Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Side 28
28
DV. LAUGARDAGUR 26. MAl 1984.
Starf rafveitustjóra I meö aðsetri
á Djúpavogi er laust til umsóknar
Umsóknir meö upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist til Rafmagnsveitna ríkisins, Þverklettum 2, Egilsstöö-
um, eða starfsmannahalds Rafmagnsveitna ríkisins, Lauga-
vegi 118,105 Reykjavík, fyrir 15. júní nk.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
akstur malarslitlags á Mýrdalssandi
(5.500 m3).
Verkinu skal lokið 15. júní 1984.
Utboösgögn veröa afhent hjá Vegagerö ríkisins í Reykjavík, á
Selfossi og í Vík í Mýrdal frá og með 28. maí nk. Skila skal til-
boðum fyrir kl. 14.00 þann 4. júní 1984.
VEGAMÁLASTJÖRI
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 116., 119. og 122. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Kjarrhólma 6 — hluta —, þingl. eign Ómars Magnússonar og
Þórveigar Gísladóttur, fer fram aö kröfu Landsbanka tslands, Einars
Viðar hrl., Ólafs Axclssonar hrl. og Veðdeildar Landsbanka islands á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 30. maí 1984 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 134., 136. og 140. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Engihjalla 17 — hluta —, þingl. eign Þorvaröar Einarssonar,
fer l'ram að kröfu Veödeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 30. maí 1984 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 109., 112. og 114. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Eyrum 9, Kjósarhrcppi, þingl. eign Steinunnar Bjarnadóttur,
fer frain eftir kröfu Brunabótafélags íslands á eigninni sjálfri
mánudaginn 28. maí 1984 kl. 10.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 9., 12. og 15. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Garöstíg 3, neðri hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Stefáns
Magnússonar, fer fram eftir kröfu innheimtu rikissjóðs á eigninni
sjálfri mánudaginn 28. maí 1984 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn íHafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 9., 12. og 15. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eignicni Kaplahrauni 16, Hafnarfirði, þingl. eign Vélsmiðju Orms og
Víglundar s/1, fer fram eftir kröfu Hákonar H. Kristjónssonar hdl. á
eigninni sjálfri mánudaginn 28. maí 1984 kl. 16.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 10., 13. og 16. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Holtsgötu 10, kjallara, Hafnarfirði, þingl. eign Friðriks Haf-
berg og Unnar Sigurjónsdóttur, fer fram eftir kröfu Ólafs Axelssonar
hrl., Sigríðar Thorlacius hdl. og Árna Grétars Finnssonar hrl. á eign-
inni sjálfri þriöjudaginn 29. maí 1984 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn íHafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 10., 13. og 16. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Hverfisgötu 49, stofuhæð, Hafnarfirði, þingl. eign Jóns Þórs
Ingólfssonar og Sigríðar Sigfúsdóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns
Steingrímssonar hrl., Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., Ásgeirs Thor-
oddsen hdl. og Brynjólfs Kjartanssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 29. maí 1984 kl. 14.15. Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 10., 13. og 16. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á
eigninni Álfaskeiöi 80,2. hæð t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Ármanns Ár-
mannssonar, fer fram eftir kröfu Valgarðs Briem hrl. á eigninni s jálfri
þriðjudaginn 29. maí 1984 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
TÓNLISTARDAGAR
Tónlistardagar byrja á Akureyri í næstu viku. Á uppstigningardag,
31. maí, verður Kristinn Sigmundsson baríton með einsöngstón-
leika. Undirleikari er Jónas Ingimundarson. Kór og hljómsveit flytja
Örlagagátuna eftir Björgvin Guðmundsson. Sunnudaginn 3. júní og
fimmtudaginn 7. júní verða tónleikar Bara-flokksins. Tónleikarnir
verða allir haldnir í íþróttaskemmunni á Akureyri og byrja klukkan
JBH/Akureyri.
ÖRLAGAGÁTAN
Passiukórinn flytur Örlagagátuna ásamt félögum úr Karlakórnum Geysi og Gigjunum.
Flutningur Orlagagátunnar eftir
Björgvin Guðmundsson er viðamesta
atriði Tónlistardaganna á Akureyri.
Flytjendur eru Passíukórinn á Akur-
eyri meö félögum úr Karlakórnum
Geysi og Gígjunum við undirleik blás-
arasveitar Tónlistarskólans á Akur-
eyri og Nýju streng jasveitarinnar.
Björgvin Guðmundsson fæddist 26.
aprfl 1891 í Vopnafii'öi. Hann læröi lítils-.
háttar á orgel áður en hann fluttist til
Kanada árið 1911 og var þá líka farinn
að semja sönglög. I Kanada lærði hann
húsasmíði en hélt jafnframt áfram
námi í hljóðfæraleik og tónfræði.
