Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Page 16
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JULl 1984. 16. Spurningin (Spurt í Bolungarvik. Hvernig finnst þér Ós- hlíðin? 1 Kristján Guðmundsson ökukennari: Það er í lagi aö keyra hana, en það vantar meiri kraft í framkvæmdir, en ekki þetta dútl. Sölvi Sólbergsson tæknifræðingur: Hún hefur verið mjög góð þar til þeir fóru að sprengja. Þá varð hún svo brött og grýtt fyrir þunga fólksbíla. Steindór Karvelsson bifvélavirki: Alveg hörmung, en þó til bóta, en helst vildi ég jarðgöng. Erla Sigurgeirsdóttir klínikdama: Hún er erfið en ekki við öðru að búast á meöan framkvæmdir eru og vona að hún batni. Rúnar Jóhannsson bifvélavirki: Hún var slæm síðast þegar ég fór, í Hólunum, og vona að hún verði góð eft- ir framkvæmdir, helst vildi ég jarð- göng. Guðmundur H. Kristjánsson rútubil- stjóri: Hún hefur veriö erfið og það sem hefur verið gert verður vonandi til bóta því að það er fagurt að aka hliðina. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur „...fíestfr voru hingað komnir vegna þess að þeir höfðu hoggið mann og annan." Hinn dýrlegi norræni kynstofn — ogallirhinir Glúmurskrifar: Jæja, jæja. Þar kom að þvi að ein- hver fann hvöt hjá sér til aö stofna samtök til vemdar hinum norræna kynstofni. Einhver bóndadurgur af Vatnsnesi þykist nú tilheyra kyn- stofni sem hann telur merkilegri en aðra sem þessa jörð byggja. Já, já. Mikið var bréfið hans merkilegt, nú á að fara að vernda stofninn fallega sem ku vera í feikilegri hættu vegna blöndunar „vandræðamanna og iðju- leysingja” frá þriðja heiminum. En nú skal úr því bætt meö ein- hverjum samtökum. Eitthvaö kann- ast ég nú við þessa stefnumörkun. Gott ef hún var ekki i formi á þriðja og fjórða áratug þeirrar aldar sem við nú lifum á. Gott ef hún kallaðist ekki nasismi eða eitthvað þvi um líkt. Gott ef þaö endaöi ekki eitthvaö illa. Nei, bóndi sæll, við byggjum þessa jörð og veröum að gera það í sátt og samlyndi, annars mun illa fara. Haltu bara áfram að mjólka beljumar þínar, eöa hvað það er sem þú ert að rækta á jörð þinni (kannski norrænn kynstofn) og láttu þá í friði sem eiga þaö skilið og ekki hafa veriö eins heppnir að fá góða jörð að rækta. Við skulum vona að þú takir ekki upp háttu forfeðra þinna sem þú sfegir að með fádæma hugrekki hafi flutt búslóö sína yfir hafið á opnum bátum. Hætti þeirra segi ég því flestir voru hingaö komnir vegna þess að þeir höfðu hoggið mann og annan, voru þjófar og aumingjar sem í fádæma fífldirfsku og neyð þurftu að fiýja og eina leiðin var út á sjó. Flestir drápust þeir á leiðinni, en nokkrir komu hingað og héldu áfram að drepa. Sei, sei, ef við berum ekki bara höfuð og heröar yf ir alla þá sem á jörðinni búa. Atkvæði taiin iprestskosningum, en brófritari er óánægður með að ekki skuli vera um utankjörstaðaratkvæði að ræða i slíkum kosningum. Utankjörstaðaratkvæði í prestskosningum Kjósandi á Dalvík hringdl: Hér á Dalvík eru menn hálfillir yfir því aö ekki er hægt að kjósa utan kjör- staðar í prestskosningum. Þær eiga að fara fram 12. ágúst næstkomandi og eru tveir í kjöri. Þetta er aöalsumar- leyfistíminn, fólk er ekki heima og þaö er óréttlátt að t.d. sjómenn fá ekki að kjósa. Mér finnast þetta úreltar reglur og