Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Blaðsíða 17
DV. FÖSTUDAGUR 3. AGUST1984. 17 trúarfyllri en aðrar og hér á eftir munum við fjalla um hjátrú íþróttafólks og ann- arra afreksmanna. 1 bók Þorsteins Jósefssonar, 1 djörfum leik, segir meðal annars frá ýmiss konar hjátrú. Þar segir til dæmis frá þýskum flugmanni, Helmuth Hirth, sem varð fyrir því að flugvél hans hrapaði til jarðar úr mikilli hæð. Flug- vélin molaðist mélinu smærra en flug- manninn sakaði ekki þótt ótrúlegt megi virðast. Eftir þetta trúði Hirth á mátt skyrtunnar sem hann var í er slysiö varö og klæddist henni í hvert sinn sem hann þurfti að leysa vanda- samar flugþrautir af hendi, eða fór í langar og erfiðar flugferðir. Og hann trúði því ennfremur að ef skyrtan yrði þvegin glataði hún töframætti sínum. Hún var því ekki þvegin. Kettir til heiiia og óheilla Þorsteinn minnist í bók sinni á kett- ina bæði sem heilla- og óheilladýr. Það er sagt aö hið versta sem fyrir mann getur komið sé að mæta svörtum ketti ef viðkomandi maður er á leið til keppni eöa að leggja upp í ferðalag. Og ekki dugir þaö á kettina sem dugir á mörg önnur óheilladýr, að ganga kringum skepnuna, því óheillamáttur katta minnkar ekkert við það. Það eina sem dugir er að bana kettinum en fæstir munu hafa geð í sér að elta uppi hvem þann kött er gengur í veg fyrir þá og stúta honum. Síöan nefnir Þorsteinn nokkur dæmi þess að það sé til heilla að bana ketti. Arið 1905 ók Heunery yfir kött og skömmu síðar vann hann Vanderbilt- kappaksturinn. Wagner vann ári síðar þessa sömu keppni og var þá sömuleiö- is nýbúinn að aka yfir kött. Robertson ók yfir kött 1908 og sigraði í kapp- akstri. Loks ók Nazzaro yf ir ketti, bæði þegar hann vann Coppa Floriokeppn- in'a og Grand Prix árið 1907. En kettir geta lika verið til heilla og segir Þorsteinn meðal annars frá því að flugmenn og heimskautafarar hafi mikla trú á köttum sem slíkum. Vil- hjálmur Stefánsson heimskauta- könnuður á til dæmis að hafa haldið þvi fram að köttur hafi bjargað lífi hans í einni af ferðum hans um norðurhöf. Ameríkumaður, sem árið 1910 gerði tilraun til að fljúga í loftfari yfir Atlantshafið, hafði méð sér kött i feröina. Loftfarið þurfti að náuðlenda en áhöfninni var bjargað um borð í nærstatt skip. Mannbjörgin var talin standa í sambandi við köttinn og þegar til New York kom var honum stillt út til sýningar í glugga þekktrar versl- unar og kom múgur og margmenni til aðsjákisa. Einnig segir Þorsteinn frá því að Lindbergh hafi haft með sér kött i Atlantishafsflug sitt árið 1927 og Byrd hafi haft með sér tvo ketti í suðurheim- skautsleiöangur sinn 1928. Zeppeiín og 24. júli Eitt af því sem tengist hjátrú svo mjög eru dagar og tölur. 1 bók Þor- steins segir meöal annars frá þvi að Zeppelín greifi og loftskipahönnuður hafi átt sér heilladag. Dagur þessi var 24. júlí og kom hann margsinnis við sögu á ævi Zeppelíns. Þann dag árið 1863 slapp Zeppelín á næsta dularfullan hátt við dauða eða limlestmgu í Bandaríkjunum. Sama dag, þremur árum síðar, lenti Zeppelín í orrustu gegn ofurefli prússneskra hermanna. Aliir félagar Zeppelins voru brytjaðir niður en hann einn komst undan fyrir einstaka tilviljun. 24. júlí 1870 flýði hann úr fangabúðum ásamt nokkrum föngum. Þeir voru allir skotnir á flóttanum nema Zeppelín ernn. Óheillatalan 13 Ein er sú tala sem oftast hefur verið tengd hjátrú en það er talan 13. Afar mörgum ér meinilla við þessa tölu og þá ekki síst íþróttafólki. Þorstemn nefnir í bók sinni að bifreiðastjórar hafi sérstakan ímugust á þessari tölu og segir nokkrar sögur er tengjast henni. Bifreiðastjóri nokkur, sigursæll kappaksúirsmaður, keppti í sínum 13. kappakstri 13. febrúar. Og nóttina fyrir keppnina svaf hann í hótelherbergi númer 13. Framan af keppnmni gekk allt vel hjá kappanum en þegar hann var búinn að aka nákvæmlega 613 kíló- metra af keppninni bilaði vélin