Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Page 30
46
DV. FÖSTUDAGUR 3. AGUST1984.
Gluggað í gærdaginn:
— neðstir um páska, nr. 14 í lokin
Árið 1928 var upphaf ið á mikilli
velgengni Sheffield Wednesday
— en það hefði getað farið á hinn veginn
London þar sem Tottenham Hotspur
hefur aösetur sitt. Liö, sem um pásk-
ana haföi verið í 10.sæti,var nú komiö í
21. sæti. Liðið hafði lokiö öllum sínum
leikjum fyrir síðasta dag keppnistíma-
bilsins og höfðu leikmenn þess haldið í
frí til Hollands, fullvissir þess að þau
38 stig sem þeir höfðu unnið sér inn
væru nóg til að halda þeim í deildinni.
Maðurinn á bak við þennan mikla
fallflótta Sheffield Wednesday var
fyrirliðinn, Jimmy Seed. Á því lék eng-
inn vafi, hann hafði stjórnað spili liðs-
ins á glæsilegan hátt. Það er því kald-
hæðnislegt að hann var fyrrum leik-
maöur Tottenham. Hann hafði misst
stööu sína hjá liðinu og komið til
Wednesday áriö áður.
Það var mönnum raunar undrunar-
efni aö liöið skyldi standa í þessari
miklu fallbaráttu, það léku úr-
valsmenn með liöinu á þessum tíma.
Fyrsta ber að telja Jimmy Seed og svo
einnig Ellis Rimmer sem lék á vinstri
kantinum.
Meö þeim í sókninni voru Mark
Hooper, Jimmy Trotter og Jack Allen,
allt nöfn sem segja okkur lítið í dag, en
voru svo stór á þessum tíma. Mark-
vörðurinn, Jack Brown, var enskur
landsliðsmaður og allir varnarleik-
mennimir spiluöu einhvern tímann
fyrir enska landsliðið aö einum undan-
skildum og var hann talinn síst lakari
en hinir.
Velgengnin hefst
Þessi ævintýralegi flótti reyndist
vendipunktur gæfu og gengis Sheffield
liðsins. Liðið, sem næstum var fallið í
aðra deild áriö 1928,vann meistaratitil-
inn á næsta keppnistímabili. Leikmenn
sem ekki höfðu fundið sitt rétta form
nokkrum mánuðum fyrr léku nú eins
og af himnum ofan væru sendir.
Og velgengnin hélt áfram, 1929-30 unnu
þeir deildina aftur og nú mun glæsileg-
ar. Skoruðu 105 mörk og voru 10 stigum
ofar en Derby sem lenti í öðru sæti. Og
í fjórum af fimm næstu leiktímabilum
endaði liðið í þriðja sæti. Það er
skammt milli hláturs og gráturs í
knattspyrnunni.
..—— yi
Síðastí leikur Sheff. Wed. á keppnistímabilinu. Mótherjarnir eru Aston Villa en örin bendir á Jimmy Seed.
STUÐNINGSMENN KIOSA
LEIKMENN VETRARINS
Það er ekkert eins neyðarlegt né
dapurlegt fyrir knattspyrnufélag eins
og að falla. Fall þýðir færri áhorfend-
ur, og þar af leiðir minni tekjur, sem
getur valdið því að félagið verði að
selja bestu leikmenn sína tii að geta
starfað.
Árið 1928 virtist það nokkuð öruggt
að Sheffield Wednesday þyrfti að sætta
sig við að yfirgefa fyrstu deildina. Lið-
ið hafði farið hræðilega af stað og um
miðjan október 1927 sat liðið eitt og
yfirgefið á botni fyrstu deildar. í
nóvember birti að vísu aðeins til en um
áramótin 1927-28 var aftur búið að
troða þetta fornfræga lið niður í svaðið
á botni deildarinnar.
Bilið eykst
Næstu vikur jókst bilið á milli
Wednesday liðsins og hinna liðanna
mikið og um miöjan mars var liðið sjö
stigum á eftir næsta liði.
Dæmin sanna að það er um páskana
sem úrslitin ráöast, ef eitthvert lið er
iila statt þá, þá mun það ilia statt verða
er yfir líkur. Því grunaði engan hvers-
lags tímar væru að ganga í garð í stál-
iðnaðarborginni Sheffield. Bæði liðin
(Wednesday og United) voru í mikilli
fallhættu, það fyrmefnda þó hálfu
verra statt.
Það var á föstudaginn langa sem
dæmið snerist við. Leikmenn Miðviku-
dagsiiðsins sóttu Tottenham heim, en
það var í 10. sæti með 35 stig, Wednes-
day var enn á botninummeö 25 stig, nú
I lok hvers keppnistímabils kjósa að-
dáendur félaganna í Englandi leikmann
liösins eftir síðasta keppnistímabil.
Við skulum líta á leikmenn liðanna í
fýrstu deild.
Hjá Arsenal var Tony Woodcock
kjörinn leikmaður keppnistímabilsins
af aðdáendum félagsins. Woodcock,
sem kom frá FC Köln í V-Þýskalandi
árið 1982, lék 37 af 42 leikjum félagsins
og skoraði 21 mark í þeim. Hann
skyggði því veruiega á undrastrákinn
Charlie Nicholas sem keyptur var
fyrir ári frá Celtic á 750.000 pund,
250.000 pundum dýrari en Woodcock.
Alls hefur hinn síðamefndi leikið 71
leik fyrir félagið og skorað 35 mörk.
Mortimer átti
að fara
Dennis Mortimer, fyrmm fyrirliði
Aston Viila, hlaut flest atkvæði í kosn-
ingunni um besta leikmann liðsins
1983—’84. En það er eiginlega helber
„heppni” að Mortimer er ennþá hjá
Aston Villa. Hin alvarlegu meiðsl sem
„aðeins” fjórum stigum á eftir næsta
liði sem var Manchester Utd. Leik-
mennimir frá Sheffield komu feikilega
á óvart og sigruðu 3—1, enginn haföi
búist viö þessu en samt sem áður virt-
ist liöið dæmt til að falla. Daginn eftir
var leikið gegn Derby County og jafn-
tefli varð, 2—2. Þriðjudaginn eftir
páska komu svo Tottenhamamir í
heimsókn til Illsborough og fóru þaðan
með 4—2 tap á bakinu.
Fleiri sigrar
Upp frá þessu gat ekkert stöðvaö
liöið. Þeir sigruðu Portsmouth og tókst
að merja jafntefli á útivelli gegn
Arsenal þar sem fyririiöi liðsins,
Jimmy Seed, skoraði á síöustu mínútu.
Þegar fréttin um jafnteflið spurðist
út greip um sig mikill uggur hjá að-
standendum sex félaga sem fram að
þessu höfðu álitið sig úr allri hættu.
Með jafnteflinu hafði Wednesday færst
upp að hlið Middlesbro, Sunderland og
Manchester Utd. og nú var aðeins einn
leikur eftir.
Wednesday fékk Aston Vilia í heim-
sókn og sigraöi 2-0. Með þessum sigri
björguðu þeir sér ekki einungis frá falli
heldur höluðu sig upp í 14. sæti og fólk-
ið í Sheffield fagnaði. Og það gat fagn-
að tvöfalt því að nágrannarnir, United,
björguðu einnig eigin skinni, enduðu
númer 13.
Tottenham niður
Sama gleðin ríkti ekki í Norður-
Gordon Cowans varð fyrir í fyrrasum-
ar urðu til þess að Tony Barton, fram-
kvæmdastjóri Villa (búið að reka
hann), hætti við að selja Mortimer frá
liöinu, en hann hafði þá þegar svipt
hann fyrirliðanafnbótinni. Dennis
Mortimer lék 37 leiki í vetur og gerði í
þeim 5 mörk. Ails eru leikir hans fyrir
Aston Villa orðnir 311 og mörkin fylla
þrjáoghálfantug.
