Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR15. JUNl 1984. Útlönd Útlönd Útlönd DEILUR Á FUNDI COMECON RÍKJA Fundi aöildarríkja Comecon (efna- hagsbandalags kommúnistarikja) lauk í Moskvu í gær. Á fundinum voru gerð drög að efnahagsáætlun kommúnistaríkj- anna sem nær fram til næstu alda- móta. Samkomulag var um að nánari samvinna væri nauðsynleg á milli kommúnistaríkjanna og að sameiginleg skipulagning efnahags- mála rikjanna væri það sem stefnt skyldi að. Fundinum lauk með því að Leonid Zamyatin, aðaltalsmaður Sovétríkj- anna, fór yfir þau helstu málefni sem tekin voru fyrir og samkomulag varð um. Sovéskir f jölmiðlar sögðu í gær að á fundinum hefðu faríð fram „opin- skáar viðræður um viðskipta- málefni”. Vestrænir fréttaskýrendur segja að þetta orðalag merki að mik- U1 ágreiningur hafi rikt á fundinum. Ekki er mikið vitaö um hvað fram fór á fundi ríkjanna en talið er víst að heitar umræður hafi orðið um verð á olíu sem Sovétmenn selja banda- mönnum sínum. Verðiö hefur verið töluvert hærra en heimsmarkaðs- verð og hafa Austur-Evrópuríkin kvartað mikið undan þessu á síðast- liönum árum. Boris Gostev, tals- maður Sovétríkjanna í efnahags- málum, sagði að Sovétmenn hygðust breyta stefnu sinni í verðlagningu á olíu og myndi verðið vera nálægt því sem gerist á heimsmarkaöi. Einnig er talið að tækniþróun hafi verið ofarlega á baugi á fundinum og rætt um leiðir til að ná því forskoti sem vesturveldin og Japan hafa fram y fir austurblokkina á þvi sviöi. Samkvæmt heimildum frá Austur- Evrópu urðu töluverðar deilur á fundinum vegna viöskipta við Vesturlönd. Samkvæmt sömu heimildum skáru Austur-Þjóðverjar og Ungverjar sig nokkuð úr í þeim viðræðum. Austur-Þjóðverjar hafa á undanförnum árum hagnast mikið á viðskiptum við Vestur-Þýskaland og Ungverjar hafa verið frjálslyndastir Austur-Evrópuþjóða í afstöðunni til einkareksturs. Pólland: DregurWalesa sigíhlé? Lech Walesa, leiðtogi hinna ólöglegu pólsku verkalýðssamtaka, Einingar, segir að hann muni hugsanlega hætta afskiptum af hreyfingunni eftir að úr- slit sveitarstjórnarkosninga í Póllandi, á sunnudaginn kemur, liggja fyrir. Þessi yfirlýsing Walesa breytir tals- vert bakgrunni kosninganna, sem til þessa hafa verið taldar átakapunktur milli stjórnvalda og leiðtoga Einingar, sem vilja að Pólverjar hunsi kosningarnar. I yfirlýsingunni segir Walesa: „I sambandi viö spumingar varðandi kosningamar vil ég lýsa því yfir að ég vil ekki hafa áhrif á afstöðu kjósenda þar sem ég vil komast aö raun um hvert hið raunverulega ástand er.” Pólsk stjómvöld hafa spáð góðri kjör- sókn, sem muni sanna að þjóðin hefur öðlast traust á hinum kommúnisku valdhöfum að nýju. Walesa hefur lýst því yfir, ásamt 40 öðrum leiðtogum Samstöðu, að hann muni ekki greiöa atkvæði en hann hefur forðast að beita sér fyrir því að menn sitji almennt heima á kjördag. schlUter slapp VIÐ RÉTTARHÖLD Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- Fyrir nokkrum vikum kom fram mannlDVíSvíþjóð: að SchlUter hefði fyrir tveimur og Paul Schluter, forsætisráöherra hálfu ári selt húsið fyrir 1,1 milljón Danmerkur, hefur með naumindum danskra króna. Skömmu eftir kaupin tekist að losna við hneykslismál sem uppgötvaði nýi eigandinn að mikið upp kom vegna sölu hans á lúxushúsi var um rottur í húsinu og auk þess sínu í Klabbenborg fyrir noröan stórirhlutarþessmjögfúnir. Kaupmannahöfn. I gær bauð lög- Fyrir einni viku tilkynnti Sdiliiter fræðingur forsætisráðherrans