Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 35
.í.P.8t IATv' ?. HUOAflHAOOAJ .Vd
DV. LAUGARDAGUR 5. MAI 1984.
Kæra Kristjáns Péturssonar:
TILUMSAGNARHJÁ
VARNARMÁLADELD
Varnarmáladeild er nú meö kæru
Kristjáns Péturssonar, deildarstjóra í
tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli, á
hendur þeim Guömundi Karli Jóns-
syni, forstjóra Fríhafnarinnar, og
Þorgeiri Þorsteinssyni, lögreglustjóra
á Keflavíkurflugvelli, tii umsagnar.
Eins og fram hefur komiö í DV kæröi
Kristján þá fyrir sölu áfengs öls til
ferðamanna í Fríhöfninni á Kefla-
víkurflugvelli. Kristján kærir
Guömund fyrir sölu ölsins en Þorgeir
fyrir aö láta sölu þess viðgangast án
þess aö aðhafast nokkuö.
Þóröur Björnsson ríkissaksóknari,
sem sendi kæru Kristjáns til varnar-
máladeildar, kvaöst ekki vita hvenær
umsögn hennar bærist. Þaö lægi því
ekki enn fyrir hvenær hann tæki
ákvörðun í málinu. -JGH.
Fyrsta skóflustungan hefur veriö tekin að dvalarheimili aldraöra í
Grundarfiröi. Flestir bæjarbúar voru viöstaddir þennan atburð
enda málið þeim hugleikið en sá sem tók skóflustunguna var 83 ára
gamall Grundfirðingur, Guðmundur Guðmundsson.
DV-mynd Bæring Cecilsson.
Orkuspamaðar-
átak við húshitun
— húseigendur fá ókeypis ráðgjöf og lán
til orkusparnaðar
Iönaöarráöuneytiö og félagsmála-
ráöuneytiö standa nú saman aö sér-
stöku orkusparnaðarátaki í því skyni
aö bæta orkunýtingu íbúðarhúsnæðis.
Hefur veriö lagt fram á Alþingi frum-
varp um jöfnun húshitunarkostnaðar
þar sem meöal annars er kveöiö á um
aö þriggja manna nefnd á vegum
iönaðarráðuneytisins skuli sjá um
framkvæmd þess verkefnis aö lækka
húshitunarkostnað. Jafnframt stendur
nú yfir sýning hjá Byggingarþjónust-
unni aö Hallveigarstíg 1 á vörum sem
tengjast orkusparandi endurbótum á
húsnæöi og breytingu í innlenda orku-
gjafa.
Frumvarpiö kveöur á um aö
skoðunarmenn sem menntaöir eru af
Rannsóknarstofnun byggingar-
iönaöarins skuli vera húseigendum til
ráðgjafar viö skipulagningu og mat á
endurbótum sem leiða til orkusparn-
aöar og skuli sú þjónusta vera húseig-
endum aö kostnaöarlausu. Jafnframt
skulu húseigendur eiga kost á lánum
frá Húsnæöismálastofnun ríkisins. Er
kveöiö á um aö lánin veröi til 16 ára,‘
afborgunarlaus fyrstu þrjú árin og
mega þau nema allt að 80% af kostnaði
viö endurbætur. Lánin veröa verö-
tryggö og meö 0,5% vöxtum.
Þá er í frumvarpinu heimild fyrir
iönaöarráöherra aö hvetja til aukinnar
nýtingar innlendra orkugjafa með því
aö styrkja orkuveitur til aö lækka
tengigjöld, styrkja eigendur skóla-
húsnæöis til aö nýta innlenda orku-
gjafa og til að styrkja húseigendur til
aö nýta innlent eldsneyti svo sem
rekavið, surtarbrand og mó. I ár er
gert ráö fyrir að greiða þurfi 13 þúsund
olíustyrki samtals aö upphæö rúmar 59
milljónir króna.
