Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 3
DV. FÖSTUDAGUR 3. ÁGUST1984. 3 Ragnar Önundarson, bankastjóri Iðnaðarbankans: „EKKERT VERÐSTRÍÐ MILU BANKA í UPPSIGUNGU” — f k jölf ar vaxtaf relsis „Eg tel aö með 2% hækkun vaxta af almennum sparisjóðsbókum hafi Seðlabankinn gefið tóninn og reikna með svipaöri hækkun vaxta að öðru leyti í kjölfarið,” sagði Ragnar önundarson, bankastjóri Iðnaðar- bankans, í samtali við DV. „Einhver frávik geta þó orðið á þessu og þá helst til jöfnunar á ávöxtun útlána. Ég Hvaða áhrif hefur það? „Eg geri ekki ráð fyrir að bankarnir hætti að veita afurðalán en þessi breyting felur þaö í sér að vextir af afurðalánum verða samræmdir öðrum vöxtum á lánamarkaðnum. Afurða- lánin hafa verið á lægri vöxtum, sem stundum hafa jafnvel verið lægri en sparisjóðsvextir, til þess að ívilna hinum svokölluðu undirstöðuatvinnu- vegum, sjávarútvegi og landbúnaöi umfram aðrar atvinnugreinar. Við skilyrði vaxtafrelsis þá fá þessar ívilnanir ekki staðist lengur og allir lántakendur munu þurfa að greiða sömuvexti. Þessi breyting markar tímamót að því leyti að síðasta vígi verðbólgu- gróðans er fallið og það hlýtur að vera mikið fagnaðarefni fyrir aðra lán- takendur að þetta skuli gerast,” sagði Ragnar. „Það verður að leysa vanda sjávarútvegsins og landbúnaðarins með öörum hætti en að leggja hann á herðar sparifjáreigenda eða annarra aðila á lánamarkaðnum.” -þjh. reikna ekki með að vextir geti orðið mismunandi milli banka til neinnar frambúðar þó aö á slíku geti borið fyrst i stað. Lögmál markaðarins hljóta að knýja fram sama verð fyrir sömu þjónustu mjög fljótlega. Það er sem sagt ekkert meiri háttar verðstríð í uppsiglingu.” — Hvaða þýðingu hafa hertari reglur um viðskipti bankanna við Seðlabankann sem eiga að miða að auknu aöhaldi í útlánum? „Eg tel að vaxtafrelsi sé rétta leiðin og muni bæta stöðu bankanna við Seölabankann. Við höfum ekki áhyggjur af hertum reglum ef raunverulegt vaxtaverð er komið á því þetta tvennt vinnur saman.” — Nú mun Seðlabankinn hætta endurkaupum á afurðalánum og afurðalánin flytjast til banka og spari- sjóða. Stöðvast rækjuveiðar lO.ágúst? Á fundi forráðamanna rækju- vinnslustöðva fyrir nokkru var þeim tilmælum beint til félagsmanna að hætta öllum rækjuveiðum frá og með 10. ágúst næstkomandi vegna erfiðleika og stórlækkaös útflutnings- verðsá rækju. Theodór Norökvist, framkvæmda- stjóri Rækjuverksmiðju 0. Olsen á Isa- firði, sagði í samtali við DV að sérhver rækjuvinnslustöð yröi að meta fyrir sig hvort hún gæti stöðvað sína vinnslu, en hann kvaðst vita um nokkrar stöðvar, svo sem á Bíldudal og í Keflavík, sem myndu stoppa. Theodór sagöist ekki eiga von á stöðvun yfir h'nuna því aðstæður væru mjög mismunandi. Ástandið væri þannig að jafnerfitt væri aö stöðva og halda áfram. „Mér skilst að nú verði lánað 6% af veltu ársins 84, mínus hráefni, og þaö gæti þýtt 2—3 milljónir fyrir okkur hér. Hvað okkur snertir er ekki svo einfalt að hætta því hérerumargirívinnu.” . Aö sögn Theodórs stafa erfiðleikar rækjuvinnslustöðvanna af stórlækkuðu útflutningsverði og ískyggilegri birgðasöfnun í kjölfar 10—12% hækkunar á hráefnisveröi í byrjun júní. „Þetta er dekksta útlit sem ég man eftir og það er hálfskrítið að vera að stofna nýjar rækjuvinnslustöðvar á sama tíma og Norðmenn eru að stöðva sínar veiðar til að draga úr offramboði og halda í við það hrun sem hefur orðið á markaðnum,” sagði Theodór Norð- kvist. -pá. Mótettukór Hallgrímskirkju: Þrjár opnar æfingar Mótettukór Hallgrímskirkju heldur til Þýskalands síðari hluta ágúst- mánaðar. I tilefni af þessu verður kór- inn meö opnar æfingar mánudaginn 6. ágúst og þriðjudaginn 7. ágúst kl. 22 og miðvikudaginn 8. ágúst kl. 21.30 í Hall- grímskirkju. HJÁ OKKUR ER: FJÖLBREYTNIN MEST 0G KJÖRIN BEST. • MEÐ ÖFLUGRI 6 STROKKA DÍSILVÉL. • MEÐ AFLSTÝRI, LÉTTU OG ÖRUGGU. • 5GÍRA. • MEÐ 24RA VOLTA RAFKERFI í STARTI. • 7MANNA. TÖKUM FLESTA GAMLA BÍLA UPP í IMÝJA. í ALVÖRUFERÐALÖG 1HINGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.