Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1984, Síða 14
14
Spurningin
Hvernig líst þér á sumarið?
Björg Sigurðardóttlr, vinnur í þvotta-
húsi: Vei. Eg býst viðað það verði eins
og veðrið er í dag. Alveg dásamlegt.
Guðbrandur Erlingsson: Bara vel. Eg
fer eitthvað út úr bænum í sumarleyf-
inu með mömmu og pabba.
Ólafur Már Tryggvason: Ég held að
það verði gott. Eg er ekki alveg búinn
að ákveða hvert ég fer í sumarleyfinu
en fer sennilega í útilegu með mömmu
og pabba.
ÓIi Þorvaidsson blaðasali: Vel. Eg
held að það verði eins og núna, sól og
gola. Eg ætla til útlanda í sumarleyf-
inu en veit ekki hvert.
Guðrún Tómasdóttir: Það verður al-
veg stórkostlegt. Ég fer til Ameríku í
sumar aö heimsækja syni mína.
Jóhann Guðmundsson flugmaður: Mér
h'st vel á það. Ég verð hér innanlands í
leyfinu.
DV
. FÖSTODAGUR15. JUNÍ1984.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
ODYRTILITLU
KAFFISTOFUNNI
Regína skrifar:
Við hjónin komum í Litlu kaffistof-
una í Svínahrauni um daginn en þar
hefur alltaf verið ódýr og góö þjónusta
enda er það mikil heiðurskona sem
byggt hefur staðinn upp.
Við h jónin báöum um toppís og miðl-
ungsstóra kók og þetta kostaöi okkur
ekki nema 29 kr. sem okkur fannst
ódýrt.
Eg vil ráðleggja öllum þeim sem
standa í hótelrekstri, sérstaklega yfir
sumarmánuðina, og ætla sér að græöa
mikið, að selja nú ódýrt því þegar fólk
sér hótehn er bensíngjöfin stigin í botn
og f ólk forðast að koma nálægt þessum
stöðum vegna þess hve rándýr þjónust-
an er. Mættu þau heldur fara að ráöi
Kristbjargar Kristjánsdóttur í Litlu
kaffistofunni. Þá myndu gestir drekka
framsóknar- og sjálfstæðiskaffiö sitt
með ánægju.
SAMSKIPTIVIÐ VARNARLIÐIÐ:
SKAKKUR PÓLL TEKINN
Samherji skrifar:
Það er nú loks að renna upp fyrir
mönnum að Islendingar hafa alltaf
tekið skakkan pól í hæðina í sam-
skiptum viö vamarliðið eins og best
kemur fram í samningum varnar-
liösins við amerískt skipafélag um
flutninga fyrir það. Við verðum að
endurskoða afstöðu okkar til varnar-
liðsins á hverjum tima og þá í ljósi
þeirra staðreynda sem Uggja fyrir
og gæta þess í hvívetna að íslenskir
hagsmunir verði ekki fyrir borö
bornir í þessu sambandi. Þetta er að
sjáhsögðu verkefni fyrir ríkis-
stjómina og þá sérstaklega utan-
ríkisráðherra en okkar hlutverk,
almennings, er að halda þeim við
efnið með ábendingum og umræðum.
Það gerði Aron heitinn Guðbrands-
son í KauphölUnni á sínum tíma en
hann er nú falUnn frá, því miður, en
skrif hans vöktu alltaf athygli svo og
málflutningur aUur.
Þess vegna er ég þakklátur fyrir
þarfa kjallaragrein Ásgeirs
Hannesar Eiríkssonar í DV 5.júní og
vU biðja DV að koma á framfæri
þakklæti mínu við greinarhöfund og
skora jafnframt á hann aö láta ekki
deigan síga því meirihluti þjóðar-
innar er á sama máli þó að Alþingi
spegli ekki þjóðarvUjann, því miöur,
í þessu máli frekar en í svo mörgum
öðrum. Við megum ekki sýna undan-
látssemi í viðskiptum okkar við stór-
veldin hvorki í austri né vestri.