Arið 1919 lauk Björgvin við fyrstu
óratoríu sína, Frið á jörðu, og 5 árum
síðar óratoríuna T>1 komi þitt ríki. Is-
lendingar í Kanada fylgdust vel með
verkum Björgvins á tónlistarsviðinu
og studdu hann til frekara náms í
Konunglegu akademíunni í Lundúnum
þar sem hann lauk prófi eftir tveggja
ára nám. Hátíðarkantötuna Island
þúsund ár samdi Björgvin 1929 og var
hún fyrst flutt í Winnipeg í mars 1931.
Þetta sama ár fluttist hann til Akur-
eyrar og geröist söngkennari við
bamaskólann og menntaskólann.
Hann efldi sönglíf í bænum mikiö og
var stofnandi Kantötukórs Akureyrar.
Björgvin lést áriö 1961.
Tónskáldið hefur sjálft sagt um til-
ui'ð Örlagagátunnar að hana megi rekja
til kynna hans og Stephans G.
Stephanssonar. Heföi hann beðið
Stephan að yrkja fyrir sig óratoríu-
texta. Ut úr því hafi komið Þiðranda-
kveöa Stephans en söngverkið fengiö
nafnið Orlagagátan.
Björgvin var um þetta leyti í Winni-
peg ai á förum til Lundúna og fékk
ljóöaflokkinn sendan þangaö í febrúar
1927. Hann fer þar vel af stað við að
semja en hélt áf ram í Winnipeg og lauk
því svo 6. janúar 1933 á Akureyri.
Efniö í söngdrápuna er sótt í þátt
Þiðranda og Þórhalls sem er einn af 40
Islendingaþáttum. Þar er víg
Þiðranda Síðu-Hallssonar þunga-
miöja.
I skýringum Björgvins Guðmunds-
sonar við Orlagagátuna, þegar Kant-
ötukórinn á Akureyri flutti hana árið
1946, segir tónskáldið: „Fyrsti kórinn
er haustsöngur í tímanlegum og tákn-
rænum skilningi, en gæti jafnframt
táknað dulmál örlaganna er oft þykir
einkenna andrúmsloftið þegar voveif-
legir atburðir eru í aðsigi. Nú hafði
Síöu-Hallur áformað að hafa inni boö
mikið til heiöurs Þiöranda syni sínum,
sem þá var væntanlegur heim frá út-
löndum þar sem hann hafði hlotið
frægð og frama, enda þótti hann
afbragð ungra manna. En tryggða-
vinur Halls og gestur hans löngum,
Þórhallur spámaður að Hörgslandi á
Síðu, lét sér fátt um finnast boð þetta
og vildi þar hvergi nærri koma, þó
aldrei þessu vanur. Er því fyrri þáttur
að mestu leyti átök milli Síðu-Halls og
fólks hans annars vegar en ÞórhalLs
hins vegar, um að fá Þórhall til að sitja
veisluna og lýkur með fullum sigri
þeirra Halls.
Síðari þátturinn er að nokkru leyti
þrískiptur. Hann hefst fyrsta veislu-
kvöldið. Stórhríð er á og margt boös-
manna ókomið til veislunnar. Samt er
þar glatt á hjalla og vel veitt, en Þór-
hallur bannar að nokkur yfirgefi skál-
annumnóttina.
Þá hefst næturþátturinn með nr. 17.
Menn taka á sig náöir og nokkru síöar
er kvatt dyra, en enginn þorir aö
gegna. Þetta stenst Þiðrandi ekki,
hyggur hann að fleira boðsfólk sé
komið og gengur til dyra. Ráöast þá að
honum níu nomir dökkleitar, með
þeim árangri, að hann liggur þar eftir
helsærður. Níu dísir bjartleitar vildu
koma Þiðranda til hjálpar, en urðu
seint fyrir eins og oft hefur viljað
brenna viö. Þessi þáttur endar svo meö
nr. 24, á dauða Þiöranda morguninn
eftir.
Þá hefst lokaþátturinn um það leyti
sem Síðu-Hallur hefur ákveðið að
flytja frá Hofi til Þvottár vegna óyndis
eftir þennan hryggilega atburð. Spyr
nú Hallur vin sinn Þórhall hvað hann
hyggi um afdrif Þiöranda. En Þór-
hallur getur til að siöaskipti muni í
nánd, og sé hinn nýi siður betri enda
muni Hallur og ættingjar hans aöhyll-
ast hann. Jafnframt lætur hann þess
getiö að gamli túninn vilji hafa sitt, og
það helst ekkert minna en besta mann
ættarinnar, enda sé honum þaö varla
láandi. Nú bregður líka svo við að tvær
hinna björtu, góðu dísa koma á vett-
vang og syngja Halli huggunaróð, er
f jöldi himneskra hollvætta undirstrika
svo í síðasta kórnum, með þeim
rökum, að glæsi- og göfugmennska
hljóti ávallt að vera lífæð mannkyns-
ins, hvemig sem skipast kunni um
þeirra tímanlegu örlög því að það
lífræna sé ódauðlegt en hið helræna
feigt.”
Roar Kvam hefur gert hljómsveitar-
útsetningu fyrir Orlagagátuna og
stjórnar flutningi hennar. Verkið
verður einnig á Listahátíð í Reykjavík
íjúni.