Þegar Howard Kendall, fram-
kvæmdastjóri Everton, gaf Billy
Wright fyrirliða liðsins „free transfer”
í fyrra sagði hann að Billy væri of
feitur til að komast í liðið. Sá feiti f ór til
Birmingham en þar virðist sem aðdá-
endur liðsins hafi bara kunnað vel við
spikiö því að þeir kusu Wright leik-
mann vetrarins um leið og þeir grétu
fall liðsins í aðra deild. Wright hljóp af
sér spikið í 50 leikjum í vetur og gerði 5
mörk, flestúrvíti.
Einn af þeim nýju
Einn af hinum fjölmörgu leikmönn-
um Coventry hlaut titilinn leikmaður
ársins hjá fylgjendum liðsins. Það er
Nicky Platnauer, sem kom frá Black-
pool, sem hnossið hreppti þrátt fyrir að
hann léki aðeins 29 leiki. Hann skoraði
sex mörkíþeim.
Það ætti enginn að verða mjög hissa
á því að Necille Southall hafi verið út-
nefndur af aðdáendum Everton. Þessi
velski landsliösmarkvörður varði
næstum allt sem kom að Everton
markinu í þeim 35 leikjum sem hann
lék, en hann þurfti að byrja keppnis-
tímabilið á bekknum. Það var Jim
Amold sem var fyrst í markinu, en
þeir hafa lengi glímt um peysu nr. eitt.
Neville er nú óskoraður sigurvegari
þessarar baráttu en hann hefur leikið
79 leiki fyrir Everton.
Einn hinna ungu
og efnilegu
Liðsmenn yfirgáfu Ipswich eins og
sökkvandi skip á síðasta keppnistíma-
bili. Stjömur liðsins, Alan Brazil, Paul
Mariner og John Wark, fóm einn af
öðrum á meðan liðið hentist niður töfl-
una og allt stefndi í fall. En liðið náði
að bjarga sér, ekki síst fyrir tilstuðlan
hinna ungu og óreyndu leikmanna
félagsins. Trevor Putney er einn
þeirra og hann reyndist bestur aö
mati stuðningsmanna liðsins. Putney
lék 32 leiki, gerði tvö mörk og hækkaði
markatöluna þar með upp í fimm.
Leikirnir fyrir Ipswich eru orðnir 49.
Eftir feykilega daufa byrjun tókst
Leicesterliðinu að taka sig saman í
andlitinu og seinni helming keppnis-
tímabilsins tapaði liðið varla leik. Einn
af máttarstólpum liðsins hlaut ,,að-
dáendaverðlaunin” í ár. Þetta erSteve
Lynex en hann spiiaði 40 leiki og gerði
12 mörk. Heildarmarkaf jöldinn er orð-
inn 36 og leikirnir fyrir Leicester 123.
Wilkins kvaddur
Bakvörðurinn Kirk Stephens fékk
flest atkvæði hjá stuðningsmönnum
sóknarliðsins Luton. Hann er nú farinn
frá liðinu en lék þó 40 leiki á síðasta
keppnistímabili. Hann skoraði ekki
mark, en hafur náð að pota boltanum
inn tveim sinnum á ferli sínum sem
spannar2261eiki.
Ray Wilkins kvaddi Manchester
United með tilþrifum. Eftir að menn
voru almennt farnir að efast um ágæti
hans sem knattspymumanns sýndi
hann hversu snjall leikmaður hann er
með hverjum stórleiknum á fætur öðr-
um í fyrra og aðdáendur United viður-
kenndu mistök sín með því aö kjósa
Wilkins leikmann ársins. Hann lék alla
leikina 42 í vetur og gerði þrjú mörk.
Þar meö jók hann markafjölda sinn
fyrirUnited um helming, en það hefur
verið hans helsta vandamál hjá United
að skora mörk. Aðeins sex í 158 leikj-
um.
Margt er það sem bendir til þess að
Chris Woods verði næsti markvörður
enska landsliösins. Stuðningsmenn
Norwich sýndu skoðun sína meö því að
kjósa hann leikmann vetrarins. Woods
lék alia leikina í vetur, en alls eru þeir
orðnir 107 fyrir Norwich.
Meira næst.
SigA
Dennis Mortimer.