Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 13
DV. FÖSTUDAGUR15. JUNI1984. 13 Þess vegna lang- aði mig að verða forstjóri Já, þaft er von aft fólk, almennir I borgarar Reykjavíkur, eigendur ■ Strætisvagna Reykjavíkur hafi orftift ■hissa þegar ég, vifturkenndur ekki- laftaismaður þjóftfélagsins, sótti um ■forstjórastöftuna hjá Strætó. Þessi lág- Jstéttalýftur leyfir sér flestallt nú ó I þessum siftustu og verstu tímum. Veit I þaö ekki hverjir elga allar forréttinda- I stöður borgarinnar til dæmis. Og hafa I alltaf átt. Og elga vonandi alltaf. Nú lauftvitaft forréttindastéttin alvitra og I algófta. 1 Flokkurinn meö stóru F4 En ekki bara þaft. Auftvitaö á I Flokkurinn allt i borginni. Flokkurinn V þar sem Stórl Bróðir gin yfir öUu meft lalsjáandi auga sinu. Flokkurlnn sér I um aUar þarfir borgaranna og I Flokkurtnn hefur aUtaf rétt fyrir sér. En hvafta flokk skyldi mafturinn ft tala um? Hver getur svaraf Kjallarinn MAGNUS SKARPHÉÐINSSON VAGNSTJÓRI SVR. Til hvers er SVR eiginlega? Mig langafti til aft verfta forstjóri 1 Strætó til aft i fyrsta lagi aft breyta þeirri grundvallarhefft aft SVR sé eitt- hvert dagvistunarheimiU fyrir þreytta og úriUa starfsmenn og yfirmenn tU aft hafa ofan af fyrir sér og fjölskyldum sínum, innan og utan SVR. En eins og kemur fram í umsókninni hér aftar þá I finnst mér allmargir starfsmenn SVR I hafa gleymt þvi tU hvers fyrlrtækift ' eiginlega er, og þá allra helst virftulegir yfirmenn fyrirtækisins. En þaft er sem kunnugt er til aft flytja i borgarbúa á mUU stafta i sem bestri I þjónustu, en ekki tU dagvistunar. Stórátak þcyf f aöbúnaöi farþeganna Þaft heffti orftift aftalregla hjá mér aft láta ekki farþegana norpa úti á aldrei skýrðir. En látið leka út til nær- staddra og annarra að ég hafi nú verið svo brotlegur í starfi að það hafi nú orðið að segja mér upp störfum. Eg hafi nú farið stundum of seint af stað á vagninum. Að ég hafi nú komið of seint á morgnana á vaktina, þó allir vissu að ég mætti á sama tíma og aðrir yfirleitt, þó ég stæði ekki ofan í yf irmönnunum í peningabrúsakompunni kapp- reykjandi ofan í hver annan og aðra starfsmenn. — Og að ég hafi sótt þýskutíma í M.H. þegar ég átti ein- hvemtímann að vera veikur í vinnunni, sem aldrei kom fyrir, né nokkur gat staðfest. — Og að ég hlýddi yfirmönnum SVR illa o.s.frv., o.s.frv. Einhver óskilgreindur sparðatíningur sem hægt er að ýkja eða hreinlega ljúga upp á starfsmenn þegar þess þarf. Og til þess eru einmitt m.a. skýrslumar fyrrgreindu. En hvers vegna tók það SVR 8 ár að komast að því að ég væri ónothæfur starfsmaður? Af hverju var þá ekki löngu búið að reka mig úr því ég var svona ómögulegur? — Nei, samhengið á milli þess að forstjórinn bað mig um aö hætta að skrifa um SVR og þess aö ég skrifaði samt, og var rekinn strax á eftir, er svo augljóst að óþarft er að eyða mörgum orðum á það. Sakna farþeganna mest af öllu úr starfinu En áður en ég lýk vil ég að tvennt komi fram. Eg ber ekki neinn hefndar- hug til fyrirtækisins og alls ekki hins almenna starfsmanns. Þvert á móti er ég enn þeirrar skoðunar að stofnunin eigi betra skilið en hún situr viö í dag. Um það bera störf mín í Umferðar- nefndinni og stjórn Starfsmanna- félagsins SVR almennt vitni væntanlega. Og hitt, að það sem ég reyndar sé mest eftir, eru farþegarnir. Þetta voru orðnir mínir bestu kunningjar sumir hverjir. Þó ég hafi nú örugglega farið í taugamar á einhverjum farþeganna stundum. Vonandi gleymist það fljót- lega. Tvær spurningar að lokum: Að lokum 2 spurningar lesendum til íhugunar: 1. Ef uppsögn sem þessi fær staðist, má þá ekki alveg eins reka mann og annan? Menn sjá hvað fordæmið getur leitt afsér? 