Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Side 2
2
TILBOÐ
VIKUNNAR
Varahlutir
í Dodge Ramcharger
og Dodge pickup 74-'80.
Frambretti
Mopar demparar std.
Mopar demparar hd.
Framfjaðrir
Klukkur
JÖFUR
kr. 13.580,-
kr. 950,-
kr.
kr.
kr.
HF.
1.150,-
6.200,-
1.800,-
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
Varahlutadeild
¥a
AriTrausti
Guðmundsson kennari:
„Segir ekkert
umaðra
valkosti”
„Þessar niöurstöður koma mér
ekkert á óvart, þær sanna að fólki
þykir gott aö hafa einhverja hlutlausa
músík í eyrunum á meöan það vinnur.
Þaö sem mér finnst persónulega
vanta er aö blanda saman tali og
tónum í miðli sem þessum og hafa eitt-
hvað á dagskrá til að fræða fólk, eitt-
hvað sem það gleymir ekki. Til þess að
þetta sé framkvæmanlegt verður að
sýna meiri metnað í þessu máli en
hingaö til hef ur verið gert.
Eg tel að það efni sem er nú á rás 2
tilheyri frekar staðbundinni útvarps-
stöð sem rekin yrði af félagasam-
tökum eða einhverju slíku. Annars
finnast mér niðurstöður þessarar
könnunar ekki segja neitt um aðra val-
kosti sem mögulegir eru í útvarps-
málum.” SigA
Guðmundur Jónsson,
framkvæmdastjóri
útvarpsins:
„Ótrúlega
góð útkoma’’
„Þetta finnast mér ótrúlega góðar
niðurstöður og það gleöur mig mikið að
heyra þetta. Eg vona að þessi stöð sé
sífellt á uppleið. Hlustendakönnun
Hagvangs kom mér aöallega á óvart
vegna þess að meirihluti fólks er við
vinnu þann tíma sem stööin sendir út.
Ef við gerum ráð fyrir að þau 26%
sem ekki tóku afstöðu hafi ekki hlustað
á stöðina þá finnst mér það lítill hluti
en ég myndi sennilega tilheyra honum.
Eg hlustaði þó á eina næturdagskrá
fyrir stuttu er ég lá andvaka og líkaöi
vel, það var þægilegt að hafa þetta í
eyrunum. Að öðru leyti hef ég ekki
aukið mínahlustun.”
SigA
DV. FÖSTUDAGUR15. JUNl 1984.
Niðurstöður skoðanakönnunar DV:
ÁsgeirTómasson
útvarpsmaður:
„Svipað og ég
bjóst við”
„Mér h'st bara vel á þessar niöur-
stöður, þetta er ósköp svipað og ég
bjóst við að kæmi út úr slíkri könnun.
Mér finnst það ekki óeðlilegt aö tala
óákveðinna sé svona há því þessi út-
varpsstöð er alls ekki sniðin fyrir alla
aldurshópa, hún höfðar fyrst og fremst
til fólks upp að miðjum aldri. En fólk
getur þóallavega valið á milli.
Eg hefði viljað fá samanburð
hlustenda á rás 1 og 2, en eins og út-
koman úr þessu er þá held ég að við
rásarfólk getum verið ánægt því þessi
stöð er jú ennþá á tilraunastigi.”
SigA
Meirihlutinn er á-
nægður með rás 2
Almenningur á Reykjavíkur-
svæðinu er ánægður með dagskrá
rásar 2. Þetta sýnir skoöanakönnun
DV, sem gerð var fyrir skömmu.
Könnunin náöi eingöngu til Stór-
Reykjavíkursvæðisins. Urtakið var 300
manns og var jafnt skipt milli kynja.
Spurt var: Ertu ánægður eða
óánægður með dagskrá rásar 2?
Af öllu úrtakinu kváðust 55,3
prósent vera ánægð með dagskrána.
Aðeins 9,7 prósent lýstu óánægju.
Oákveðin voru 26,3 prósent, og voru í
þeim hópi ýmsir, sem aldrei höfðu
hlustað á rásina. Loks vildu 8,7 prósent
ekki svara spurningunni.
Þetta þýðir að hinir ánægðu eru í
yfirgnæfandi meirihluta meöal þeirra
sem taka afstöðu. Af þeim reynast 85,1
prósent ánægð en 14,9 prósent óánægö.
„Meiri breidd"
„Eg er mjög ánægð með rás 2.
Dagskráin er mjög góð,” sagði kona
ein, er hún svaraöi spurningunni í
skoðanakönnuninni. „Mætti vera f jöl-
breyttari, annars er hún góð, ” sagði
kona. „Mjög ánægð, allt annað hf,”
sagði önnur. „Æðislega ánægð með
hana,” sagði kona. „Agæt, en það
Frá fyrsta útsondingardegi rásar 2. Forráðamann útvarpsins fylgjast með er
fyrstu bylgfumar eru sendar út í loftið.
mættu gjarnan vera góðir gaman-
þættir,” sagði karl. „Ég hlusta tölu-
vert á rás 2 og er ánægður með hana, ”
sagði karl. „Ég er yfirleitt ánægð með
dagskrá útvarps og sjónvarps,” sagði
kona. „Rásin hefur mjög breyst til
batnaðar,” sagði önnur. „Eg hlusta
htið á rásina, en mér finnst ágætt það
sem ég heyri, ” sagði kona. „Þetta er
kærkomin viðbót. Meiri breidd, ” sagöi
karL „Ég er komin á áttræöisaldur en
hlusta stundum á stöðina og líkar vel
við,” sagði kona. „Eg er ánægður með
þetta framtak en hef ekki hlustað
mikið,” sagöi karl. „Rás 2 er ljómandi
góð,”sagðikarl.
Ttekni um allan heím
ITT
mmm
u
6vwan
ITT Ideal Color 3304,
-íjárfesting í gæöum
á stórlækkuöu veröi.
Vegna sérsamninga viö
ITT verksmiðjurnar í
Vestur Þýskaíandi, hefur
okkur tekist að fá
takmarkað magn af 20"
litasjónvörpum á
stóríækkuðu verði.
23.450.
VERÐ A 20" ITT
LiTASJÓNVARPI
!
Sambærileg tæki fást ekki odyrari
ITT er fjárfesting í gæðum.
D)H
mmnm
SKIPHOLTI 7 • SIMAR 20080 & 26800
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu
þessar:
Ánægðir
Óánægðir
Óákveðnir
Vilja ekki svara
166 eða 55,3%
29 eða 9,7%
79 eða 26,3%
26 eða 8,7%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu,
verða niðurstöðurnar þessar:
Ánægðir
Öánægðír
85,1%
14,9%
„Garg og læti"
„Mér hundleiöist rás 2, ” sagði
karl á hinn bóginn. „Dagskráin er ótta-
lega rýr, sérstaklega á morgnana,”
sagði karL „Þetta er bara garg og læti,”
sagði kona. „Of mikið af léttri músík.
Mætti vera meira blönduð músík, ”
sagði karl. „Reyni að hlusta sem
minnst á þetta bull, ” sagði karl.
„Rásin er einhhða á margan hátt,”
sagði kona., ,Mér finnst hún vera aUtaf
eins, þessi rás,” sagði karl. „Mér leiöist
svona ræpumúsik. Eg kýs heldur þjóð-
legan fróðleik og annað í þeim dúr,”
sagði karl. „Rásin er leiðigjöm, ein-
tóm síbylja, ” sagði karl. _„Öþarfa
kostnaður,”sagðikona. —HH