Endurskoða verður afstöðuna til
varnarliðsins öðru hvoru.
GLEYMiÐ EKKI
FORTÍD SAKHAROVS
Gunnar skrifar:
Ekki skU ég hvað menn eru að
æsa sig út af Sakharov og konu hans
þessa dagana. Það er litið á þennan
mann sem píslarvott hér vestan við
jámtjaldið.
Eru alUr búnir aö gleyma að þessi
maður er kallaöur „faöir vetnis-
Sovóski andófsmaðurinn Andrei
Sakharov.
sprengjunnar”. Og nú hefur hann
gert yfirbót og em honum fyrir-
gefnar syndimar.
Já, það er margt skrýtið í kýr-
hausnum. T.d. fann Alfred Nobel upp
sprengiefni en stofnaði síðan til
nóbelsverðlaunanna í friðarmálum.
Nú em aUir búnh- að gleyma því aö
hann fann upp efni til að eyða friði
en aUir muna verðlaun hans í þágu
friöar.
Engintækifæris-
FötíKefíavík
Kristín B. Ingimarsdóttir hringdi:
Eg er búsett í Keflavík og finnst það
alveg hneykslanlegt að konur skuli
ekki geta keypt á sig tækifærisföt á
staðnum. Hér eru hvorki meira né
minna en 8 verslanir sem selja föt en
óléttar konur verða að leita aUa leiö til
Reykjavíkur til að kaupa föt til að
ganga í. Þetta finnst mér lélegt í svona
stóru bæjarfélagi.
LÆKURINN VERÐI
OPINNÁ DAGINN
Lækur skrifar:
Lækurinn í fréttum. Þetta er árviss
viðburður og gott betur. AUtaf sýður
upp úr. Einhver siglir á holdi sínu út á
haf í einhverri vitleysunni. Fólk fækk-
ar fleiri fötum en oftast er gert á al-
mannafæri og aUt trylUst. Stóðlif segir
lögreglan og lækurinn er tæmdur sínu
tæra afgangsvatni. Síöasta vígi sól-
dýrkandans og það ein.a er fokið úí í
veðurog vind.
Leyfum fólki að vera á Evuklæðun-
um og Adams ef það bara vUl. Allt ger-
ist í fylUríi en á nætumar er engin sól.
A daginn kemur annað fólk í stað nátt-
hrafnanna sem flestir sitja af sér vit-
leysuna i Hverfissteini.
Sóldýrkendur eiga ekki að gjalda
fyrirgerðirþeirra.
Jóhannes NordaI ásamt Jónasi Haralz í veislunni góðu.
GJAFIRNAR DYRU:
JÓHANNESER
GÓDURDRENGUR
Austanmaöur skrifar:
Töluvert er búið að skrifa um af-
mæUsgjafimar alræmdu tU Jóhannes-
ar í Seðlabankanum. Fá mál af skyld-
um toga hafa vakið jafnmikla hneyksl-
un á því siðleysi sem virðist ríkja hjá
alltof mörgum valdamönnum í kerfinu
í umgengni við fjármuni almennings.
Kaldhæðnin í sambandi viö þetta síö-
asta hneyksU er auðvitað sú aö fjár-
málaeinvaldur landsins síðustu ára-
tugina skuU verða fyrir slUtri árás frá
samstarfsmönnum sínum og sú furðu-
lega brenglun að þeim skuli finnast að
þeir séu á einhvem hátt að heiðra
manninn með slíkum flottræfilshætti.
Auðvitað er ósæmilegt og algjör
óþarfi að vera á nokkum hátt að vega
aö persónu Jóhannesar eða gera hon-
um upp iUar hvatir. Við megum ekki
efast um að þar fari góður drengur
sem v;U vel þótt hann hafi máski ekki
varað sig á því aö jafnóskorað vald í
höfuðmálaflokkum, sem hann (og þá
aðrir) hefur taUð sig færan um axla,
getur reynst handhafa hættulegt og
vandmeðfarið.
Konur í Keflavík vorðe að leita tH
Reykjavíkur eftir kiæðnaði verði
þær ófrískar.