2. Og ef þetta á að vera raunveru- leikinn sem opinberir starfsmenn búa við, verður þetta það sem þeir mega eiga von á ef þeir gagnrýna þær stofn- anir sem þeir vinna h já ? Kveðjur, Magnús Skarphéðinsson. Framvegis — vett- vangur fyrír sósíal- isma og lýðræði Nýlega hóf göngu sína tímarit sem þessi grein er nefnd eftir. I formála ritsins er sagt að því sé ætlað að örva gagnrýna umræðu meðal íslenskra sósíalista um samfélagsfræði og stjórnmál og skuli ritið vera opið öllum sósialiskum lýðræðissinnum. Bent er á að Islendingar eigi ágæt bókmennta- og menningartímarit en gagnrýnið stjórnmálarit á vinstri kantinum eigi þeir ekki. Hægri menn haf a verið duglegir við að gefa út alls konar rit þannig að ekki er vanþörf á öðrum lit. I fyrsta hefti Framvegis eru auk ritstjómargreinar eða formála sjö greinar eftir átta höfunda. Tvær greinanna eru lengstar: „Sovét- ferðalýsingar millistríðsáranna” eftir Áma Sigurjónsson og „Viðhorf við tækni” eftir Öm D. Jónsson. I grein sinni fjallar Arni um hvernig Sovétríkin gátu orðið íslenskum og öðrum vestrænum sósíalistum fyrirmynd á millistríðs- ámnum, einkum kreppuárunum, sjálfum Stalinstímanum. I því skyni athugar Ámi nokkrar ferðasögur Islendinga til Sovétríkjanna, m.a. eftir meistara Þórberg og Halldór Laxness. Á 4. áratugnum reið hagkreppa yfir Vesturlönd á meðan hið frum-í stæða Rússland var i örri iðnaðar- uppbyggingu. Menntamenn og rit- höfundar sem vom gagnrýnir á eigið hagkerfi litu i austur, ekki síst eftir valdatöku Hitlers. Þar sást vonar- glæta í myrkrinu. Hatursherferð gegn rússnesku byltingunni var og rekin og þeir sem vom eitthvað skotnir í henni Ientu í því að verja hana út í rauðan dauðann gagnvart ósanngjörnum árásum og hirtu þá minna um að tíunda gallana ef þeir þá sáu þá. Islensku ferðasögumar em vitnisburður um þetta og er athugun Árna á þeim mjög athyglis- verð þótt hér sé ekki rúm til að birta niðurstöðurhans. Grein Amar D. Jónssonar f jallar m.a. um það hvort tsknin sé hlutlaus í pólitískum skilningi. INGÓLFUR Á. JÓHANNESSON SAGNFRÆÐINGUR OG KENNARI Af stuttu greinunum má nefna athyglisverða hugleiðingu Halldórs Guömundssonar um sósíaliskan kvöldskóla sem gæfi fróðleiksfúsu fólki kost á að kynnast hugmyndum sósiaiískt þenkjandi menntamanna og þeim á að kanna í hvaða jarðveg hugmyndir þeirra falla. Utgáfa þessa tímarits er nokkur viðburður. Hún er til marks um þann stóra hóp óflokksbundinna og ósam- takabundinna sósialista sem hefur hafnað rússnesku leiðinni og öðrum kreddum sem skiptu ungu fólki i hópa á síðasta áratug. Tímaritið er lika til vitnis um aö áhugaefni leif- anna af hinni maóísku hreyfingu eiga sér víðar hljómgrunn, svo sem kvöldskólinn. Eins má greina þar veruleg