Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1984, Síða 48
FRETTASKOTIÐ 6878* 8 SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur pg 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið í hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984. Kjamfóður- skattinum aflétt næsta vor? , Jíjarnfóðurskattinum verður ekki aflétt að sinni, en það er stefnt að því að hann verði tekinn af næsta vor,” sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við DV í tilefni frétta um að hann hygðist leggja fram frumvarp þess efnis að kjam- fóðurskatturinn yrði lagöur niður. Þorsteinn sagöi að sú ákvörðun hefði verið tekin að hluti af kjarnfóöur- skattinum yröi nýttur til þess að niður- greiða áburð og um leið að stefnt yrði að því aö afnema kjarnfóðurskattinn í apríl. „Við teljum að það sé óheppilegt að beita skattlagningu til að draga úr landbúnaðarframleiðslu þar sem kjarnfóðurskatturinn kemur fram í bú- vöruverði sem kostnaðarauki við landbúnaðarframleiðsluna. Önnur úr- ræði eru heppilegri, eins og t.d. aukin hagkvæmni í landbúnaði. ” þjh Besta veðrið verðuríAtlavík Þeir sem verða á Austurlandi yfir helgina verða heppnir með veður og jafnvel þeir einnig sem verða á Norðurlandi. Hins vegar mun rigna öðra hvoru á þá sem ferðast um sunnan- og vestanvert landið. Búist er við suðlægri eða suðvestlægri átt á Suður- og Vesturlandi. Verður þvi skýjað þar og einhver rigning, þó ekki samfelld. -ELA DV kemur ekki út á morgun, laugar- dag. Næsta blað kemur út þriðju- daginn eftir verslunarmannahelgi. Smáauglýsingadeild DV verður opin í dag, föstudag, til kl. 22. Deildin verður lokuð laugardag, sunnudag og mánu- dag. Á þriðjudag verður smáauglýs- ingadeild DV opin frá kl. 9 til 22. Góða helgi. LUKKUDAGAR k 3. ágúst 2374 LEIKFANGATAFL FRÁ I.H. AÐ VERÐMÆTI KR. 1000.- Vinningshafar hringi í síma 20068 LOKI Þú hýrí Hafnarfjörður! Bifreiðaeftirlitið í Hafnarfirði kallar ekki allt ömmu sína: Y-8795 að framan Y-6193 að aftan Þeir eru frumiegir í Bifreiðaeftir- litinu í Hafnarfirði, að minnsta kosti ef miða skal við reynslu Jóhanns Há- konarsonar sem lét umskrá bílinn sinn þar í bæ. Allt gekk vel, númerin voru sett á sinn staö en þegar betur var að gáð kom í ljós að framnúmer- ið hljóðaði upp á Y-8795 en aftumúmerið var Y-6193. „Ég tók nú eftir þessu fyrir tilviljun, ætlaði aö athuga hvemig númerin færu þegar ljóst varð hvaða ósköp voru hér á ferð,” sagði Sigurður í samtali við DV. „En svona fór billinn í gegnum skoðun í Hafnarfirði án þess að nokkur gerði við það athugasemdir. Reyndar var það Hafnfirðingur sem fór með bíl- inn fyrir mig í FjÖrðinn, hafnfirsk af- greiðslustúlka sem afhenti honum númerin og skoðunarmaðurinn var að sjálfsögðu einnig úr Hafnarfirði. Hvort það varpar einhverju ljósi á málið veit ég ekki,” sagði Sigurður sem hefur lofað Bifreiðaeftirlitinu í Firðinum að skila í það minnsta öðru númerinu hið bráðasta og fá annað sem passar betur, svona til að hafa eitthvert samræmi. -EIR. Tvö mismunandi númer 6 sama bilnum Y-6193 að aftan og YS79S aðframan. DV-myndS. Sýslumaður bíður eftir rigningu Jón Isberg, sýslumaöur Húnvetn- inga, sat í allan gærdag á skrifstofu sinni og beið eftir rigningu svo að unnt yrði að hefja yfirheyrslur yfir þeim bændum sem ráku hross sín á Auðkúluheiöi í síðasta mánuöi. Eins