Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Side 14
14 DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JULÍ1984. BÍLL í SÉRFLOKKI Lausar stöður Tvær stöður löglærðra fulltrúa í fjármálaráðuneytinu eru lausar til umsóknar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf, sendist fjármálaráðumeytinu fyrir 20. ágúst 1984. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ 20. júlí1984. Tveir góðir SAAB 900 GLE ÁRG. 1981, sjálfskiptur með vökvastýri. Litur: brúnn /metalic, ekinn 39.000 km, Plussáklseði. Verð kr. 400.000. Skipti t.d. á Saab Combi coupé '77—'79. BUICK SKYLARK LIMITED ÁRG. 1981, 4 cyl., sjálfskiptur með vökvastýri, framhjóladrifinn, ekinn 43.000 km. Litur: dökkblár, plussáklæði. Verð kr. 440.00. Skipti á t.d. Saab Combi coupé árg. '77—'78 eða japönskum station. UPPLÝSINGAR Í SÍMA 12729 HEIMA OG 28693 Á VINNUTÍMA. Range Rover 79, ekinn 78.000 km. Litur beige. Upplýsingar í síma 40161 eftir kl. 17. Ath. skipti á ódýrari. Auglýsing ujn að álagningu opinberra gjalda á ár- * inu 1984 sé lokið. Samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75 14. september 1981 um tekjuskatt og eignarskatt er hér með auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 1984 sé lokið á þá menn sem skatt- skyldir eru hér á landi samkvæmt 1. gr. greindra laga, á böm sem skattlögð eru samkvæmt 6. gr. þeirra, svo og á lögaðila og aðra aöila sem skattskyldir eru skv. 2. og 3. gr. þeirra. Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber aö leggja á á árinu 1984 á þessa skattaðila hafa verið póstlagðar. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, að sóknargjöld- um undanskildum, sem þessum skattaðilum hefur veriö til- kynnt um meö álagningarseðli 1984, þurfa að hafa borist skatt- stjóra eða umboösmanni hans innan 30 daga frá og með dag- setningu þessarar auglýsingar. Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 98. gr. áður tilvitnaðra laga munu álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag Uggja frammi á skattstofu hvers umdæmis og til sýnis í viðkomandi sveitar- félagi hjá umboðsmanni skattstjóra dagana 25. júlí — 8. ágúst 1984, að báðum dögum meðtöldum. 25. júlí 1984. Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjóri Vesturlandsumdæmis, Jón Eiríksson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Hreinn Sveinsson. Skattstjórinn í Norðurlaudsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjöms- son. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Hallur Sigur- björasson. Skattstjórinn í Áusturlandsumdæmi, Bjarai G. Björgvinsson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hálfdán Guðmundsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björasson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sveinn Þórðarson. Zophonías við öllu búinn að styggja varginn. Ný vél til dúnverkunar: „Sparar mikinn tíma” - segir hönnudurinn, Zephonías Þorvaldsson æðarvarpsbóndi Hór er dúnninn þurrkaður Við höföum spurnir af því þegar við vorum á ferö um Dýrafjörðinn fyrir skömmu að á bænum Læk byggi æðar- varpsbóndi að nafni Zophonías Þor- valdsson og hefði honum tekist að hanna vélar til að verka dún. Okkur þótti þetta forvitnilegt og reyndum að hafa uppi á bónda. Ekki var hann heima við er okkur bar að garði en okkur bent á að hann væri að sinna varpinuniðriífjöru. Og þarna var hann. Sat inni í bíl ásamt tveimur strákum, sem eru hjá honum í sveit, vopnaður haglabyssu og tveimur rifflum og horfði út um bíl- gluggann með kíki. Hann var að sitja fyrir varginum. Hann sagði að það þyrfti að nota byssurnar á veiðibjöll- una til aö fæla hana frá varpinu en það dygði á hrafninn að strengja hrafns- hræ á stöng. Hann léti sér segjast við þaö. Við spurðum hann hvort það væri ekki rétt að hann heföi f undiö upp vélar til dúnverkunar. Jú, það mætti svo sem segja það, sagði hann. Ef við hefðum áhuga á gætum við litið á þær. Annars hefði hann verið að laga aðstööuna og væri ekki búinn aö setja vélamar upp. Það er að mörgu að hyggja í æöar- varpi. Veiðibjallan og hrafninn eru ekki einu vargamir í æðarvarpinu. Á leiðinni heim aö bænum sýndi Zophonías okkur bílhræ hjá girðingu nokkurri sem hann sagðist nota sem skýli til þess að sitja fyrir tófunni. Síðan athugaði hann tjöm sem hann hafði gert skammt frá bænum fyrir æðarfugl. Lómur synti á tjörninni og sagði Zophonías að lómurinn væri bölvaður hrekkjalómur í varpinu. Þetta væri heimaríkur fugl sem réðist á kolluna og styggði hana. „Það þarf að siða hann svolítið til. Maður sendir honum kúlu rétt fyrir framan hann og hann aktar þaö,” sagði Zophonías og var greinilega hlýtt til lómsins þrátt fyrirallt. 1 æðarvarpinu aö Læk em um 2000 hreiður og bjóst Zophonías við að fá um 40 kíló af dúni þetta árið. Hann verkar dúninn sjálfur í vélum sem hann hefur smíðað og hannað. — Munar það miklu í verði að þú verkar dúninn sjálfur? „Nei, það breytir ekki verðinu en aðalástæðan fyrir því að ég er að þessu er sú að það fæst betri nýting á dúnin- um. Ýkjulaust fæ ég líklega um 10% meiri dún með þessari verkun,” sagði Zophonías. Fyrstu þrep dúnverkunarinnar em í samræmi viö heföbundnar aðferðir. Dúnninn er þurrkaður á ofni og tekur þurrkunin um 3 sólarhringa. Síðan er dúnninn hreinsaður í vél eins og hefur verið notuð í áratugi við dúnhreinsun. Dúnninn er settur i vélina, honum snúið og rykið lamið úr. Að þessu loknu er dúnninn orðinn hreinn nema hvað hluti af fjöðrunum er eftir. „Utlendi markaöurinn vill ekki svoleiðis hluti með,” sagöi Zophonias, „því að fjaðrimar vilja leita út um allar smugur. Eg hugsaði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.