hugmyndatengsl um fram- þróun marxismans hérlendis. Það er sérlega vel til fundið að fyrsta grein timarits sem móta á lýöræðislegan sósíalisma sé tilraun Ul að skýra Sovéthrifningu eldri islenskra sósíalista. Sovétdraug- urinn er mikil fyrirstaða þótt starf maóistahreyfingarinnar o. fl. hafi vonandi fækkað þeim sem setja jafnaðarmerki milli Sovétríkjanna og þess sem kommúnistar stefna að. Hér er orðinu lýðræðislegur skeytt framan við orðið sósíalismi til að- greiningar. Það er mikið vandaverk að skapa slíka stefnu miðaöa við íslenskar aðstæður árið 1984, ekki síst þegar áhugamenn um þá stefnumótun eru sundraðir. Tímarit sem er opið öllum sósíalískt þenkjandi lýðræðissinnum er mikilvægt skref í þeirri umræðu eins og Gerðubergsráðstefnan í vor um velferðarþjóðfélagið. Eg hvet alla sem láta sig þetta varða til að styrkja þetta framtak með greina- skrifum og dreifingu og kynningu á ritinu. Ingólfur Á. Jéhannesson. „Útgáfa þessa tímarits er nokkur viðburður. Hún er til marks um þann stóra hóp óflokksbundinna og ósamtaka- bundinna sósíalista sem hefur hafnað rúss- nesku leiðinni...” Og sem dæmi um þetta má vera kveðja sem undirritaöur fékk frá bónda i Súgandafirði sem taldi að ég hefði misskiliö orð Stéttarsambands bænda í útvarpinu. Hann segir í grein í DV11. maí sl. „Það er ekki vegna þess að þú, Jónas minn Guðmundsson, rit- höfundur m.m., hafir slegið eitthvert nýtt met i opinberum þekkingarskorti i grein þinni i DV sl. föstudag (föstudaginn 27. apríl), að ég drep nú penna niður. Hitt mun sannari orsök aö eftirfarandi greinarhluti er dæmi- gerður fyrir málflutning ykkar nafna og hálfnaf na og hljóðaði s vo: „Það er auðvitað vel skiljanlegt fýrir neytendur, að maður með slíka þekkingu á kýrinnar náttúru og hegðan skuli vera valinn til æðstu met- orða í samtökum bænda. En hinsvegar vita neytendur að kýrnar mjólka meira þegar þær ganga í kafgresi á sumardögum, en þá skammdegisdaga, er þær híma liðstirðar og nytlitlar í fjósi, dópaðar af lyfjum og slagandi af fóðurbæti.” Og eftir að hafa gefið í skyn að ég sé leigupenni („fyrir kaup líklega”), bætir hann þessu viö: „Eins og vikiö er að hér að framan tel ég að þekkingarleysið sé þinn þröskuldur í þessu efni frekar en ein- ber illgirni, að ég segi ekki óþverra- háttur.” Erfitt að skilja nýja sveitamálið En hvers vegna skyldi bóndi í fallegum dal verða svona reiður? Jú, ég hafði haft orð á þeirri breytingu sem orðið hefur á kúabúskap. Það er að vísu örðugt fyrir mig, sem kann aðeins fyrirstríðsíslensku, að standa uppi í hárinu á manni sem flytur mál sitt á niðurgreiöslumáli. Talar um vorbærur, sumarbærur og vetrar- bærur. Þegar ég var í sveit nefndu menn kýmar snemmbærar eða síðbærar. Snemmbærur báru á haustin, eða fyrrihluta vetrar, en síðbærur báru á vorin, sem þótti verra. 