Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1984, Side 35
34 DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JULl 1984. Hann er ekki greiðfarinn vegurinn frá Þingeyri út í Lokinhamradal. Yk ju- laust má telja þetta einn af hrika- legustu vegum landsins. Veginum er tyllt í snarbrattar fjallshlíðarnar, hamrabjörgin slúta yfir og sjaldnast sést í vegarbrúnina þegar litið er út um bíirúðuna heldur blasir viö stórgrýtis- fjaran í töluverðri fallhæð. Hnökr- óttur er hann víöa og torsóttur en þó er hann hraðbraut miöaö viö ýtuveginn svokallaða sem liggur frá Lokin- hamradal yfir í Stapadal við Arnar- fjörðinn. Þar eru beygjur víða svo krappar og brattar aö „ýtumaðurinn svitnaði í lófana þegar hann var að ryðja hann, eins og Sigríður Ragnars- dóttir á Hrafnabjörgum komst að orði. Við Gunnar ljósmyndari vorum á leiðinni til Sigríðar. Hún er einbúi aö Hrafnabjörgum í þessum afskekkta dal á Vestfjörðum og hefur verið það síöastliðin tvö ár. Kona sem er einbúi, hugsaöi ég með mér í vanmáttugri til- raun til þess að bægja frá bíl- hræðslunni. Það gæti verið gott um- ræðuefni. Eftir aö ég haföi rabbað við Sigríði áttaði ég mig á því að ég hafði steingleymt að gera þessa sérstöðu Sigríðar að einhverju máli. Það er kannski engin furða því aö ekki vefst kjarkurinn og dugnaðurinn fyrir Sigríöi frekar en öðrum bændum sem búa afskekkt. Hún hefur sigrast á erfiðum samgöngum, rafmagnsleysi og harðindaveðrum líkt og aðrir og hvem- ig á maður þá aö muna eftir jafnfávís- legri spumingu og „Er ekki erfiðara að vera kona í einbýlinu?”? Svona spurning gæti jafnvel verið móðgandi. Sigríður var að ganga frá eftir hádegismatinn þegar okkur bar að garði. Hjá henni í eldhúsinu vom tvær stúlkur, þær Jóna og Kristín, en þær em auk þriggja stráka í kaupavinnu hjá Sigríði. Olíkt því sem gerist á vetrum þá er ekki fámenninu að heilsa að Hrafnabjörgum nú í sumar. „Bara fyrir mestu fyglinga" „Jæja svo ykkur fannst vegurinn glæfralegur,” sagði Sigríöur hlæjandi er hún tók á móti okkur. „ Já þetta er dálítið glæfralegt þegar maður lítur til baka. Það eru nú komin ellefu ár síðan þessi vegur kom í dalinn, hann á afmæli núna í ágúst.” Þetta er greinilega vel metinn vegur. Hvað ætli Miklubrautin sé gömul? Sigríður tók til handa okkur kaffi og með því og við settumst í stofu. Kaupakonurnar luku viö uppvaskið en hundamir Plató og Díla settust við fætur Sigríöar. — Þaö hlýtur að muna miklu fyrir þig að hafa þennan veg? það gerir þaö, þó hann lokist á vetrum. Svo er kominn annar vegur héðan og yfir í Stapadal. Það er vegur- inn sem hann Elli ýtumaður lagði núna í vor. Það var byrjað á honum 1962 og síðan er ekki hreyft við honum — vantaöi sprengiefni líklega. En hann Elli, töframaðurinn eins og hann Guð- mundur bróðir minn kallaði hann, byrjar bara á þessu í vor upp á sitt eindæmi og molar niður bergið með ýtunni. Þetta er alveg lygilegt helvíti. Það var ekki hægt að ganga þetta nema fyrir mestu fyglinga. Eg veit ekki af hverju hann var að þessu. Hvort þaö var af hreinni ævintýra- mennsku eða af góðsemi við mig. Jú þetta léttir töluvert á hjá mér. Það er svo miklu þægilegra að koma ,,Nú vantar mig bara myndaf Vigdísi." Sigríður Ragnarsdóttir á Hrafnabjörgum: „Maður hefur þá engan til að rífast við” fénu heim heldur en að reka það um fjöruna, t.d. á haustin eða á veturna er snjó leggur á. Eg reikna með að veg- kanturinn geti víöa staðið upp úr. Það er dálítið vont svæði þarna á hillu- hálsinum, þar sem myndast svellalög. Maður hafði stundum ekkert til að taka í þegar maöur kom innan að úr Stapa- dalnum svo það gat verið að maður kæmist bara ekkert. Þá var ekki um ■<------------------« Heigi, vinnumaður Sigriðar, mætti okkur er hann var á ieiðinni tii Þingeyrar með dráttarvólina. Við hefðum getað hist á heppilegri stað. Þeir eru ekki árenniiegir vegirnir sem iiggja að Lokinhamradai..... Texti: Þónmn J. Haf stein. Myndir: Gunnar V. Andrés- son. annað að ræða en að fara hærra hversu hart sem það var. 1 hittiðfýrra varð ég að vera með skóflu og á járnum. Eg vildi frekar vera með skóflu en broddstaf því aö þá gat ég höggið mér spor í haröan klakann. Það er svona klukkutíma gangur inn í Stapadal.” Maður hefur þá engan til að rífast við — Setur engan beyg aö þér að vera ein á vetuma? „Það