Á sýningunni að Hallveigarstíg 1,
sem tengd er þessu orkusparnaöar-
átaki, gefur meöal annars aö líta
margvísleg einangrunarefni, klæön-
ingar til notkunar utanhúss og innan,
rakavarnar- og vindþéttilög, mismun-
andi glergeröir og stjórnbúnaö fyrir
hitakerfi. Sýningin veröur opin 2. til
15. maí, klukkan 10 til 18 virka daga og
14 til 18 um helgar. Síðar verður hún
send út á land. -OEF.
Prófdeilan ílæknadeild:
Aðeins einn hefur enn
séð próf úrlausn
— en 59 nemendur hafa fengið reikning
frá lögmanninum
Mál læknanemanna, sem kæröu
kennara sinn í læknadeild til mennta-
málaráöherra vegna þess aö þeir
fengu ekki aö sjá prófúrlausnir sínar,
ernúíbiðstööu.
Ráöherra fékk vilyrði deildarinnar
fyrir því aö nemendurnir fengjusínu
framgengt. Fékk einn nemandi að sjá
sína prófúrlausn. Kennarinn, Hannes
Blöndal, veiktist um þaö leyti og viö
þaö stendur. Mun þolinmæöi nemend-
anna á þrotum. Ekki síst þegar viö
bættist aö lögmaöur nemendanna, Jón
Oddsson, mun vera aö senda út gíró-
seðil aö upphæö 945 krónur til hvers
nemenda, sem eru 59 talsins. „Okkur
þykir þetta dýrt viðvik,” sagöi einn
nemendanna í samtali viö DV. _KÞ-
_______________________________________ 35
FRAMLEIÐSLUEFTIRLIT SJÁVARAFURÐA
NÓATÚN 17 - 105 REYKJAVÍK
Auglýsing frá Framleiðslueftirliti
sjávarafurða varðandi vinnsluleyfi
til frystingar á sjávarafurðum.
Athygli hefur veriö vakin á því að nú sé víöa unnið aö undirbúningi að upp-
setningu á búnaði til frystingar, sem í sumum tilvikum getur orkað tvímælis
frá gæða- og markaðssjónarmiðum. Nýjar reglur varðandi búnað og frystingu
í landi og um borð í fiskiskipum eru nú í undirbúningi á vegum sjávarútvegs-
ráðuneytisins. Framleiðslueftirlit sjávarafurða mun því ekki veita ný vinnslu-
leyfi til óhefðbundinnar frystingar þar til hinar nýju reglur hafa verið gefnar
út. Það eru tilmæli Framleiðslueftirlitsins að aðilar kynni sér málin rækilega
áður en ráðist er í f járfestingar eða veigamiklar ákvarðanir eru teknar.
Framleiðslueftirlit sjávarafurða.
Ný efni
Til yfirbygginga á flutn-
ingabíla, einnig flutningahús
úr áli.
lager 7 metra flutn-
inganus, ál-slitplötur á vöru-
bíla og aftanívagna og læs-
ingar á flutningahús.
MÁLMTÆKNI
Vagnhöfða 29. Símar 83045 og 83705
Fullfrágengið hús til sölu í
Skorradal til afhendingar
í sumar.
KR SUMARIÍLJS
Kristinn Ragnarsson húsasmíöameistari
Kársnesbraut 128, sími 41077, heima-
sími 44777, Kópavogi.
Sýnum
þennan glæsilega sumarbústað að Kárs-
nesbraut 128 alla daga kl. 2—6. Bústaðurinn
er fullfrágenginn, með húsgögnum og öll-
um innréttingum. t>ú getur einnig pantað
sér skoðunartíma, þegar þér hentar, með
einu símtali. Opið um helgina.
KAFFISALA I SJOMANNAHEIMILINU
að Brautarholti 29 (beint á móti Sjómannaskólanum) á morgun,
sunnudag, frá kl. 3 og fram eftir kvöldi: Hlaðborð með glæsilegu
' meðlæti. Allur ágóði rennur til sjómannaheimilisins. FÆREYSKI
SJÓKVINNUHRINGURINN.