Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 4
4 DV. FÖSTUDAGUR15. JUNI1984. Fréttaljós — Fréttaljós — Fréttaljós — Fréttaljós — Fréttaljós — Fréttaljós — Umsjón: Friðrik Indriðason Samdráttur og harðnandi sam- keppni einkenna íslenska mynd- bandamarkaðinn um þessar mundir. Margar myndbandaleigur eru til sölu og allt bendir til þess aö markaðurinn sé mettaður. Nýjar og litlar leigur munu sennilega ekki lifa af sumarið og flest bendir til þess aö hér verði sama þróun og verið hefur á Norðurlöndunum, markaðurinn dregst saman eftir því sem nýja- brumið fer af honum þar til hann kemst í jafnvægi, svipað og átti sér stað til dæmis er sjónvarpið fór af stað. Er frá líöur fara menn að velja og hafna og annað afþreyingarefni þrýstir sér inn á það svið sem mynd- böndin tóku yfir í byrjun. Á sama tíma og þetta gerist stefnir í harða rimmu milli þeirra sem eiga myndbandaleigur og þeirra sem dreifa efninu í þær. Stofnun Samtaka íslenskra myndbandaleiga má þannig rekja beint til aðgerða Sam- taka rétthafa myndbanda sem beind- ust að ólögmætum myndböndum á leigunum en eins og kunnugt er hétu SRM hverjum þeim sem komið gæti ólöglegu myndbandi til þeirra launum sem námu 2000 kr. fyrir hvert ólöglegt myndband og 4000 kr. fyrir kóperingu. Vegna þessara aðgerða SRM komu myndbandaleigueigendur saman og stofnuðu sín eigin samtök, SIM, en slík samtök hafði áður verið reynt að stofna a.m.k. þrisvar sinnum á síðustu tæpum þrem árum. Engar opinberar tölur En hve stór er íslenski mynd- bandamarkaðurinn? Erfitt er að svara þeirri spurningu nákvæmlega þar sem engar opinberar tölur eru til um innflutning á myndböndum sér- staklega, þ.e. myndbönd eru flokkuð með tónböndum (segulbandsspól- um) og er þetta tvennt undir sama tollskrárnúmeri. Hið sama á við um auðar spóiur og ekki er vitað um umfang óiöglegs innflutnings, þ.e. þess sem menn flytja inn á eigin vegum í ferðatöskum sínum. Innan SlM eru nú 60 myndbanda- leigur víösvegar um landið en alls munu vera hérlendis rúmar 150 myndbandaleigur. Að sögn Gunnars Guðmundssonar, lögfræðings SRM, eru um 700 myndbönd á meöalieigu, sumar hafa fleiri sumar færri og þær „Það sem verður eitt af baráttu- málum okkar, og þarf að koma, er að setja þarf reglur og gera kröfur til þeirra sem stunda þennan rekstur, svipað og til dæmis gerist meö fast- eignasölur. Þær reglur eru ekki fyrir hendi núna,” sagði hann. Ingimundur Jónsson sagði í sam- tali við DV að samkeppnin nú væri of hörð. . . „litlir og nýir aöilar á þessu sviði munu deyja. Það er einfaldlega alltof mikið af leigum á markaðinum.” Ragnar Guðmundsson í Texta sagöi í samtali við DV að síðasta ár hjá þeim heföi verið toppurinn en þá Samdráttur og harðnandi samkeppni á myndbandamarkaðinum: Til eru um 90 þús- und myndbSnd hér engar opinberar tölur að hafa um magnið litlu eru í meirihluta. Þvi er ekki van- reiknað að segja aö um 90.000 mynd- bönd séu til á leigunum í landinu til útlána en titlamir eru miklu færri. Sem dæmi má nefna Texta sem til skamms tíma var eina fyrirtækið sem framleiddi myndbönd hérlendis, þ.e. fjölfaldaði og textaöi myndbönd. Samkvæmt upplýsingum hjá Texta voru fjölfaldaöir um 350 titlar hjá þeim á siðasta ári, að meðaltali 40 myndbönd af hverjum titli eða um 14000 myndbönd ails. Viðskiptabann Nýlega voru samþykkt á Alþingi ný lög sem ná yfir höfundarrétt á