöfn Jimmy Greaves og Kenny
Dalglish fyrst upp í huga hans.
Edwards segir Greaves vera þann
besta sem uppi hafi veriö og aö Dal-
glish sé gjörsamlega gaUalaus. „Eg
vona aö einn daginn nái ég hans stand-
ard. Ian Rush er sá leikmaður sem
hann er einfaldlega út af DalgUsh.
Æösta takmarkiö? Aö komast upp í
aðra deUd og vinna gullskóinn aftur.
Þaðerklártmál.
SigA
FRAMKV ÆMDAÞ JÖNUSTAN
HANDVERK
Þid nef'nid þa<) — vid framkvæmum þa<)
T.d. þrífum þakrennur, aðstoðum við flutninga, glerísetning-
ar, ef flæðir, hreingerningar kringum húsið, ef bíllinn fer ekki
igang ogm.fi., m.fl.
Xeydarþjón usla
Fi amki (viii<Uil>jiiiiiislan Handrvrk
Barðavogi 38, neðri hæð,
sími 30656.
Borðtennis
Fyrirtækja- og stofnanakeppni Borðtennissambands
ísiands 1984 verður haldin þriðjudaginn 8. og mið-
vikudaginn 9. maí í Fossvogsskóla. Úrslit fimmtudag-
inn 10. maí á sama stað.
VEGLEG VERÐLAUN
Leikið verður i riðlum eftir Cornbillion kerfi, tveir í liði. Aðeins annar
keppandi þarf að vera starfandi í fyrirtæki. Þátttökutilkynningar berist
til Gunnars Jónssonar, c/o Austurborg, sími 23385 og á kvöldin í síma
77318 fyrir mánudagskvöld 7. maí. Þátttökugjald, kr. 1.800,, greiðist á
keppnisstað.
fVinnuskóli
Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa um mánaðamótin maí
— júní nk.
I skólann verða teknir unglingar fæddir 1969 og 1970 og voru
nemendur í 7. og 8. bekk grunnskóla Reykjavíkur skólaárið
1983 -1984.
Umsóknareyðublöð fást í Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 1, sími 18000, og skal umsóknum skilað þangað eigi
síöaren 21.maínk.
Nemendum, sem síðar sækja um, er ekki hægt að tryggja
skólavist.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
★ ★ ★ ★
Smáskot
úr ýmsum áttum
Glenn Hoddle.
Hoddle áfram
hjá Tottenham
Nú lítur út fyrir að Glenn Hoddle
veröi enn eitt áriö hjá Tottenham þrátt
fyrir sífelld loforð um að nú sé hann á
leiðinni út. I þetta skiptið em þaö
meiðsli sem koma í veg fyrir að hann
haldi utan. Hver vill jú kaupa fótbolta-
mann með eina löpp? Ekki ég.
Clements
til Newcastle?
Þeir hjá Newcastle em stórhuga nú
sem í gær og heyrst hefur að Kenny
Clements, miðvörðurinn sterki hjá
Oldham, sé á leið til þeirra og þá til að
leika viö hliöina á sínum gamla félaga
John Ryan sem keyptur var frá
Oldhamífyrra.
Johnston
fer ekkert:
Lítiöútliter fyrir aö Craig Johnston
fari frá Liverpool. Bæði Coventry og
Nott. Forest hafa spurst fyrir um
kappann en lítið oröiö um svör.
Best að vera
í Ameríku:
George Best var boðið að taka við
framkvæmdastjóm Fulham en Mal-
colm McDonald mun nú á förum. Sagöi
sá besti bara nei takk og fer líklega til
Ameríku aðstofna fótboltaskóla,
Allenar skora
Les Allen, Paul Allen og Clive Allen
eru allir meira og minna skyldir og
frægir knattspyrnumenn. Strákarnir
tveir komast þó varla með tæmar þar
sem gamli Les hafði hælana, a.m.k.
ekki strax. En þaö eru fleiri bolta-
sparkarar í ættinni. 12 ára gamall
bróðir Clive, Bradley, hefur nú gert 100
mörk á hinum ýmsu mótum á þessu
keppnistímabili meö skólaliðinu, sýslu-
liðinu og í æfingaleikjum með stráka-
liöi Tottenham, þar sem Les spilaöi á
sínumámm.
19 ára gamall leikmaður með Brad-
ford City, Stuart McCall, verður lík-
lega í sviðsljósinu í framtíðinni. New-
castle Stoke og bæði Sheffield liöin
hafa sýnt mikin áhuga á strák.
Tommy saknar
Charlie
Tommy Burns hjá Celtic kennir því
um hve iUa ætlar að fara hjá köpp-
unum í vetur að Charlie Nicholas skuli
hafa farið frá þeim. Hann segir að það
hefði skipt öUu máU fyrir liðið ef
CharUe hefði verið hjá þeUn í eitt tU tvö
árí viðbót.
Boltinn Boltinn
Höfum opnað bflasölu
Bjartur og góður
300 fermetra sýningasalur
★ ★ ★ ★
Óskum ef tir öllum tegundum
bifreiðaáskrá
★ ★ ★ ★
Opið; mánudaga-föstudaga f rá kl. 10-19 laugardaga f rá kl. 10-17
EKKERTINNIGJALD Bflasalan NÝ-VAL
Smiðjuvegi 18c - Kópavogi - Sími 91-79130