Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 6
DV. FÖSTÚDAGUR15. JÖNÍ1984.
6
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Náttúruhamfarir
í Sovétríkjunum
Sovésk stjórnvöld hafa greint f rá
alvarlegum skemmdum á mann-
virkjum og mannskaöa vegna ský-
strokka sem gengu yfir nokkrar
borgir í Miö-Rússlandi um síðustu
helgi. Upplýsingar stjórnvalda eru
ekki nákvæmar en talið er að tugir
manna kunni að hafa farist.
Vestrænir sendiráðsstarfsmenn í
Moskvu segja að viöbrögð fjölmiðla í
Sovétrikjunum bendi til þess aö hér
hafi verið um meiriháttar náttúru-
hamfarir að ræða.
Dagblaðið Izvestia sagöi frá því
að nokkrir skýstrokkar hefðu gengið
yfir svæðið milli borganna Yaroslavl
og Gorky, eyðilagt verksmiðjur og
fellt hundruð mastra í háspennu-
iínum. Múrsteinahús lögðust i rúst
undan vindunum, aö sögn Izvestia,
og sums staðar stóðu engin hús uppi.
Einn skýstrokkurinn, 450 metrar á
breidd, skildi eftir sig slóð eyði-,
leggingar í borginni Ivanovno en þar
býr hálf milljón manna.
I frétt blaðsins er þess getið að
mannskaði hafi orðið en engar tölur
þar aö lútandi gefnar upp. Erlendir
sendiráösstarfsmenn segja það
benda til þess að hamfarimar hafi
verið miklar að stjómvöld tilkynntu
að samúðarkveöjur yrðu sendar til
aðstandenda hinna látnu en það gera
sovésk stjórnvöld aðeins þegar um
meiriháttar náttúruhamfarir eða
slyseraðræða.
Bandaríkin:
Nýtt lyf gegn herpes
Nýtt lyf hefur verið fundið upp
sem dregur mjög úr áhrifum hins
ólæknandi sjúkdóms herpes, að sögn
rannsóknarstofnunar sem rekin er á
vegum Bandaríkjastjórnar.
Sjúkdómurinn herpes er mjög
smitandi og smitast venjulega við
samfarir. Veldur hann sárum og
blöðrum en þau einkenni geta horfið
og ekki komið fram aftur fyrr en
löngu síðar. Flestir sem þjást af
sjúkdómnum fá slík útbrot þrisvar til
fjórum sinnum á ári en sumir sjúk-
lingar fá útbrot tólf til sexán sinnum
áári.
Rannsóknarstofnun á ofnæmis- og
smitsjúkdómum, sem Bandaríkja-
stjórn rekur, hefur rannsakað lyf
sem dregur úr og stöðvar stundum
útbrot. Lyfið er nú framleitt til sölu
og kallast Oral Acyclovir. En
vísindamenn stofnunarinnar vara
við því að mikil notkun lyfsins kunni
að kalla fram nýtt afbrigði af
vírusnum sem veldur herpes sem
væri ónæmur fyrir lyfinu.
Rannsóknir stofnunarinnar á
lyfinu leiddu í Ijós að útbrot komu
fram um leiö og sjúklingar hættu að
taka lyfið reglulega. Segja vísinda-
menn, sem starfa við stofnunina, að
þó að niðurstöður lofi góðu þurfi
frekari rannsóknir á áhrifum lyfsins
þegar það er tekið lengi.
ElSalvador:
Lögregludeild
lögð niður
Duarte, forseti f/ Sa/vador,
hreinsar nú til i lögreglulíði
rikisins.
Jose Napoleon Duarte, ný-
kjörinn forseti E1 Salvador, hefur
lagt niöur sérstaka deild lög-
reglunnar þar í landi sem talin var
tengd dauöasveitum hægri manna.
Talsmaður lögreglunnar í E1
Salvador sagði að starfsmenn S—2
upplýsingadeildar gjaldeyrislög-
reglunnar yrðu fluttir til og settir til
starfa utan höfuöborgarinnar San
Salvador.
Ráðstöfun þessi er liður í til-
raunum stjómvalda í E1 Salvador til
þess að bæta orðspor það sem fer af
lögreglusveitum ríkisins sem gjarna
hafa verið sakaðar um mann-
réttindabrot.
Reagan vill
leiðtogafund
Reagan Bandaríkjaforseti sagði í
gær aö hann væri reiöubúinn til við-
ræðna við sovéska leiðtoga til aö
bæta sambúð risaveldanna. Sagði
forsetinn aö efnisskrá fundarins
þyrfti ekki að vera undirbúin í smá-
atriðum og er þetta breytt afstaða
frá því sem verið hefur til þessa hjá
bandariskum stjórnvöldum.