og alkunna er þá var þaö bannað. „Það hefur verið svo votviðrasamt að undanförnu að ég kann ekki við að vera að trufla bændurna í þessum 'hressilega þurrki sem verið hefur,” sagði sýslumaður sem býst við rign- ingu í dag og þá verða menn yfir- heyrðir. I Skagafjarðarsýslu tókst aftur á móti að ná samkomulagi á miðviku- dag um hrossin á Eyvindarstaða- heiði sem var bændum mjög í hag. Féllust þeir á að sækja hross sín og færa til byggða fyrir 20. ágúst, aðeins nokkrum dögum fyrr en ráð hafði veriðfyrirgert. -EK. Stelpurnar hjá Umferðarráði sem verða á vakt um heigina með vin- samlega ábendingu til ferðamanna helgarinnar. DV-mynd Kristján Ari. „Viögáfum strákunumfrí” — segja stelpumar hjá Umferðarráði Þær voru eldhressar stelpumar hjá Umferðarráði sem ætla að vera á vakt þar um helgina og taka við upplýsing- um frá lögreglumönnum víðs vegar um land um umferð, ástand vega og veður. Þessmn upplýsingum og gagnlegum leiðbeiningum til ferðafólks mun síðan verða miðlað til allra landsmanna í út- varpi bæði á rás eitt og tvö. Það er Ragnheiður Davíðsdóttir, ein af stelpunum þrem, sem mun sjá um þá hlið mála. Hinar tvær, sem standa vaktina, eru Sigrún Olafsdóttir, lög- regluþjónn í Kópavogi, og Ingibjörg Oskarsdóttir, starfsmaður Umferðar- ráðs. Þetta mun vera í fyrsta skipti að konur sjá algerlega um þessa upplýsingasöfnun hjá Umferöarráði um verslunarmannahelgi. Þær byrja strax í dag og verð@ á vakt eftir þörfumframámánudag. gj Kærðirfyrirmis- notkuná krftarkortum Þrír krítarkortahafar hafa verið kærðir til Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir misnotkun á Visa-kortum er- lendis. Samtals hafa þeir svikið út tæpa hálfa milljón króna, það er tekið út peninga og greitt vörur og þjónustu erlendis. Stærsta málið varðar ungan Reykvíking sem eyddi um 300 þúsund krónum á nokkrum dögum í Banda- ríkjunum. Er rannsókn málanna rétt aðhefjast. -KÞ Hafnarf jarðarbrandarar taka nýja stef nu: Varð brátt í brók í Firðinum —og bfllinn varð fyrir barðinu „Ég skil ekki hvað er að gerast hér í bænum, að minnsta kosti getur lág- kúran vart orðiö meiri,” sagði Sig- urður Jónsson, starfsmaður Skýrslu- véla ríkisins, sem býr við AusturgÖtu í Hafnarfirði. Er hann kom út í gær- morgun og ætlaði að setjast upp í bif- reið sína, Mazda 626, sá hann sér til mikillar hrellingar og furðu að einhver hafði gengið öma sinna á vélarhlífinni. .dlonum viröist hafa orðið brátt í brók þessum óþokka,” sagði Sigurður og hristi hausinn. „Ég hringdi á lögregluna og hún kom og staðfesti að um mannasaur væri að Sigurður Jónsson við bílinn sinn í ræða á húddinu. Eins og gefur að Hafnarfirði i gær: — Þakka mínum skilja er ég ekkert sérstaklega sæla fyrir að óþokkinn teygði sig ekki hrifinn af því að fara að hreinsa í þvottinn minn. þetta sjálfur þannig að heilbrigðis- DV-mynd Kristján Arl. fulltrúinn hér í Firðinum fær líklega þaðverkefni.” Sigurður var að því spurður hvort hann ætti einhverja óvini í Hafnar- firði og kvað hann svo ekki vera. ,JCn ég þakka mínum sæla fyrir að þessi snillingur skyldi láta þvottinn á snúr- unum hjá mér í friði því að hann hefði hæglega getað teygt sig í hann þar sem hann sat á hækjum sínum á húddinu.” -EIR. f f f f f f f f f f f f f f f f f f f f f f f í i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.