er mér nær að halda að þetta séu einu prestskosningamar sem ég hef heyrt um þar sem utankjörstaðarkosn- ing erekki leyfð. Mig langar því aö spyrja: Getur ráðherra breytt þessum reglum eða þarf prestastefna að f jalia um málið? Bréf frá þýskum stúlkum: Biðjumst af sökunar fyrir hönd landa okkar — sem stal fálkaeggjunum Christine og Susanne skrifa frá Þýska- landi: Við erum tvær þýskar stúlkur, 13 ára. Okkur brá mjög við að lesa í blaöi hér að þýskur þjófur hefði stoliö fálka- eggjum á Islandi. Fuglar eru í miklu uppáhaldi hjá okkur og við eyddum nokkrum vikum í fyrra með fööur Suz- anne í aðfylgjast með fálkum. Okkur þykir það mjög leitt að við skulum þurfa að fylgjast svona með fálkunum til að þjófar taki ekki eggin Hann er frekar hjálparlaus þessi þeirra. Við skömmumst okkar fyrir að fálkaungi. DV hefur borist bróf frá þýskur þjófur skuli hafa stolið eggjum tveimur 13 ára stúlkum í Þýskalandi íslensks fálka og við biöjumst þar sem þær lýsa skoðunum sinum afsökunar f yrir hönd landa okkar. á Baly-málinu. Ekki eru öllbörn svo heppin að eiga svona gott umhverfi til að þroskast i. Leiksvæði fyrir börnin á undanhaldi Vogabúi skrlfar: Borgarskipulag Reykjavíkur sendi nú í byrjun júlí bréf til nokkurra hús- eigenda í Vogahverfi, nánar til þeirra sem eiga lóöir að leiksvæði barna fyrir neöan Bæjarleiðir við Langholtsveg. Fram koma í bréfi þessu upplýsingar um að sótt hafi verið um afnot af þessu svæði fyrir einhvers konar gróðurhús. Það er eins og borgaryfirvöldin hafi ekki hugmynd um að þarna í hverfinu býr fleira fólk en bara rétt þeir húseig- endur sem bréfiö fengu. Hvað með litlu bömin sem eiga heima hinum megin við götumar og hafa átt skjól á þessu svæði fyrir boltana sína og áhugamál? Af hverju ekki að spyrja foreldra þeirra bama hvaö þeir hafa um málið að segja eöa verðandi foreldra í hverfinu? Sú var tíðin að móarnir fyrir neöan Njörva- sund, sem liggja að Elliðavogi, voru uppáhaldssvæði bama í nágrenninu. Þar voru lagðir vegir, geröar stíflur og byggðar brýr, en einn góðan veðurdag var þama komin stór jarð- ýta til að gera þetta svæði að grænni sléttu og ekkert gaman að leika sér þar lengur. Hvernig væri að nýta það svæði fyrir jarðarber? Nei, það þarf auövitað að taka svæðið sem börnin eiga ennþá fyrir sig. Væri nú ekki ráð fyrir yfirvöldin að eiga þetta leik- svæði við Bæjarleiðir til góða með upprennandi kynslóð í huga. Eftir því sem ég hef haft spumir af þá em þau leiktæki sem þar eru ekki einu sinni framlag borgarinnar til barn- anna heldur framlag einstaklings í hverfinu. Það leiðir líka hugann að því hversu lengi er hægt að líða aö lóðir i svo grónu hverfi séu ófrágengnar, samanber lóð við Fóstbræðrahúsiö og þar um kring og akstur leigubif- reiða sí og æ út i Drekavoginn á undanförnum ámm. Væri ekki tími til kominn fyrir borgaryfirvöldin, sem allt vilja fegra og laga, að athuga þaö mál nánar áður en farið er að koma á laggirnar einhverju nýju umhverfisvandamáli. Hvað með önnur leiksvæði í bæjar- landinu? Hvemig væri fyrir unga og hressa garðyrkjumenn aö reyna að athuga hvort ekki er einhvers staðar í borginni leiksvæði bama og hasla sér þarvöll? Gaman væri að heyra álit íbúanna í hverfinu á þessu máli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.