Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Qupperneq 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JOLl 1984.
3
Skattskráin í Reykjavík lögð f ram í dag:
Landsbankinn greiðir mest
Skattskráin í Reykjavík fyrir árið
1984 verður lögð fram i dag. Heildar-
álagning í borginni nemur rúmlega
4,2 milljöröum króna, þar af er tekju-
skattur um 1,7 milljarðar og útsvar
um 1,2 milljarðar.
Alagningin skiptist þannig að
einstaklingar greiða tæplega þrjá
milljarða, lögaðilar um 1,3 milljarða
og böm undir sextán ára aldri greiöa
um2,5milljónir.
Framteljendur eru alls 73.486,
þar af eru einstaklingar 66.310, lög-
aöilar 5.049 ogböm 2.127.
Birgir Einarsson lyfsali greiðir
hæstu skatta einstaklinga í Reykja-
vík aö þessu sinni, rúmlega þrjár
milljónir króna. Næstur á eftir hon-
um kemur Gunnar Snorrason kaup-
maður með 2,6 milljónir og þriðji er
Gunnar B. Jensson húsasmíðameist-
arimeð2,5milljónir.
Landsbanki Islands greiðir hæstu
heildargjöld lögaðila í ár, um 73,8
milljónir. Sambandið er í öðru sæti
með 48,6 milljónir og Reykjavíkur-
borg kemur þar á eftir með 30,5
milljónir
Á eftirfarandi töflum má sjá
hæstu heildargjöld einstaklinga og
fyrirtækja í Reykjavfk samkvæmt
skattskránnifyriráriðl984. -EA
Einstaklingar:
1. Birgir Einarsson, Melhaga 20
(Tsk. 2.159.403,-: Útsv. 570.580,-)
Kr. 3.287.834,-
2. Gunnar Snorrason, Lundahólum 5
(Tsk. 1.165.218,-: Útsv. 311.530,-)
Kr. 2.699.932,-
3. Gunnar B. Jensson, Suðurlbr.
Selásd. (Tsk. 1.633.402,-: Útsv.
422.310,-)
Kr. 2.582.388,-
4. Ragnar Traustason, Mýrarási 13
(Tsk. 1.757.640,-: Útsv. 460.800,-)
Kr. 2.398.668,-
5. Christian Zimsen, Kirkjuteigi 21
(Tsk. 1.503.820,-: Útsv. 424.020,-)
Kr. 2.381.469,-
6. Ingólfur Guðbrandss. Laugarásv.
21 (Tsk. 174.593,-: Útsv. 69.900,-)
Kr. 2.283.340,-
7. Kjartan Gunnarss., Smáragötu 9
(Tsk. 1.207.466,-: Útsv. 319.960,-)
Kr. 2.131.647,-
8. Ivar Daníelsson, Álftamýri 1 (Tsk.
1.256.915,-: Útsv. 335.050,-)
Kr. 2.070.846,-
9. Mogens A. Mogensen, Grenimel 32
(Tsk. 1.187.047,-: Útsv. 315.280,-)
Kr. 1.906.529,-
10. Karl Lúðvíksson, Háteigsvegi 10
(Tsk. 926.039,-: Útsv. 264.010,-)
Kr. 1.900.892,-
11. Skúli Þorvaldsson, Espigerði 12
(Tsk. 782.476,-: Útsv. 221.480,-)
Kr. 1.840.704,-
12. Kristlnn Sveinsson, Hólastekk 5
(Tsk. 741.588,- : Útsv. 208.930,-)
Kr. 1.785.449,-
13. Gunnar Guðjónsson, Langholts-
vegi 78 (Tsk. 534.102,-: Útsv. 155.850,-)
Kr. 1.748.752,-
Lögaðilar:
1. Landsbanki íslands
Kr. 73.889.451,-
2. Samband islenskra samvinnufél-
aga
Kr. 48.664.096,-
3. Reykjavikurborg
Kr. 30.513.616,-
4. Búnaðarbanki islands
Kr. 27.532.073,-
5. Flugleiðir hf.
Kr. 24.328.474,-
6. Eimskipafélag islands hf.
Kr. 23.935.064,-
7. IBM World Trade Corp.
Kr. 19.924.566,-
8. Útvegsbanki islands
Kr. 14.845.486,-
9. Oliufélagið hf.
Kr. 14.520.455,-
10. Samvinnutryggingar GT.
Kr. 13.756.088,-
11. Sláturfélag Suðurlands svf.
Kr. 12.717.162,-
12. Húsasmiðjan hf.
Kr. 12.544.175,-
13 Hagkaup hf.
Kr. 10.263.060,-
14. Skeljungur, oliufélag hf.
Kr. 9.828.232,-
15. Tryggingamiðstöðin hf.
Kr. 9.722.805,-
16. Oliuverslun islands hf.
Kr. 7.837.958,-
17. Sjóvátryggingafélag islands hf.
Kr. 7.063.547,-
Þetta veglega hús er i daglegu tali kallað „átta krakka húsið." Skýringin er
sú að þetta er skóli fyrir átta nemendur i grunnskólanámi að Núpi i Dýra-
firði. Þessum börnum er svo sem ekkert ofgott að læra igóðu húsi, en eitt-
hvað fannst heimamönnum nóg um tildrið við byggingu hússins. Veggur-
inn, sem skagar út úr húsinu vinstra megin á myndinni, var til dæmis upp-
spretta óþrjótandi niðurbrots og endurbyggingar. Þó erhann aðeins um 40
cm þykkur og til þess eins að hýsa rennihurð sem skipta átti skólastofum.
Á endanum fannst ekki nógu grannur múrari til þess að einangra þennan
netta vegg að innan svo að hann var bara fylltur upp og rennihurðin bifast
ekki. þjh (Mynd GVA)
r Leikskólinn íSkerjafirði færður:
„Alfarnir ættu að
vera ánægðir líka”
— segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„Þetta er nú ekki stórmál, og hefur
að mínu mati verið nokkuð misskilið,”
sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í
samtali við DV vegna deilna sem risið
hafa upp út af fyrirhugaðri byggingu
leikskóla i Skerjafirði norðan flugvall-
ar.
,,En það hefur verið ákveðið að færa
byggingarstaðinn aöeins til og breyta
bílastæðum þannig að hóllinn ætti ekki
að eyðileggjast. Það ættu því allir að
vera ánægðir, álfarnir líka,” sagði
Da víð ennfremur.
Ástæða deilnanna er sú að nágrann-
ar svokallaðra Skildinganeshóla
brugðust ókvæða við er átti að fara að
reisa leikskóla fyrir börnin á hól einum
þarna þar sem þeir segja álfa búa í.
Einhverjar merkilegar náttúruminj-
ar eru einnig sagðar verið þarna, en
hafa þó ekki þótt svo merkilegar að
þær hafi verið friðlýstar. En nú hefur
málið verið til lykta leitt og álfar hafa
sigraðmenn. sigA
ALVARLEG VELARBILUNISTAPAFELLI
T
Sambandsskipið Stapafell hefur nú
legið í Akureyrarhöfn á aðra viku eftir
að alvarleg vélarbilun varð um borð
rétt fyrir miðjan júlí.
Axel Gíslason, framkvæmdastjóri
skipadeildar Sambandsins, sagði í
samtali við DV í gær að ljóst væri að
viðgerð á skipinu yrði að fara fram er-
lendis, t.d. í Þýskalandi. Gert er ráð
fyrir að skip komi til Akureyrar í dag
til að draga Stapafellið. Bilunin varð í
aöalvél skipsins en eftir er að koma í
ljós hvort taka þarf upp sjálfan
sveifarásinn. Viðgerð á skipinu verður
dýr, að sögn Axels, og gæti tekið nokkr-
ar vikur. Bæði er dýrt að taka upp
sveifarásinn og að skipta um hann ef
þess gerist þörf. Axel sagöist ekki
treysta sér til að meta tjóniö en ljóst er
að þaö er mikið, fyrir utan tekjutap.
Stapafellið hefur hingað til siglt með
olíu innanlands.
-pá
BILAURVALIÐ
ER SÍBREYTILEGT
FRÁ DEGI TIL DAGS.
notoðir bílar í eigu umbodssins
EGILL
ÍWÍ r TT w T m MUIMIÐ EV-KJÖRIN
VILHJALMSSON HF ssss
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944—79775
AÐ ÓGLEYMDRI
SKIPTIVERSLUNINNI.