er maður á næsta bæ, hann Sigurjón á Lokinhömrum. Það vill nú svo til, annars væri ekki verandi hérna. Það eina sem ég óttast héma era norðanveðrin. Það eru miklir sviptivindar í þeirri átt frá Skeggjanum, fjallinu héma fyrir ofan. Annars var það suðaustan stórviðri sem reif héma upp dyraskúrinn í febr- úar árið 1980. Það var óskaplegt veður, meðmestu veðrmn sem hafa komiö. Það var stúlka hérna hjá okkur þá og hún þorði ekki annaö en að standa fyrir læsingunni í fjóra tíma má ég segja. Og þó hann hopaði út á suð- vestrið þá slotaöi veðrinu ekkert. Það vora meiri djöfulsins lætin. Við þoröumekki útífjós. Annars er það að sumu leyti ágætt að vera ein. Maður hefur þá engan til þess að rífast við. Það er náttúrlega dálítið erfitt á veturna þegar maður kemst ekki neitt. Maður þarf að birgja sig upp af gaskútum og mat. Já, góða mín. Maöur er nú svo aftarlega á mer- inni aö maður hefur ekkert rafmagnið. Eg elda bara við gas. Hvemig ég geymi matinn? Ja, ef komiö er fram á vetur þá getur maður geymt fisk og annað í snjónum, annars verður maður að notast við saltmetið þó aö það drepi mann fyrir aldur fram. Þaö er sagt. Ef ferð fellur þá fær maður sér alltaf eitt- hvað, en það er helst til sjaldan.” — Þú getur ekkert hugsað þér að flytjast til Reykjavíkur? DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JULI1984. 35 Sigríður ásamt þeim kaupakonum Jónu og Kristínu i kartöflugarðinum. Utvarpið er ómissandiþegar arfinn er reyttur. Haldið tii kartöflugarðsins með „Svo ykkur fannstþetta glæfralegt. arfasköfuna. Jóna, sem er íslandsmeistari í biiijard, Kristín og Sigríður ásamt heimspekingnum honum Plató fyrir framan bæinn. „Eg skal ekkert um það segja þegar ég er orðin gömul og hætt að geta unnið. Ég vildi miklu frekar flytjast til Reykjavíkur en til Þingeyrar. En hér hef ég verið alla mína tíð og vil hvergi annars staðar vera.” Get ekki hugsað mér að liggja í sandi — Þig langar þá ekkert til að fara til sólarlanda til aö hvíla þig á veðrinu hérna heima? „Nei, það er sko hlutur sem ég get ekki hugsaö mér, að liggja í sólbaði og það úti á sandi eins og ég hugsa mér þetta fólk. Fara suður og liggja í sandi! Þetta fólk ætti frekar að fara hér um landið og skoða það.” — Býstu þá viö að veðrið verði gott hér í sumar? „Já ég býst bara við því. Vorið núna gleymist að visu eins og sumariö í fyrra. Það var hálfleiöinlegt vorið héma, en um 25. maí þá snöggskipti um veðráttu og allt í einu er komið hásumar. Það greri svo fljótt héma úti að ég hef bara ekki séð annaö eins. Það var komið svoleiðis gras út um allt á svipstundu að mér fannst að nú hlyti hálfs annars árs ótíö að vera lokið. — Sjösofandi lofaði góðu. Það er gamalt mál að veðrið þann 27. júní ráði því hvemig það verður næstu sjö vikurnar. Eg var fyrir sunnan þann 27. júní í ár og ég tók sérstaklega eftir því að það var gott veður, sól og hiti en það skýjaði dálítið seinni part dagsins. Já ég hugsa aö það verði gott hérna fyrir vestan líka,” segir Sigríöur um leiö og hún lítur út um gluggann. Þaö var farið að draga fyrir sólina, enda fariö að líða á daginn. Kannski þetta gamla mál um sjösofanda sé ekkert bull. Þarf að fá mynd af Vigdísi Við Gunnar ljósmyndari fórum að tygja okkur af stað og svona á leiöinni út spyrjum viö Sigríði af hverju hún hafi mynd af Ásgeiri Ásgeirssyni uppi á vegg hjá sér. „Þetta er gömul mynd sem ég held að faðir minn hafi keypt og hann setti hana upp. Eg verð að fá mér mynd af henni Vigdísi. Eg steingleymdi því meðan ég var fyrir sunnan. Ég er ákafur stuðningsmaður hennar. Eg var strax ákveðin í því aö kjósa hana. Og þó að ég væri veik á kosningadag- inn þá dreif ég mig samt til aö kjósa hana. Já ég verð aö fá mér mynd af henni.” Áður en við kveðjum Sigríði göngum við meö henni og kaupakonunum að kartöflugarðinum skammt frá bænum. Sigríöur fer allt gangandi og mér dettur í hug hvort hún fari ekki með stöku eða kvæði á löngum göngu- ferðum. Hún segist stundum gera það og getur ekki neitað því að það komi fyrir að hún setji saman stökur. Hún leyfði okkur að heyra eina: Nú er gróðrarskúrin gæfuríka gengur y fir landið kalda lífi öllu loks er borgiö ljúft skal guði þakkir gjalda. ÞJH Fáðu mér bakkann, Plútó, og hundurinn hlýðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.