Forsetinn sagði að hann væri
reiöubúinn að hitta Konstantin
Chernenko, þó svo að Sovétmenn
tækju ekki upp að nýju viðræður við
Bandaríkjamenn um takmörkun á
kjamorkuvopnabúnaöi. Sagði
Bandaríkjaforseti að sér nægði að
þeir leiðtogarnir ræddu málin al-
mennt ef það mætti leiða til betri
sambúöar.
Fram að þessu hefur þaö verið
ófrávíkjanleg stefna bandarískra
stjórnvalda að leiðtogafundur kæmi
því aðeins til greina aö hann væri
vandlega undirbúinn fyrirfram og
allar líkur væru á raunhæfum niður-
stöðum.
Á blaðamannafundinum í gær-
kveldi sagöi Reagan aö bandarisk
stjórnvöld hefðu verið að þreifa fyrir
sér með það hvort ekki væri viðræðu-
grundvöllur við Kremlverja og að
hann hefði beitt sér persónulega í því
máli. Hann sagði einnig að leynst
gætu hættur bak við leiötogafund og
hugsanlegt væri að í stað þess aö
leiöa til samkomulags gæti slíkur
fundur leitt til frekari spennu.
Talsmaöur stjómvalda í Sovét-
ríkjunum hafði fyrr um kvöldið sagt
að Chemenko væri reiðubúinn að
hitta Reagan en tók skýrt fram að
Sovétmenn teldu enn langt í leiðtoga-
fund og mikils undirbúnings þyrfti
viö ef gagnleg niðurstaða ætti aö
nást.
Reagan neitaði bví á blaöamanna-
fundinum að yfirlýsing hans hefði
nokkuð að gera með forsetakosning-
amar sem framundan em. Hann
sagði að dyrnar stæðu Sovétmönnum
opnar og stjóm sín myndi halda
áfram þreifingum bak við tjöldin til
þess að reyna aö koma leiðtogafundi
á. Hann sagöi einnig aö stjórn sín
hefði átt í erfiðleikum því leiðtoga-
skipti heföu orðiö þrisvar sinnum í
Sovétríkjunum frá því hann tók við
forsetaembætti Bandaríkjanna.
Andstæðingur Gadd-
af is skotinn
í Grikklandi
Andstæðingar Gaddafis eru hvergi
óhultir.
Grískur búðareigandi, fæddur í
Libýu og andstæðingur stjómar
Muammar Gaddafis, særðist í skotá-
rás í Aþenu í fyrradag. Gríska lög-
reglan handtók líbýskan ríkisborgara
vegna þessa atburðar.
Búðareigandinn, Manolis Hiladakis,
fluttist til Grikklands frá Líbýu 1970 og
hafði um tíma dreift arabísku tímariti
sem andstæðingar Gaddafis gefa út.
Okunnur maður gekk inn í verslun
Hiladakis í fátækrahverfi í Aþenu,
öskraði til hans nokkrum orðum á
ensku og skaut hann með skammbyssu
búinni hljóðdeyfi.
Lögreglan í Aþenu handtók Libýu-
mann skammt frá versluninni og hafði
maðurinn þá á sér skammbyssu sem
nýlega hafði verið skotið úr. Hann
neitaöi aö eiga þátt í árásinni á
Hiladakis.
BorisSpassky:
HÆTTUR AÐ
TEFLA FYRIR
SOVÉTMENN
Júgóslavneska fréttastofan skákmóti í Linares á Spáni fyrir ári. Hann tók þó fram að hann væri
Tanjug hafði það eftir Boris Spassky Spassky lýsti því yfir við frétta- ekki andófsmaður og vildi ekki aölit-
aðhannmyndialdreiafturteflafyrir mann Tanjug, eftir alþjóðlegt skák- ið yrði á sig sem slíkan þrátt fyrir
Sovétríkin. Þetta fylgir í kjölfar mót í Bugonjo í Júgóslavíu, að þetta pólitísk áhrif ákvöröunar sinnar.
deilna Spasskys við íþróttayfirvöld í væri í síöasta sinn sem hann tefldi Spassky býr í Frakklandi með konu
Sovétríkjunum. Heimsmeistarinn undir fána Sovétríkjanna. Spassky sinni sem er frönsk. Hann sagði að
fyrrverandi sagði að samband hans sagði að hann hefði árum saman hann myndi líklega tefla fyrir Frakk-
við iþróttayfirvöld í Sovétríkjunum reynt að sættast við valdamenn í land á ólympíuskákmótinu í Thessa-
hefði vemsað mjög eftir að hann sovéskum íþróttum en enginn hefði loniku í Grikklandi í nóvember.
^ vann skák sína við Anatoly Karpov á viljað koma til móts við sig.
Boris Spassky, hætturað tefía fyrir Soyétrikm.