1 þá daga var mjólkurskortur í sveitum á sumrin. Þá töldu bændur hagkvæmt að hafa kýmar í geldstööu á sumrin meöan fólkið var við heyannir og margháttuð sumarstörf. Kýrnar gengu þá í úthaga sumarlangt. En Súgfirðingnum til skýringar, þá verður ekki breyting á þessu, fyrr en tilraunir hef jast á Hvanneyri árið 1950 og síðar á Laugardælum með túnbeit, eða beit á ræktuðu landi. Þá var það sannað fyrir bændum að sumarbeitin getur sparað fóðurbæti og kýmar komastíbestunyt. Bændur breyta þá úr snemmbæmm yfir í síðbærur og árangurinn lætur ekki á sér standa. Mjólkin eykst um 20—25% a.m.k. á samlagssvæðinu hér. Heyvinna með vélum tók viku. Varðandi það að kýr hér séu slag- andi af fóðurbæti, þá vil ég segja það að hér á samlagssvæðinu er gefinn fóð- urbætir í ósmáum skömmtum. Slíkum ódæmum af kjarnfóðri er dembt í kýrnar að þær veikjast. Júgur- bólga er landlæg hér og þess vegna vom samtök bænda nýverið að veita hálfri milljón króna til rannsókna á júgurbólgu, því bændur ganga alla daga meö pensilinsprautuna i rass- vasanum, eins og marghleypu sem margsinnis hefur orðið til þess að mjólkin frá þeim er svo menguð af lyfjum að mjólkursýrugerlar, eða „kokkar” mjólkurbúanna, drepast þegar reyna á skyrgerð og smjörgerð. Þekktustu gerðir mjólkursýrugerla, eins og Streptococus lactis, S. cremoris og stafgerlar eins og Lactobacillus þola ekki þessa dópuðu mjólk og við hana er ekki annað að g jöra en að hella henni niður, eða senda hana suður til neyslu. En víkjum að öðm. JONAS GUÐMUNDSSON RITHÖFUNDUR Nýjustu fréttir af Njálu Ef litið er af heilindum til þeirra vandamála sem við er að stríða verður það fljótlega ljóst að það em vinnsluhofin og fjárfestingardellan sem eiga drýgstan þátt í þeim vand- ræðum sem forysta bænda hefur sett neytendur og framleiðendur í, og að nú nægir ekki það eitt að telja neytendur heimska og illgjama heldur þarf einnig að „sanna” aö framleiðslunni sé stjómaö eftir lögum um kjamfóður- gjald og fl. frá 1979. „Ekki er sanngjarnt aö ætlast til meiri samdráttar í mjólkur- og kinda- kjötsframleiðslunni,” segir Gunnar á Hjarðarfelli í grein í Tímanum, 5. júní sl. Hann telur að samdráttur í mjólkur- framleiðslu hafi orðið 14,4% og um 20% samdráttur hafi oröiö i sauðfjárrækt en „stjómun” hófst 1980. Það er því ekki að undra þótt maður sé talinn heimskur. Samkvæmt opinberum tölum var þó 891.785 fjár slátrað árið 1980, en 883.105 árið 1983. Þetta teljum við hér þó vera 1% samdrátt, en 1981 var slátrað 989 þúsund fjár og 1982 942 þúsundum. Lítilsháttar samdráttur hefur þó orðið í kjötframleiðslu vegna minni fallþunga en fallþunga er ekki stjómað í Bændahöllinni heldur á himnum. Um mjólkina er svipað að segja á Samlagssvæði 1. (MBF). Þar varð ekki samdráttur í mjólkurframleiðslu 1980-1983. Mjólkin stóð í stað, í 38 milljónum lítra, og sáralitlu munar milli ára. Á fyrstu mánuöum þessa árs hefur hins vegar orðiö 10% aukning. Ruglinu um samdrátt og „stjórnun” verður því að vísa í Bændahöllina aftur. Það er rétt aö ég er ekki sérfróður i landbúnaði. Man til dæmis ekki hvort undanrennutuminn hjá Mjólkurbúi Flóamanna er 100 metra hár og kostaði 30 milljónir eða hvort hann er 30 metra hár og kostaði 100 milljónir króna. Því verð ég aöeins að halda mig við opinberar tölur og reikninga. Hefi ekki við annað að Ptyðjast. Eg verð þó að viðurkenna að ég veit aö undanrenna hefur aldrei komist í tuminn við ölfusá, þótt deila megi um hæöina, en ég veit hins vegar vel hvað komist hefur í Bændahöllina. Að svo mæltu hlusta ég á storminn í grasinu. Jónas Guðmundsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.