að hann væri reiðubúinn að kaupa kaupandanum 600.000 danskar húsið aftur á sama verði og hann krónur í skaöabætur vegna kaup- hefði selt það auk kostnaðar við við- anna. gerðir. Þannig hugðist hann sleppa Kaupandinn, sem fullyrti að húsið við réttarhöldin en kaupandinn féllst hefði verið fullt af rottum og illa ekkiáboöhans.Kaupandinnkrafðist farið af fúa, samþykkti skaðabæt- þess í staðinn að fá 600.000 danskar umar og þar með var málið gegn krónur í skaðabætur og féllst f orsætisráðherranum lagt niður. Schltiter í gær á aö greiöa þær. Hann Danski Ihaldsflokkurinn er mjög sagöi þó að ljóst væri að heföi málið ánægður með að málið skuli vera farið fyrir dóm hefði hann aldrei leyst því það var ekki aðeins farið að þurft að greiða slika upphæð en hann hafa áhrif á vinsældir forsætisráð- hefði þó kosið að gera það vegna herrans sjálfs heldur einnig fylgi meðferðarinnarerhannhefðihlotiðí íhaldsflokksins. fjölmiðlum. Sovétríkin: Hernaðarút- gjöld stór- aukin Utgjöld Sovétmanna til vamar- mála jukust hraðar á síðasta ári en nokkm sinni síðan 1976, að sögn hátt- setts starfsmanns bandariska varnar- málaráöuneytisins. Sagöi maðurinn að áfangaskýrsla frá starfsmönnum bandarisku leyniþjónustunnar sýndu aukningu á slikum útgjöldum um 5 til 10% fráárinul982. Starfsmaður bandaríska varnar- málaráðuneytisins sagði að talið væri að Sovétmenn hefðu eytt 235 mill- jörðum dollara til varnarmála, fyrir utan launakostnað, og sagöi aö sam- bærileg tala fyrir Bandaríkjamenn væri 180 milljarðar dollara. Milli áranna 1976 og 1982 jukust út- gjöld Sovétmanna tii varnarmála um u.þ.b. 2% á ári, en árið 1983 jukust þessi útgjöld um 3—4%. Þessi starfs- maður bandaríska vamarmálaráðu- neytisins gaf fréttamönnum þessar upplýsingar þegar öldungadeild bandaríska þingsins var að hefja um- ræður um f járframlög til vopnakaupa, en þar er gert ráð fyrir útgjöldum upp á 291 milljarð dollara. Spánn: Sviðsettu aftöku Tveir spænskir liðsforingjar hafa verið leystir frá störfum eftir að þeir skipuðu liðsmönnum sínum aö setja á svið aftöku á borgarstjóra Avena, lítt- illar borgar í norðausturhluta Spánar. I yfirlýsingu spænska hermálaráðu- neytisins sagði að liðsforingjamir Carlos Aleman Artigues og Jaime Iniques Andrade yrðu leystir frá störfum meðan rannsókn á málinu stæði yfir. Vitni að atburðunum sögðu að her- menn undir stjórn liðsforingja heföu verið aö æfingum þegar þeir handtóku borgarstjórann og annan mann með honum og sökuðu þá um að „starfa með óvinunum”. Þeir voru síðan leiddir að vegg við aðaltorg bæjarins og hermennirnir skutu á þá meö púður- skotum. Borgarstjórinn, Jose Galindo, segist hafa fyrirgefið liðsforing junum og liðs- mönnum þeirra. Húseigendur spara milljónir GAGNVARÐIR GLUGGAR Fullunnið timbrið gagnverjum við með olíuuppleystum efnum við undir og yfir- þrýsting. Viðurinn mettast af olíunni sem varnar vatni leið inn í viðinn. Þessi gagnvarnar- aðferð ver ekki aðeins gegn fúa heldur tryggir stöðugleika efnis og 1. flokks yfirborðsáferð. Með fúavarnarkerfinu okkar spörum við íslenskum húseigendum milljónir króna. glugga-og huiðaverksmiðja NJARÐVfK, Sími: 92-1601 Skrifstofa í Reykjavík: Iðnverk hf, Nóatúni 17. Símar: 91-25930 og 91-25945. Hvítir 35 — 46 Svartir 35 - 46 Rauðir 35 - 46 Grair 40 - 46 Kaki 35 — 46 (grænir) Sendum í postkröfu. 35 - 40 kr. 695.- 41 — 46 kr. 765.- AUSTURSTRÆTIÍO SÍMI 27211 Meira en venjuleg verslun!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.