Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR15. JÚNI1984. 9 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur FRANSKAR VÖFFLUR 4 dl hveiti 200 g smjörlíki 1dlsykur tæpur 1 dl vatn Smjörkrem: 100 g smjör 1 dl flórsykur 1 dl vanillukrem Hveiti, mjúku smjörlíki og vatni er hnoðað saman. Flatt út, brotið saman, pakkaö inn í plast, látið vera í isskáp í minnst eina klukkustund. Deigið er flatt út aftur, æskileg þykkt er um 1/2—2/3 cm. Deigiö er skorið út með glasi sem er 3 1/2—4 cm í þvermál. Sykri er stráöá borðið, kökunum raðað á sykurinn og rúllað yfir þær með kökukefli, þær gerðar ílangar og þunn- ar. Þá er þeim raðað á smurða ofn- plötu. Bakaö við 225°—250° hita í 4—5 mínútur. Þegar þær hafa verið þaktar sykri eru þær fljótar að dökkna til hlið- anna og þarf því að hafa auga með þeim í ofninum. Þegar þær eru orðnar gulbrúnar eru þær teknar af ofnplöt- unni, látnar kólna á bökunarrist og síð- an lagðar saman tvær og tvær með vanillukremi á milli. Þegar smjörkremið er útbúið, þarf að þeyta vel saman smjör og sykur, síðan er vanillukreminu bætt varlega saman við. Ef frysta skal kökurnar er betra að frysta þær án kremsins. Frönsku vöfflurnar skal geyma í kæli. Franskar vöffíur, með gama/dags smjörkremi á milli, er fíjótiegt eö útbúe en deigiö þerf að bíða um klukkustund i kæli áður en það er bakað. HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. AÓstoÓum viö val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. V 1 = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA 153UN Merkingar mjólkurvara eru með misjöfnum hætti og telja margir að gera þurfi þær mun greiniiegri og auðskiljanlegri á einstökum umbúðum. DV-myndBj. Bj. SKÝRAR 00 LÆSILEGAR MERKINGAR Á MJÓLKINA Á aðalfundi Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis var sam- þykkt ályktun þar sem þeim tibnælum var beint til mjólkursamlaga að þess sé gætt að upplýsingar um síðasta sölu- dag séu jafnan skýrar á umbúðum mjólkurvara og aö þær séu læsilegar fyrir neytendur. Einnig að á umbúðum verði jafnframt getið um framleiðslu- dag. Samkvæmt reglugerð er skylt að merkja allar mjólkurvörur síðasta söludegi. Þessar merkingar eru með nokkuö misjöfnum hætti. A eins lítra mjólkurfernur er síð- asti söludagur stimplaöur á fernuna með breiðum svörtum stöfum, mjög læsilegum. Þessi merking er þvi til fyr- irmyndar og auðskiljanleg. A hálfs lítra og tveggja lítra femum eru merk- ingar með öðrum hætti. Efst á þeim, þar sem þær eru klemmdar saman, eru stafir greyptb- í umbúðbnar og þykir mörgum þessar merkingar nokkuð óljósar. Það getur oft verið erf- itt að grebia hvaða tölur er um að ræða vegna þess að tölumar prentast illa á umbúðbnar. Svo er annað atriði sem vefst stundum fyrir neytendum. Það er að í þessum merkingum er tala mánaðarins fyrst og síðan mánað- ardagurinn. I íslensku er hins vegar venja aö 'ita fyrst mánaöardaginn og síðan tölu mánaðarins. I albnörgum tilvikum getur þetta valdið misskibi- mgi og því ekki gott að átta sig á hver síðasti sögudagur er í raun og veru. Oddur Helgason, sölustjóri Mjólkur- samsölunnar í Reykjavík, sagði að undanfarin ár hefðu veriö gerðar margar breytingar á þessum merkrng- um og stööugt væri unniö að endurbót- um á þeim. Pökkunarvélarnar væru keyptar er- lendis og fylgdu með þeim þeir dag- setningarstimplar sem notaðb væru. Þrykktu stafimb hefðu sína galla en það væri erfitt að finna blekstimpla sem stimpluðu stafi sem héldust á um- búöunum. Hvað snerti þá kröfu að stimpla einnig framleiðsludag á umbúðir væri einungis skylda að hafa síðasta sölu- dag á umbúðunum samkvæmt reglu- gerð. Hins vegar hefði þetta verið gert í nokkrum nágrannalöndum okkar. Þar hefði síðan víðast hvar verið fallið frá því aftur. Talið er að nægilegt sé að hafa síöasta söludag á umbúöum mjólkurvara. APH FÖSTUDAGSKVÖLD Honda Accord árg. 1980. Mazda 323 st. 1,4 árg. 1979. Cordoba árg. 1978. Dodge Omni árg. 1980. AMC Eagle4x4árg. 1980. ÆEKBS Toyota Starlet árg. 1980. Blazer árg. 1977, 8 cyl., disil. Bill í sérflokki. Oldsmobile Cutlas L5. M. Benz 250 árg. 1978. Bíll með öllu. Opið A LAUGARDAGA KL.9-19. KL. 10-18 BORGARTÚNI 24. SÍMAR 13630 - 19514 - 23718.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.