myndböndum og telja SRM sig standa með pálmann í höndunum eftir það. Samningaumleitanir standa nú yfir milli SMR og SlM. SMR hefur gert SIM tilboð um eins mánaðar aðlögunartíma að nýju lög- unum, þ.e. leigumar fái mánuö til að hreinsa út hjá sér ólöglegt efni en ekki munu allir innan SIM vera jafn- hrifnir af því fyrirkomulagi og á fundi hjá þeim hefur m.a. verið viðmð sú hugmynd að setja viðskiptabann á aðila innan SRM. Raunar var eitt óformlegt viðskipta- bann í gildi um skeið gagnvart Myndböndum eða því fyrirtæki sem dreifir efni frá Regnboganum. Að sögn eins stjórnarmanns í SlM var forsaga þess máls sú að sá sem sá um söluna var svo óvinsæll hjá myndbandaleigunum aö útilokaö var fyrir hann aö selja nokkurt efni. Þá kom kúvending og nýr maöur var fenginn til að annast verkið. Var sá talinn samningaliprari og hefur ýmislegt breyst til batnaðar síöan að dómi aðila innan SIM. 'Viðskiptabann á aðila innan SRM er þó nokkuð fjarlægur möguleiki í sjálfu sér því mótleikir SMR gegn því em margir. Sá einfaldasti er sá að SMR setji upp leigur eða útibú meö efni frá sér í beinni samkeppni viö aöila innan SlM. Þessu ætti StM erfitt með aö svara því SRM hefur lögin sín megin. Hvað varðar erfið samskipti milli Regnbogans og myndbandaleiga sagöi Ingimundur Jónsson, for- maöur SlM, í samtali við DV að... ,,menn hafa lært þann einfalda boðskap að ef um dóna- og mdda- skap er að ræða verslar enginn við þig. Nú fá allir myndbönd jafnt hjá þeim en áður voru þeir kannski að mjólka myndböndin í eigin leigu í hálfan mánuð áður en þeir seldu þær öðrum leigum.” Gjaldþrotamenn í viðskiptum Ef vikið er aftur að hbni hörðu samkeppni og samdrætti sem nú ríkir á vettvangi myndbandaútleigu hérlendis þá kemur þar fleira til en mettaður markaður og almennur samdráttur í þjóðfélaginu því margir hafa talið þetta auðvelda leið til að ná sér í aura og sumir þeirra kunna lítið til þess rekstrar sem hér um ræðir, eða þá rekstrar almennt. Gunnar Guðmundsson sagði aö í sumum tilfellum vissu þeir um menn sem stæðu í þessum rekstri sem sam- kvæmt opinberum plöggum kynnu ekki að fara með eigin fjárreiður, þ.e.a .s. hefðu veriö lýstir gjaldþrota. fjölfölduðu þeir um 350 titla.. . „menn halda að sér höndunum núna og dreifa meira hjá sér framleiðsl- unni og sölunni. Markaðurinn er í greinilegum öldudal og mér sýnist þetta stefna í sama far og gert hefur á hinum Norðurlöndunum en þar hafa á milli 30 og 40% myndbanda- leiga lokað á sl. ári og af þeim sem eftir eru hefur mikiö verið keypt upp af stærri fyrirtækjum sem eru í öðrum rekstri. Neyslan hér er að komast á ákveðið stig, fólk er farið að velja og hafna meira en það gerði,”segirhann. Hjá þeim sem DV ræddi við var þó almennt sú skoðun rikjandi að ofan- greint ástand ætti fremur við um höfuðborgarsvæðið heldur en lands- byggðina. A landsbyggðinni væri markaðurinn enn stækkandi þótt dregið hefði aðeins úr þeim vexti undanfarið. Þar væru enn mögu- leikar, einkum vegna þess að afþreyingarefni er almennt mun fá- brotnara á landsbyggðinni og fólk hefur ekki úr eins miklu að moða á þeim vettvangi og fólk á höfuö- borgarsvæðinu. -FRI. Gisli Halldórsson tók fyrstu skóflustunguna að félagsmiðstöðinni /: vesturbænum. DV-mynd: GVA. Fyrsta skóflustunga að félagsmiðstöð Fyrsta skóflustungan var tekin í fýrradag að nýrri félagsmiðstöð við KR-heimiIið í vesturbæ Reykja- víkur. Það var Gísli Halldórsson, heiðursforseti ISI og einn af „elstu sonum KR”, sem tók fyrstu skóflu- stunguna. Sveinn Jónsson, formaður KR, sagöi í stuttu ávarpi sem hann flutti við þetta tækifæri að nú væri lang- þráður draumur KR-inga aö rætast á 85 ára afmæli félagsins. Þama mun rísa miðstöð fyrir félagsstarf allra félagsmanna og sagðist hann vonast til að í framtíðinni færi þar fram mannbætandi og gott starf svo sem hingað til innan veggja KR- heimilisins. Nýja félagsmiðstöðin er byggð í samvinnu við Æskulýösráð Reykjavíkur og borgarsjóð en á efri hæð nýbyggingarinnar mun Æsku- lýðsráð reka félagsmiðstöð fyrir unga vesturbæinga. -ÞG. Þörff á að sam- ræma og miðstýra aðgerðum til vemdar sjaldgæf um dýrategundum —segir í tilkynningu f rá vestur-þýska sendiráðinu í kjölfar fálkaeggjastuldarins Heinz Pallasch, sendiráðunautur vestur-þýska sendiráðsins hér á landi, hefur sent frá sér eftirfarandi greinar- gerð vegna þýsku fálkaeggjaþjófanna sem voru teknir á Norðurlandi 30. apríl síðastliðinn. Eins og kunnugt er voru þeir með átta fálkaegg í fórum sínum auk mjög f ullkomins búnaðar til eggja- töku og fleira í þeim dúr. Þetta voru ung hjón um tvítugt og hlutu þyngsta dóm sem felldur hef ur verið hér á landi í máli af þessu tagi. -KÞ. Aö lyktum hins leiöa atviks hinn 30. apríl sl. langar mig til að skýra yöur frá því frá sjónarhóli sendiráðsins, að þetta atvik hefur einnig vakið mikla athygli í fréttaflutningi í Þýskalandi. Af því varð ljóst, að um var að ræða braskara, sem þegar hafa valdið áliti iÞýskalands erlendis miklu tjóni. En ieinmitt þetta nýliðna atvik og sú athygli, sem það hefur vakið, hafa fært okkur heim sanninn um, að þörf er á að samræma og miðstýra enn betur en áöur gagnráðstöfunum gegn slíku framferði, þar sem ljóst er, að einstak- ir löggæsluaðilar hafa ekki ráðiö viö gróf brot af þessu tagi gegn alþjóða náttúruvemdarsamþykktum fram að þessu. Því er nú ástæða til þess að vona, að gengið verði hart eftir því framvegis, að verndunarákvæði þessara samþykkta verði haldin, eftir það tjón, sem þessir hópar hafa þegar valdið, einnig í öðrum löndum. Sú tilhugsun, að við glötuðum sjaldgæfum dýrategundum okkar fyrir fullt og allt, er einnig óbærileg fyrir okkur. Að því er snertir ofangreint atvik sjálft vil ég láta þess getiö frá persónu- legum sjónarhóli mínum, að hér hefur komiö upp mannlegt vandamál af sér- stöku tagi, nefnilega vandamál verndar lítt sjálfstæðrar eiginkonu gegn misneytingu af hálfu eiginmanns hennar. Eftir að umrædd stúlka gekk að eiga eiginmann sinn fyrir ári, án vitundar foreldra hennar og hann tók hana með sér í ævintýraleiðangur þennan þrátt fyrir mjög varhugavert heilsufarsástand hennar, er mér með öllu óskiljanlegt, hvemig hann gat fengið af sér að stinga hinum rændu eggjum inn á hana, er hann sá fram á handtöku sína, til þess aö firra sjálfan sig ábyrgð á hennar kostnað. Þó ætla ég mér ekki þá dul að ætla að leggja dóm á, hvernig litið er á slíka mann- lega sök frá réttarlegu sjónarmiði, en mér veldur hún hugarangri, þar sem ég geri mér gjörólíkar hugmyndir um það, hvemig framkoma manns gagn- vart maka sínum eigi að vera að réttu lagi. Þvi var það, að ég gekkst fyrir því, að stúlkan yrði send sem bráðast heim til foreldra sinna með hliðsjón af heilsufari hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.