í bíl hans. Skömmu síðar tók hann þátt í kappakstri sem fór fram 13. maí og lenti þá í slysi. Eftir það hafði hann hina mestu ótrú á tölunni 13. Heillatalan 13 Italski kappakstursmaðurinn di Bernardi haföi hins vegar allt aðra sögu að segja af tölunni 13. Þegar hann vann Sneider-bikarinn í Ameriku 1926 kom taian 13 heldur betur við sögu. Hann lagði af stað til keppninnar frá Napólí þann 13. október við 13. mann. Kappakstursbifreið di Bernardis bar einkennistölu sem endaöi á 13 og bif- reiðin sem sótti hann niður að höfninni þegar hann kom til Ameríku var númer 13. Hann fékk herbergi númer 13 á hótelinu sem hann gisti á og keppnin hófst 13. nóvember. Allt þetta gerðist árið ’26 — tvöföld talan 13 — og þetta var jafnframt 26. kappaksturinn sem di Bemardi tók þátt í. Örlögum storkað Ekki eru allir menn jafntrúaðir á öll þau fyrirbæri og hindurvitni sem tengjast hjátrú og í bók Þorsteins segir frá einum slíkum. Það var flugmaður- inn Luis Barr sem hugðist sýna fram á að þetta væru allt saman bábiljur; einar. Hinn 13. mars 1936 lagði hann upp í sitt 13. fallhlífarstökk. Og í þetta sinn ætlaði hann að varpa sér út úr vél- inni í 1300 metra hæð. Áður en hann lagði upp í ferðina gerði hann alla þá ó- svinnu, sem hægt er að gera sér til bölvunar og margir mundu telja sama og að undirrita eigin dauðadóm. Fyrst braut hann spegil mélinu smærra, stráði síðan niður salti, gekk undir stiga, hljóp fyrir svartan kött og skrif- aði meira að segja eigin dánartilkynn- mgu. En þetta var ekki nóg, hann lét taka af sér mynd rétt fyrir flugið, sem var talið riidilameiki, og að því loknu sté hann öfugu megin inn í vélina. Nákvæmlega klukkan 13.13 steig hann með röngum — það er vmstra — fæti öfugu megin út á flugvélarvænginn og henti sér fram af. Mörg þúsund áhorfendur fylgdust spenntir með og í fýrstu virtist sem Barr yrði fífldirfsku sinni að bráö en á síðustu stundu opnaðist fallhlíf hans og hann lenti mjúklega heilu og höldnu. Innlend hjátrú Islenskir íþróttamenn hafa ekki farið varhluta af hjátrú eða duttlung- um eins og einn þeirra vill kalla þessa hluti. I grein sem Ellert B. Schram skrifaði í KR-blaðið fyrir 17 árum nefnir hann etamitt hjátrúna öriaga- vald íþróttamanna. Hann segir þar frá atviki sem átti sér stað í ferð KR-liðs- tas til Akureyrar. Þannig var að með liðtau fór fararstjóri sem talið var að þau álög fylgdu að í hvert stan sem hann væri fararstjóri liðstas tapaöist leikurtan. Voru Ellert og félagar hans óhressir með þetta og er Ellert að ræða þetta við Svein Jónsson í flugvélinni á leið- inni norður. Og í framhaldi af því nefn- ir Ellert það við Sveta að það sé óbrigð- ult happamerki að ftana pentag rétt fyrir leik. Og því styttra fyrir leikinn því betra. Svo er lent á Akureyri bg KR-tagar fara að hita upp fyrir leikinn. Skyndi- lega kallar Sveinn til Ellerts og sýnir honum krónupentag, sem hann haföi fundið á velltaum. Lyftist nú heldur betur brúnta á þeim félögum og voru ( álög fararstjórans nú gleymd. Og það þarf ekki að orðlengja það, KR-liðið sýndi stórleik og sigraöi með fimm mörkum gegn engu og gerði Sveinn f jögur markanna. Þegar fararstjórtan hafði það á orði viðþá félagaeftirleikinnaðálögunum Svartir kettir eru óheillamerki, hvort sem er fyrir íþróttamenn eða aðra en sem betur fer virðist þessi markmaður ekki taka eftir ketttaum að baki sér, annars er hætt við að allt hefði farið í hund og kött í leiknum. Örlagavaldur islenskra íþróttamanna númer eitt: Snaginn. DV-mynd Eff. Hermann Gunnarsson sést hér á fullri ferð með knöttinn en Hermann segist hafa verið haldinn allri þeirri hjátrú sem einn íþróttamaður getur verið haldtan. Meðal annars trúði hann á skotskó sem hann hætti ekki að nota fyrr en þeir voru reimalausar blöðrur. Og ekki ber á öðru en að hægri skór Hermanns á þessari mynd sé farinn að láta á sjá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.